Fálkinn


Fálkinn - 26.12.1962, Blaðsíða 35

Fálkinn - 26.12.1962, Blaðsíða 35
• • UNDIRFDT ERU AÐALSMERKI KVENLEGS ÞDKKA STJÖRNUSPÁIN. Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl). Þaö er ekki hægt að segja annað en það verði óvenju- mikið af skemmtunum í þessari viku. Gjöf mun koma yður mjög á óvart. Áramótin verða ánægjuleg og þér munuð ekki minnast annarra slíkra í mörg ár. Varið yður þó á áfengum drykkjum. Nautsmerkið (21. april—21. maí). Miðvikudagur, föstudagur og laugardagur verða beztu dagar þessarar viku. Þér munuð fá heimsókn, sem er hvorttveggja í senn, skemmtileg og lærdómsrík. Ekki ættuð þér að hampa framtíðaráformum yðar á nýja árinu. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní). Þessi vika verður hagstæð á marga lund, en samt mun mikils v'erða af yður krafizt, en þér ætt.uð ekki að láta yður vaxa það í augum. Yður ber að keppa ákveðið að settu marki og hopa hvergi á hæli. Farið varlega með hluti, sem ætlaðir eru til skemmtunar. Krabbamerkið (22. júní—22. júlí). Um miðja vikuna fáið þér erfið verkefni, sem þér bókstaflega verðið að leysa vel af hendi. Það ætti að ganga vel, ef þér beitið þeirra mælsku og orðfimi, sem þér hafið yfir að ráða. Þér ættuð ennfremur að vera vandur að meðulum og fara ekki eingöngu eftir því að tilgangurinn helgi meðalið. Ljónsmerkið (23. júlí—23. dgús). Brjótið odd af oflæti yðar og leitið aðstoðar mann- eskju, sem er öll af vilja gerð til þess að hjálpa yður. Farið á fund hennar og látið ekki lítils háttar móðg- un st.anda í veginum. Enginn vafi er á því, að sú heim- sókn verður til góðs. Jómfrúarmerkið (2U. áffúst—23. sept.)m Svo virðist sem yður veitist mjög erfitt að komast í samband við mann, sem er yður mjög mikilvægur. Þér skuluð berjast áfram að takmarkinu á einhvern hátt. Hafið ekki hát,t um fyrirætlanir yðar. Allar lík- ur benda til þess að nýja árið verði farsælt. Voffarskálamerkið (2J+. sept.—24. okt.)m Strax í byrjun vikunnar fáið þér því framgengt, sem yður hefur lengi dreymt um. Þér getið þakkaö hyggindum yðar þennan góða árapgur. Mjög mikil- væg persóna fær áhuga á yður og starfi yðar og gerir yður gott t-ilboð. Sporðdrekamerkið (24. okt.—22. nóv.)m Þér fáið tækifæri til að leysa vandamál, sem lengi hefur svipt yður allri sálarró. En aðstaða yðar er samt lítið breytt fyrir það. Ef yður tekst að hafa hemil á skapi yðar, heppnast yður- að' líkindum að leysa vandann til fulls. Boffamannsmerkið (23. nóv.—21. des.)m Fyrri hluti vikunnar verður næsta rólegur og mein- hægur, en hætt er við að í vikulokin verði einhver sprenging í einkalífi yðar. Þá gerist sitthvað, sem kem- ur ákaflega flatt upp á yður. Þetta verður svolít.ið erfitt fyrst, en jafnar sig síðan smátt og smátt. Steinffeitarmerkið (22. des.—20. jan.)m Loksins kemur að því, að þér fáið tækifæri til þess að sýna hvað í yður býr. Þér verðið óvenjuvél upp- lagður og fyllist atorku og dugnaði í starfi og heima fyrir. Þetta kemur ekki aðeins sjálfum yður á óvart heldur líka vinum yðar. Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.)m Sannarlega blæs ekki byrlega fyrir yður í þessari viku. Þér munuð sæta harðri gagnrýni, jafnvel skiln- ingsleysi. En það er engin ástæða til þess að missa kjarkinn. Einkalífið verður ánægjulegt þrátt fyrir þessa erfiðleika. Fiskamerkið (20. febr.—20. marz), Fyrir algera tilviljun fáið þér tækifæri til þess að rjúfa hið vanabundna og hversdagslega líf yðar. Yður gefst tækifæri til að bregða á leik og skemmta yður duglega. En hversdagsleikinn vitja yðar aftur, verið þess minnugir. FALKINN 35

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.