Fálkinn - 17.10.1962, Síða 27
Harat/nellubúÍiHífur
cg fllaAka pie
125 g sykur
4 egg
1 msk. sykur
4 dl mjólk
V2. tsk. vanilla.
Hafið tilbúið lítið, kringlótt kökumót með föstum botni.
Hitið pönnu, brúnið sykurinn, hellið helmingnum af honum
í mótið, þegar brún froða fer að myndast, rennið honum
innan í mótið. Setjið það til hliðar. Sjóðið afganginn af
sykrinum augnablik með 1 dl. af vatni. Kælið í skál.
Blandið saman eggi og sykri, þeytið ekki. Hitið mjólkina,
hellið henni saman við eggin, hrærið sem minnst. Kryddið
með vanillu. Síað beint í mótið. Smjörpappír eða málm-
pappír bundinn yfir. Soðið í vatnsbaði við nægan hita, annað
hvort í potti á gufusuðugrind eða í ofninum, í 1 klst. Kælt.
Hvolít á fat. Borið fram með karamellusósu. Þá er þeytt-
um rjóma blandað saman við afganginn af brúnaða sykrinum.
ALASKA PIE.
180 g hveiti
Salt
90 g smjörlíki
1 msk. vatn
Avextir eða ber
Vanillu ís
3 eggjahvítur
180 g sykur.
Hveiti og salti sáldrað á borð, smjörlíkið mulið saman
við, vætt í með vatninu. Deigið hnoðað saman með sem fæst-
um handtökum. Deigið flatt út, meðalstór, eldfastur diskur
hulinn að innan, mótið brúnirnar fallega með fingrunum.
Pikkið deigið með gaffli/ Leggið smjörpappír ofan á og
hellið hrísgrjónum, baunum eða brauðmylsnu þar ofan á
(svo að skelin lyfti sér ekki, þegar hún er bökuð). Bökuð
Framhald á bls. 31.
ÞÆGILEG BOKAHLIF
Stærðin er nál. 22 cm á hæð og 32 cm á breidd og
hæfir þvi meðalbókum. í fyrirmyndina er notað flétt-
að bast, en notast má við annað efni: afgang af kápu
eða dragt, leður, vaxdúk 0. s. frv. Sé efnið mjög lint,
verður að leggja e-ð stíft á milli laga. Fóðrið er léreft
eða bómullarefni.
Sníðið yfirbyrðið 2 cm stærra allt í kring, en ætl-
unin er að sjálf bókahlífin sé. Þræðið sauminn á röng-
unni. Sníðið 2 hanka nál. 25 cm langa og 3 cm breiða.
Brjótið hann tvöfaldan með dálitlu saumfari, þannig að
breidd hans verði 1 cm. Saumið hankann í vél.
Sníðið fóðrið 1 cm minna en ytrabyrðið. Þverböndin,
sem ætlunin er að styðji við bandið á bókinni, eru
klippt tvöföld úr fóðurefninu 3 cm breið og af sömu
lengd og hæðin er á fóðrinu. Saumið þverböndin sam-
an og snúið þeim við. Festið fóðrið við brúnina, festið
hanka inn undir fóðrið beggja vegna. Komið þverbönd-
unum fyrir, nál. 6 cm innan við skammhliðarnar, beyg-
ið þau inn fyrir fóðrið. Stingið í vél tvisvar allt í kring,
svo að allt sé fast.
FÁLKINN 27