Fálkinn - 26.12.1962, Blaðsíða 7
dó fyrir sex árum, þegar
Dungal upplýsti rannsóknir
sínar. Nú er ég einn eftir af
átta stofnendum, hinir allir
dauSir, þó ekki úr krabba-
meini, heldur úr hjartaslagi
og kransæðastíflu, — ég skal
segja ykkur það, að þeir
reyktu fram í rauðan dauðann,
og drukku meðan þeir gátu
á glasi haldið — aldrei voru
þeir svo brútal að drekka af
stút. En nú þegar ég fer að
byrja nýtt ár, — auðvitað
með góðum áformum, — þá
get ég ekki stillt mig um að
skammast svolítið út af flís-
um þeim, sem þeir þarna á
einokunarverzluninni kalla
eldspýtur af skáldlegu hugar-
flugi og andagift. Þeir virð-
ast vera fremur litlir raunsæ-
ismenn þarna á þeirri stofn-
un, því hvergi í nokkru menn-
ingarlandi, væru þessar flís-
ar kallaðar eldspýtur. Ég
skaðbrenndi mig t. d. á einni
um daginn, þannig að einn
fingur er gjörsamlega ófær
um að inna sitt starf af hendi
og þetta er mjög bagalegt,
einkum og sér í lagi vegna
þess, að ég rita á ritvél með
þessum sama putta. Flísar
þessar gerðu auk þess svo
mikinn skúrk í stofunni okk-
ar hjóna um daginn, að þær
brenndu gat á tuttugu þúsund
króna gólfteppi frá Axminster,
sem við hjónin vorum nýbúin
að kaupa, en sem betur fer
má bæta það, svo að við hjón-
in förum ekki í mál að sinni,
En sem sagt flísunum frá tó-
baksverzuninni er mjög
gjarnt, þegar þeim er strokið
við stokkinn, að klofna og
þjóta logandi út í allar áttir,
til mikillar hrellingar öllum
þeim sem nærri eru. Oftast er
það líka svo, að maður verð-
ur að kveikja á einum 10
stykkjum til þess að fá sæmi-
legan eld í pípuna sína og þá
fer — eins og þið getið sjálfir
reiknað út — stokkurinn all-
ur í að kveikja í fimm pípum,
þær fimm sem eftir eru, er
maður búinn að gefa náung-
anum, því að það eru margir
svo blánkir hér um slóðir á
þessum skattpíndu jólum, að
þeir eiga ekki 80 aura fyrir
einum eldspýtustokk. Auk
þess fer stokkurinn mjög illa
í vasa og veit ég, til þess að
eldspýtustokkar hafa alveg
eyðilagt fóður innan á vasa.
Ég ætla ekki að tala um
verðið — það verður víst
aldrei nógu hátt, — að minnsta
kosti ekki fyrir ríkið.
V. y. T.
Svar:
ViÖ geturn ekki annaö en bros-
aö aö þessu bréfi, og bendum rit-
ara þess á, aö reyna aö kaupa
eldspýtur af einhverjum, sem er
í siglingum, á meöan einkasalan
hefur ekki betri eldspýtur á boö-
stólum.
Kringlur og karlmenn.
Kæri Fálki. — Nú er ég
búin að baka Koníakskringl-
urnar eftir uppskriftunum í
Fálkanum, og maðurinn
minn þegar farinn að hakka
þær í sig. Hann er svo mikið
fyrir kökur. Þessar uppskrift-
ir komu mér að mjög góðu
haldi, því að ég var alveg í
standandi vandræðum með
hvaða kökur ég ætti að baka
núna fyrir jólin, en svo kom
þetta blað og þá var ég ekki
í vandræðum lengur. Þessar
kökur eru strax farnar að gera
góða lukku, krakkarnir eru
alveg snarvitlausir í þær og
karlinn minn alveg bandóður,
hann er bara verri en Gátta-
þefur var í gamla daga. Til
allra guðslukku hef ég læst-
an skáp, sem enginn hefur
lykil að nema ég sjálf og þar
eru kökurnar niðurkomnar.
(Jæja, er ég ekki búin að
kjafta nóg, svei mér þá, ef
grauturinn er ekki farinn að
sjóða upp úr). Það er mikill
raunur að geta kippt síðunum
út úr og geymt, ágætur við-
bætir við bókina hennar
Helgu, sem ég fékk í brúðar-
gjöf frá Gústa bróður, og svo
getur maður miðlað af vizku
sinni þeim húsmæðrum, sem
ekki kaupa Fálkann. Ég er
viss um, að þetta er þjónusta,
sem allar húsmæður kunna
vel að meta og blaðið ætti að
gera þeim svona mikinn
greiða fyrir hverja stórhátíð.
. S. Hvenær byrjaði fram-
haldssagan Rauða festin?
Kleina.
Svar:
Hún hófst í 3If. tbl. 5. sept. ’62.
Kínverjar.
Kæri Fálki. — Ég og annar
strákur erum mikið að hugsa
um að búa okkur til kínverja
til þess að sprengja á gaml-
árskvöld. Getur þú gefið okk-
ur upplýsingar, hvernig á að
búa þá til?
Maggi.
Svar:
Nei, lielzt vceri aö snúa sér til
lögreglunnar.
FÁLKINN 7