Fálkinn - 26.12.1962, Page 34
Skiiggamyndir
Framh. af bls. 31.
Dr. MacVitie sagði þurrlega: „Áreið-
anlega — ef þau á annað borð hafa
verið hér.“
„Hér er jakkinn minn. Hann er rakur
að innan, en þurr að utan. Ég sá þau
með eigin augum. Hvar geta þau verið?
Og hundurinn? Hvar er hundurinn?“
„Hvað honum viðvíkur, verðið þér
heldur að leita til dýralæknisins,“ sagði
hann önuglega.
Við fórum án þess að skiptast á einu
orði, unz við komum að dyrum dr.
MacVitie. Þá sagði hann: „Hvar hafið
þér verið síðdegis í dag?“
„Ég fór til hlöðunnar beint frá „Hvíta
svaninum.“
„Nú, þannig!“ Hann skellti hurðinni
rétt fyrir framan nefið á mér.
Ég fór til „Hvíta svansins“, sem var
enn opinn. Lagg virti mig vanldlega
fyrir sér og starði á gagndrepa fötin
mín og foruga skóna.
TRÚLOFUNAR
ULRICH FALKNER
AMTMANNSSTÍG 2
Blaðið DAGIJR
er víðlesnasta blað, sem
gefið er út utan Reykja-
víkur.
BLAÐH) DAGUR,
Akureyri.
Áskriftasími 116 7
„Ég fór til Wagnalls hlöðunnar til
Sirkus Káta Jumbos, en hann var far-
inn og hafði skilið eftir mann og konu
og hund.“
„Heyrirðu þetta, George“, sagði Lagg
við afgamlan bónda, sem hélt á kvistótt-
um öskuviðarstaf, sem virtist hafa vax-
ið beint út úr æðaberri hönd hans.
„Já, ég heyri,“ kvakaði sá gamli.
„Þessi herra hefur verið dálítið seinn
fyrir á þennan sirkus.“ Síðan hlógu
þeir báðir, en skömmu síðar sagði Lagg
róandi, eins og við fastagest: „Tókuð
þér ekki eftir dagsetningunni á efnis-
skránni, herra? Káti Jumbo hefur
vissulega verið hérna, og hann fór líka
héðan í flýti. Og hann skildi eftir mann
og konu — sem ég hef heyrt að væru
ekki löglega vígð — og einn af þessum
litlu, rökuðu hundum. Ég þekki öll kort
og auglýsingar og spjöld hér, og ég veit,
að þessi sirkussýning var í nóvember
1904, en nú höfum við 1956. Það var
sorgleg saga, en eins og þú sáir, svo
muntu uppskera, eins og þar stendur.“
„Ég veit ekki hvernig þér hafið kom-
izt yfir þessa sögu, herra,“ sagði Lagg
við mig, ,,en Káti Jumbo skildi eftir
tvennt af fólki sínu og hund. Hann ók
af stað með vagna sína klukkan ellefu
um kvöldið og bað MacVitie um að fara
til þeirra — MacVitie gamla. En hann
var að snæða og nennti ekki að fara.
Síðan var hans vitjað í aðra sjúkraheim-
sókn og kom ekki heim fyrr en á mið-
nætti næsta kvöld. Hann fann lítinn
hund, sem stóð og gelti fyrir utan dyrn-
ar hjá honum. En MacVitie.........“
„Já, hann var vondur maður, það er
alveg áreiðanlegt.“
„Þegiðu nú, George, dr. MacVitie
sparkaði í hundinn, svo að hann flaug
ofan í skurð. Síðan tók hann dyrabjöll-
una úr sambandi og fór að hátta. Nokkr-
um dögum síðar, þegar Wagnall varð
gengið um akra sína, leit hann inn í
hlöðuna og sá unga stúlku liggja stein-
dauða þar inni og ungan mann, sem var
alveg að dauða kominn, og lítinn vesl-
ings hund, sem ýlfraði nístandi.
Hann fékk MacVitie til að fara með
sér til hlöðunnar, en það var of seint.
Pilturinn lézt í sjúkrahúsinu. Þeir
reyndu að ná hundinum, en það var
enginn, sem gat það. Hann hljóp fram
og aftur, þangað til þau voru grafin í
kirkjugarði sóknarinnar, þá hljóp hann
út í skóginn, og enginn sá hann framar.“
„Nú — ekki,“ mótmælti George
gamli.
„Það er gamalt barnastofutal. Fólk
segir, að litli, grái loðhundurinn komi
aftur ár hvert á sama degi og krafsi
á dyrnar hjá lækninum og gelti til að
fá hann með til Wagnalls hlöðunnar.
Og hvort sem hann situr og snæðir,
hvort sem hann er drukkinn eða alls-
gáður, þreyttur eða hvíldur, blautur eða
þurr, veikur eða heilbrigður er hann
neyddur til að fara með. .... Hann dó
árið 1924......“
„Fólk verður víst dálítið smáskrítið
hér,“ sagði George gamli, „en sagt er
að MacVitie gamli fái ekki hvíld. Hann
er tilneyddur að rísa upp og fara til
hlöðunnar á hverju einasta ári, af því að
hann var svo harðbrjósta. í dögun í
fyrramálið getið þér jú farið þangað og
séð, hvort dyr læknisins eru ekki alveg
útkrafsaðar.“
„Þú ert orðinn reglulegur þvaðrari
í ellinni, George. Á þess háttar trúum
við ekki hér......Viljið þér ekki koma
með inn í salinn og horfa á sjónvarpið,
þangað til við lokum, herra?“
• • 5 E ■
SÆLL ■
■ Sflrfl
E KT A ■ ■ ■ ■ • 5 £■ ■
£ / R ■ 5'ú F ACt 0 RM
■ ■ fll V ■ AR ■ KHE
■ 5 • ■SRSIBK-SKRÐAF
A 5 KS'flK / ' PL OKKRR ■ UJ
F EY !<T U ■ fí ■ 'A ■ U'flö ■ SRfl
F fl 7 T r 5 K'/r/ fl 5 Kfl L L flR
• U ■ L fl U K fl ■ ÆL U ■ ÆU '0 L /
'fíRL flKrift ■ flL /ÍJYlflb'o sfl,9 •
■ fl ■ /?L/Z/Vv or ■ U 53 ■ U S
v v/y/v ■ 5 / R£ /IU R ■ o / '/ 5 K
' /ÍCT / R ■ 'flLflUR-flRÐ- 1 R
' RúÐRRÚ-nL-flUÐ - HR
-r R / /V 1 ■ /</ PP ■ S/9 • £RM
H ■ H ■ Al l s/<akk r ■ sh'ot
V H 'fl F ■ A ■ 'A ■ ££HUÐUVH/
t. F L'/ K ■ <r / l ■ ■ v r ■ m a ■
R • 5 /V J ‘0 fl R ■ U AF'AHCr ■ R£
£ ■ ■ r 'OLCr ■ BL'fl ■ r flUCrflR
F Cf R Ö 3 U Ct / 3 L E T r U R ! FJ N
5 / r/ wfí RCr u s/yi / & u R ■ ■
KROSSGÁTA NR. 34.
Geysimargar ráðningar bárust á verð-
launakossgátu númer 34. Dregið var úr
réttum lausnum. Verðlaun hlýtur að
þessu sinni Guðný Árnadóttir, Barkar-
stöðum, Svartárdal. Rétt ráðning birtist
hér að ofan.