Fálkinn - 26.12.1962, Page 6
ekkert blað er lesandi, á út-
varp ekki hlustandi vegna
þeirra. En út yfir tekur hvern-
ig auglýst er. Ein ómerkiieg
skrudda er kannski auglýst
eins og um heimsbókmenntir
væri að ræða, og höfundurinn
hafinn upp til skýjanna ef
ekki lengra upp, ef bókin er
um hina vinsælu andatrú, sem
virðist vera aðalathvarf fólks
í þessu guðs volaða landi. f
sjálfu sér er ekkert við það
að athuga, þótt bók eða hlutur
sé auglýstur, en þegar keyrir
um of, þá getur tilvonandi
kaupandi verið búinn að fá
nóg af öllu skruminu og aug-
lýsing virkar þá þveröfugt við
það, sem henni var ætlað að
gera. Mér finnst að auglýs-
endur ættu að athuga þetta
atriði, áður en þeir leggja út
í stórkostlegan hernað í blöð-
um og útvarpi. Annað atriði
langar mig líka til að benda
á, en það eru hinar svokölluðu
snobbútgáfur bóka. Bók er
kannski gefin út í 100 ein-
tökum, bundnum í geitar-
skinn og tilheyrandi með eig-
inhandaráritun höfundarins.
Slíkt fyrirkomulag á ekki að
þekkjast hjá stórum bókafé-
lögum, sem hafa um árabil
kallað sig bókafélög alþýðu.
Bækur, sem gefnar eru út hjá
slíkum félögum, eiga að vera
í stóru upplagi og mátulega
dýrar, en ekki í litlu upplagi
fyrir snobba og burgeisa, sem
hafa efni á því að eyða þús-
undum króna í bækur í sín
eigin bókasöfn.
M. M.
Svar:
Viö erum sammála bréfritara
aö mestu leyti, en snöbbútgáfa
sú, sem liann drepur á, mun
koma út í stcerra upplagi, og þá
vœntanlega í 2. útgáfu fyrir
blessaða alþýöuna.
Lélegar eldspýtur.
Kæra pósthólf. — Venju-
lega er ég ekki með neitt kvak
og kvabb í kjaftadálkum blað-
anna hér í borg. Nú get ég
ekki á mér setið að rífast út
í eitt okurfyrirtæki, sem selur
svo lélega vöru, að það er
fyrir neðan allar hellur. Hér
er um að ræða afsprengi
gömlu einokunarverzlunarinn-
ar, Áfengis- og Tóbakseinka-
sölu ríkisins. Ég þakka mínum
sæla fyrir að hafa lítið
brennivín keypt af þeim, en
hins vegar er ég mjög háður
tóbaksvörunum og eldspýtun-
um, því að ég er einn úr
Keðjureykingaklúbbnum, sem
6 FÁLKINN
Heildsölubirgðir: Sterling h. f. Höfðatúni 10. Sími 13649, 11977.
NÝTÍZKU HÖSGÖGN
ELDHÚSSETT
FALLEG •
VÖNDUÐ
ÖDYR.
SENDUM UM
ALLT LAND
HNOTA
HÚSGAGNAVERZLUN
Þórsgötu 1 -— Sími 20820.
Góðu áformin.
-------— Þið eruð alltaf að
prédika í þessu pósthólfi, svo
að mig langaði bara til að
spyrja ykkur einnar sam-
vizkuspurningar. Eg vona, þið
reiðist mér ekki, þótt ég
spyrji svona: „Hvernig ætlið
þið að byrja nýja árið?“
Svar:
EVns og venjulega með timbur-
mönnum.
Úrklippumar.
Komdu blessaður og sæll
Fálki góður. — Ég sendi þéi
hér eina úrklippu — úr Vísi,
sem mér finnst þess virði að
hún birtist í úrklippusafninu,
það finnst mér skemmtileg-
asti hluti blaðsins hjá ykkur
Beztu kveðjur.
J. M.
Fornsalar
og gamlir munir.
Herra ritstjóri. — í 43. tbl.
þessa árgangs rakst ég á
ágætt viðtal við fornsala
nokkurn. í því tilefni datt
mér í hug að skrifa ykkui
um svolítið, sem ég hef lengi
haft áhuga á. En það er, að
hér í Reykjavík er engin
verzlun, sem selur gamla list
muni. Hana vantar algerlega
Alls staðar sem ég dvelzt :
menningarlöndum hafa verið
til slíkar verzlanir, en hér ei
hvergi hægt að fá keypta
gamla listmuni.
Safnari.
Svar:
Viö viljum aöeins benda bréf-
ritara á, aö öðru hvoru eru
haldin hér í borginni listmuna-
uppboö, þar sem gamlir listmun-
ir og nýir eru boðnir upp til
sölu. Hann ætti aö bregöa sér
á slíkt uppboö einhvern daginn.
Makt auglýsinganna.
Kæru herrar. — Lifað hef
ég mörg jól, en aldrei önnur
eins kaupsýslujól. Þegar jólin
nálgast þá er eins allt brjál-
ist, kaupmenn taka að telja
peninga snemma í nóvember
og almúga fólk verður sér
úti um aukajobb til þess að
hafa nógan pening um jólin.
Síðan byrja auglýsingarnar,
það er Ijóti ófögnuðurinn,