Fálkinn


Fálkinn - 26.12.1962, Blaðsíða 23

Fálkinn - 26.12.1962, Blaðsíða 23
hefur hún aldrei séð móður sína fyrr. Þannig hefur hún yfirleitt aldrei séð nokkra manneskju. Svo æsta og örvingl- aða. Það er mér að kenna. Kristín ásakar sjálfa sig. Hún hefur komið móður sinni úr jafnvægi og valdið öllum þessum vandræðum. En hún þarf ekki að segja nema þrjú orð til þess, að allt komist í samt lag á ný. Ein þrjú orð: Ég verð kyrr! En er henni leyfilegt að vera hér kyrr? Hennar er brýn þörf heima í Nestelborn. Faðir hennar er í hættu. Nú þarf hann hennar hjálpar við, fremur en nokkru sinni fyrr. En móðir hennar þarfnast einnig að- stoðar hennar, einmitt á þessari stundu, þessu andartaki! Hingað til hefur Kristín talið sig flutta frá Nestelborn fyrir fullt og allt, og að þangað ætti hún ekki aftur- kvæmt framar. Nú hafa örlögin hag- að því svo, að enn á hún um tvennt að velja. Annað hvort hinna tveggja nán- ustu skyldmenna sinna. Hinu verður hún að bregðast, hún á ekki annars úr- kosta. En hvoru? Föður sínum eða móð- ur? Enn heyrist ómur, lengri en áður. Litla rauða ljósið deplar. Fimm mínút- ur. Að fimm mínútum liðnum á Marion Gaspadi að ganga inn á sviðið. Búningskonan tekur að hneppa langri röð af hnöppum á kjólbaki Marion. — Nei, látið þetta vera, segir frúin reiði- lega. — Þér heyrðuð hvað ég sagði . . . ég syng ekki í þetta sinn! — En frú Gaspadi, svona getið þér ekki ... Marion stappar í gólfið. ■—• Látið þér mig í friði! Felix frændi kemur. Leiksviðsstjór- inn hefur sótt hann út í forstjórastúk- una, þar sem þeir Alfreð sátu. Felix frændi er ímynd róseminnar. — Ég heyri sagt, að þú sért skyndi- lega hætt við að syngja,vina mín? segir hann undur rólega. — Ég hef orðið fyrir hræðilegri geðs- hræringu. Mér er ómögulegt að koma fram á leiksvið. Gerið sem ykkur sýn- ist. Rödd Marion er aðeins hljómlaust tuldur. Það er eins og hún sé fullkom- lega sinnulaus. — Og þér er það full alvara? Kristín hleypur til móður sinnar og vefur hana örmum. — Gerðu það fyrir mig, að valda þeim ekki vandræðum, mamma! Ég vil allt til þess vinna, að þú megir jafna þig! Ég skal ... Felix frændi grípur um mitti Kristín- ar og ýtir henni hógværlega til hliðar. — Fyrst Marion vill það ekki, segir hann, — er ekkert við því að gera ... Hann snýr sér að leiksviðsstjóranum, sem stendur eins og á nálum í dyra- gættinni. — Þá verður ungfrú Petra litla Karlsen að taka hlutverkið að sér þegar í stað! Heppni var, að hún skyldi hafa æft það! Ungfrú Karlsen! Því sem alvarlegar áminningar og eindregnar bænir hafa ekki fengið framgengt — getur nafn þessarar ungu listakonu — Petru Karl- sen — kippt í lag á svipstundu. Marion réttir sig upp í sætinu og lítur til Felix frænda með ferlegum reiðisvip. En hún hefur hrist sljóleikann af sér. Hún skoðar andlit sitt nákvæmlega í spegl- inum, og tekur að farða sig og dypta. Hún hefur ekki heldur neitt við það að athuga, þótt búningskonan haldi áfram að hneppa að henni kjólnum og lögð sé síðasta hönd á hársnyrtinguna. Leiksviðsstjórinn er horfinn. Ómur af tónlist heyrist inn um rifu með hurð- inni. Forleikurinn. Leikstjórinn kemur þjótandi. — Frú Gaspadi! Inn á sviðið ... Hann varpar kápu yfir naktar axlir hennar og lyft- ir henni upp af stólnum, dregur hana til dyra. Og sem hún hraðar sér fram gang- inn við hlið hans, trallar hún létt lag til þess að mýkja röddina. Þannig hef- ur hún á svipstundu tekið á sig gervi þeirrar persónu, sem hún á að túlka inni á sviðinu. TJÖLDIN líða til hliðar og Marion Gaspadi gengur inn á leiksviðið, en tónlistin frá hljómsveitargryfjunni tek- ur undir. Hinn mikli áhorfendasalur leikhússins er þéttsetinn gestum og í aftari sætum niðri situr Frans Ektern. Hann er ölvaður, en þó er rödd Marion svo fögur, að hann hlustar hrifinn og hreyfingarlaus. Honum er það hulin ráðgáta, að þessi himneska vera uppi á sviðinu skuli eitt sinn hafa verið eigin- kona hans. Söngleiknum heldur áfram með sín- um hætti, unz komið er að því atriði, þegar aðalpersónan dregur Marion í arma sína og hrópar: — Þú ert mín að eilífu! Þá gerist hneykslið. Malarinn rís hægt og þunglega á fætur, eins og framandi vald ráði gerðum hans. Hann horfir' á konu sína í örmum annars manns! Konuna, sem einu sinni var hans. Hana, sem hann elskaði, þá einu sem hann hefur nokkru sinni elskað. Hann lýtur áfram sínum tröllaukna búk, og tekur báðum höndum um bak stólsins, sem fram undan honum er. — Setjist þér niður! er hrópað með kvenrödd bak við hann ... og fjórir eða fimm aðrir taka undir: — Setjist þér! — Sleppið henni! öskrar malarinn upp á leiksviðið. Tónlistin er hljóðnuð. Það er sem leikendurnir á sviðinu hafi stirðnað í faðmlögunum. Marion lítur skelfd niður í salinn yfir öxl mót- leikara síns. Hún kemur auga á malar- ann og liggur við að líði yfir hana. Hvað hyggst hann fyrir? Ætlar hann að hefna sín með því að vekja hneyksli? Framh. á bls. 24 FALKINN 23

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.