Fálkinn


Fálkinn - 17.10.1962, Síða 38

Fálkinn - 17.10.1962, Síða 38
RAUÐA FESTIA Framhald af bls. 35. getið notið fegurðarleyndardóms Morthu Hyer „Ég nota Lux-sápu á hverjum degi“, segir Martha. „Ég hef komizt að raun um, að hún verndar hörunds- ( lit minn eins og í bezt verður á kos- g hvít, bleik, blá, græn og gul „Lux er mín sápa“, segir Martha Hver. „Ég hef notað Lux árum saman. Hún var mér góður fé- lagi. begar ég kom til Hollvwood. í>ið megið ganga að bví visu, að Lux-sápan fvrirfinnst á snyrtiborði sérhverrar kvikmvndastjörnu". Já, begar bið notið lux-sápu, er ekki eingöngu um andiitshvott að ræða — heidur og femirðarmeS- höndiun. Og bér munuð verða Martha Hever sam- mála um hað, að betri sápu fvrir hörundið getur ekki. 9 af hverjum 10 kvikmyndastjörnum nota Lux handsápu " X-LTS 923/IC-8041-50 kg — Hver eruð þér eiginlega? — Ég heiti Brunner. Marteinn Brunn- er. —Brunner? Þér eruð þá ekki héðan úr þorpinu? — Ég er nýráðinn við mylnuna hér uppfrá. Augu Barða lögregluþjóns fyllast at- hugun og varkárni. — Einmitt það, seg- ir hann. — Það eruð þér! Hm. Má ég sjá skilríki yðar? Marteinn fölnar. Skilríki? Nú er úti um allt. — Skilríki mín, svarar hann svo rólega sem honum er unnt, — eru heima í sögunarmylnunni. — Ökuleyfi yðar þá? Marteinn hristir höfuðið. — Það er líka heima í mylnunni. Nú verður Barði strengilegur á svip. — Hafið þér gefið yður fram við bæjarfógetann? Marteinn hristir höfuðið á ný. — Engin skilríki! Ekkert ökuleyfi! Ekki farinn að gefa sig fram! Barði lögregluþjónn slær reiðilega í hjólstýr- ið. — Ungi maður, segir hann afar þótta- lega. — Viljið þér koma skjölum yðar og skilríkjum í lag svo fljótt sem mögu- legt er. Hmm. Hann snýr uppá yfir- skegg sitt. — Það er laugardagur í dag, svo nú er lokað hjá bæjarstjórnarskrif- stofunni. En þér farið þangað fyrir há- degi á mánudag. Það er skipun. Skiljið þér? Márteinn kinkar kolli. Barði sezt á hjól sitt og heldur leiðar sinnar. Mar- teinn herðir á bifhjólinu, og brátt er hann kominn framhjá síðustu húsunum. Skógurinn lykur um veginn til beggja hliða, aðeins rjóður hér og þar, svo út- sýn næst til öldumyndaðra fjalla í fjarska. Kaldur stormur næðir gegnum ein- föld vinnuklæði Marteins og það fer hrollur um hann. Þó verður hann þess naumast var, hann sér aðeins hinn lað- andi fjarska, finnur það eitt, hversu vegurinn seiðir hann og dregur áfram. Hann nemur titring hreyfilsins, finn- ur afl hans og orku, og það fer um hann glímuskjálfti, er hann hvetur bifhjólið áfram með síauknum hraða. Frelsi! Ekkert fær haldið aftur af honum. Allt liggur framundan honum, vegirnir, þorpin, borgirnar. Hann getur ekið hvert sem honum sýnist. Áfram, í órafjar- lægð.. Bensíngeymirinn er fullur. Frjáls? Hann á ekki eyrir í vasanum. En .... hann getur haldið áfram, þar til öllu bensíni hefur verið eytt .... og selt síðan bifhjólið. Hugsanirnar fljúga gegnum heila hans. Frjálsræðið gerir hann ölvaðan. Vegurinn er æði mjór og ójöfnur eru miklar á honum. En það er aðeins langtum betra. Því minni líkur til að hitta neinn. Burt! Burt! Framh. í næsta blaði. 38 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.