Fálkinn


Fálkinn - 26.12.1962, Síða 29

Fálkinn - 26.12.1962, Síða 29
óánægður með sjálfan sig og þar við bættist að hann varð fyrir vonbrigðum í stjórnmálunum, hafði ekki þau áhrif sem hann hafði vænzt. Blöðin svöruðu skrifum hans engu. Ég man að hann sat oft niðurlútur og þungur á brún og tautaði fyrir munni sér: „Þeir ætla að þegja mig í hel.“ Við höfðum ekki samið um fast kaup fyrir vinnu mína en ég óttaðist ekki að hlutur minn yrði fyrir borð borinn, því Einar var höfðingi og rausnarmenni. Hann borgaði mér ekki á tilteknum dögum, en spurði stundum: „Eruð þér ekki staurblankur núna?“ og auðvitað svaraði ég því alltaf játandi. Þá fór Einar ofan í vasa sinn og dró upp hand- fylli sína af seðlum án þess að gæta að því hvað mikið það var, — og rétti mér. Þetta voru mjög spennandi augnablik því aldrei vissi ég hvað mikið varð fyr- ir honum í vasanum. Ég taldi þetta svo eftir á og aldrei var ég hlunnfarinn, þvert á móti var borgunin alltaf rífleg og rausnarleg. Einar Benediktsson var mesta glæsimenni í sjón og vissi reyndar af því. Stundum spurði hann mig, einkum ef hann var við skál, hvor þeirra mér fyndist meira glæsimenni, hann eða Hannes Hafstein. Hannes dáði ég allra manna mest þegar ég var barn á ísa- firði og hann var bæjarfógeti og sýslu- maður þar, og enn hef ég ekki augum litið glæsilegri mann enn hann. Ég svaraði því Einari á þá leið að mér fyndist þeir báðir hin mestu glæsi- menni, en ég setti þó Hannes skör ofar. Þá brúmmaði í Einari. Einu sinni kom ég á skrifstofuna að morgni dags og hugðist taka til starfa að venju. Sá ég þá að Einar var ærið þungur á svip og afundinn. Hann átti ekki vanda til þessa og vissi ég ekki hvað því olli fyrr en hann víkur sér að mér, tekur vélritaða pappírsörk upp úr vasa sínum og hendir henni á borðið fyrir framan mig. Þetta var þá kersknis- kvæði um kveðskaparháttu Einars, þar sem hann meðal annars var kallaður „höfuðskáldið eignarfallsins11. Sagðist hann hafa sannfrétt að ég væri höfund- ur að þessu. Ég sór og sárt við lagði að ég ætti hér engan hlut að, enda væri ég hrifnari en svo af skáldskap hans. Ég sá að Einar trúði mér. Og svo sagði hann eftir nokkra þögn: „Helvítið hann Hannes“. Hann hafði fengið örkina senda í pósti og grunaði Hannes Haf- stein um græsku, því að Hannes gat ver- ið stríðinn er svo bar undir. Seinna urðu kynni mín og Einars nánari og gæti ég sagt margt frá því. — Kynntistu Hannesi Hafstein? — Nei, ekki get ég sagt það, ég var svo ungur þegar hann var á ísafirði, en Hafsteinshjónin komu oft heim til okkar á þeim árum. En ég sá Hafstein oft í sölum Alþingis, brjóstbreiðan og tígulegan. Er mér sérstaklega minnis- stætt er vantraust á hann var á döfinni. Benedikt Sveinsson átti að mæla fyrir vantrauststillögunni. Um það leyti and- aðist frú Ragnheiður, kona Hafsteins. Skoraðist þá Benedikt undan að tala fyr- ir vantraustinu þar eð svona stóð á og varð ekkert úr því að sinni. Hjónaband Hannesar hafði verið mjög ástúðlegt og farsælt. Hann harmaði konu sína ákaf- lega og bar aldrei barr sitt eftir lát hennar. Hann var í sárum þegar þetta gerðist. Á þessum sama þingfundi stóð Lárus H. Bjarnason upp og réðst harka- lega á Hafstein út af kolaeinkasölu- málinu, að mig minnir. Var dauðaþögn í þingsalnum undir ræðu Lárusar, en er hann hafði lokið máli sínu, reis Haf- stein úr sæti sínu og gekk til Lárusar og rétti honum þögull höndina. Að því búnu gekk hann aftur til sætis síns. Er það flestra álit að vegna þessa atviks hafi Lárus ekki átt afturkvæmt í íslenzk stjórnmál. Lárus var mágur Hafsteins. Talið berst aftur að skáldunum. — Nei, maður þekkti ekki persónu- lega eldri skáldin. Þó man ég vel eftir Þorsteini Erlingssyni, sem ég heyrði halda ræðu í U.M.F.R. og var mjög Framh. á bls. 32. Palmolive gefur yður fyrirKeit um . aukinn yndisjsokka Frá og með fyrsta degi verður jafnvel þurr og við- kvæm húð unglegri og feg- urri, en það er vegna þess að hið rikulega löður Palmolive er mýkjandi. Palmolive er framleidd meö olívuolíu. Aðeins sápa, sem er jafn mild og mjúk eins og Pal- molive getur hreinsað jafn fullkomlega og þó svo mjúk- lega. Hættið því handahófs- kenndri andlitshreinsun: byrjið á Palmolive hörunds- fegrun í dag. — Læknar hafa sannað hvaða árangri er hægt að ná með Palmo- live. Palmolive með olívuolíu er mildari og mýkri with Palmolive Þvoiö . . . nuddiö í eina minútu .. . SkoliÖ ... og þér FÁLKINN 29

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.