Fálkinn - 26.12.1962, Blaðsíða 35
• •
UNDIRFDT ERU
AÐALSMERKI
KVENLEGS
ÞDKKA
STJÖRNUSPÁIN.
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Þaö er ekki hægt að segja annað en það verði óvenju-
mikið af skemmtunum í þessari viku. Gjöf mun koma
yður mjög á óvart. Áramótin verða ánægjuleg og þér
munuð ekki minnast annarra slíkra í mörg ár. Varið
yður þó á áfengum drykkjum.
Nautsmerkið (21. april—21. maí).
Miðvikudagur, föstudagur og laugardagur verða
beztu dagar þessarar viku. Þér munuð fá heimsókn,
sem er hvorttveggja í senn, skemmtileg og lærdómsrík.
Ekki ættuð þér að hampa framtíðaráformum yðar á
nýja árinu.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Þessi vika verður hagstæð á marga lund, en samt
mun mikils v'erða af yður krafizt, en þér ætt.uð ekki
að láta yður vaxa það í augum. Yður ber að keppa
ákveðið að settu marki og hopa hvergi á hæli. Farið
varlega með hluti, sem ætlaðir eru til skemmtunar.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Um miðja vikuna fáið þér erfið verkefni, sem þér
bókstaflega verðið að leysa vel af hendi. Það ætti að
ganga vel, ef þér beitið þeirra mælsku og orðfimi, sem
þér hafið yfir að ráða. Þér ættuð ennfremur að vera
vandur að meðulum og fara ekki eingöngu eftir því
að tilgangurinn helgi meðalið.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. dgús).
Brjótið odd af oflæti yðar og leitið aðstoðar mann-
eskju, sem er öll af vilja gerð til þess að hjálpa yður.
Farið á fund hennar og látið ekki lítils háttar móðg-
un st.anda í veginum. Enginn vafi er á því, að sú heim-
sókn verður til góðs.
Jómfrúarmerkið (2U. áffúst—23. sept.)m
Svo virðist sem yður veitist mjög erfitt að komast
í samband við mann, sem er yður mjög mikilvægur.
Þér skuluð berjast áfram að takmarkinu á einhvern
hátt. Hafið ekki hát,t um fyrirætlanir yðar. Allar lík-
ur benda til þess að nýja árið verði farsælt.
Voffarskálamerkið (2J+. sept.—24. okt.)m
Strax í byrjun vikunnar fáið þér því framgengt,
sem yður hefur lengi dreymt um. Þér getið þakkaö
hyggindum yðar þennan góða árapgur. Mjög mikil-
væg persóna fær áhuga á yður og starfi yðar og gerir
yður gott t-ilboð.
Sporðdrekamerkið (24. okt.—22. nóv.)m
Þér fáið tækifæri til að leysa vandamál, sem lengi
hefur svipt yður allri sálarró. En aðstaða yðar er
samt lítið breytt fyrir það. Ef yður tekst að hafa
hemil á skapi yðar, heppnast yður- að' líkindum að
leysa vandann til fulls.
Boffamannsmerkið (23. nóv.—21. des.)m
Fyrri hluti vikunnar verður næsta rólegur og mein-
hægur, en hætt er við að í vikulokin verði einhver
sprenging í einkalífi yðar. Þá gerist sitthvað, sem kem-
ur ákaflega flatt upp á yður. Þetta verður svolít.ið
erfitt fyrst, en jafnar sig síðan smátt og smátt.
Steinffeitarmerkið (22. des.—20. jan.)m
Loksins kemur að því, að þér fáið tækifæri til þess
að sýna hvað í yður býr. Þér verðið óvenjuvél upp-
lagður og fyllist atorku og dugnaði í starfi og heima
fyrir. Þetta kemur ekki aðeins sjálfum yður á óvart
heldur líka vinum yðar.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.)m
Sannarlega blæs ekki byrlega fyrir yður í þessari
viku. Þér munuð sæta harðri gagnrýni, jafnvel skiln-
ingsleysi. En það er engin ástæða til þess að missa
kjarkinn. Einkalífið verður ánægjulegt þrátt fyrir
þessa erfiðleika.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz),
Fyrir algera tilviljun fáið þér tækifæri til þess að
rjúfa hið vanabundna og hversdagslega líf yðar. Yður
gefst tækifæri til að bregða á leik og skemmta yður
duglega. En hversdagsleikinn vitja yðar aftur, verið
þess minnugir.
FALKINN
35