Fálkinn - 29.05.1963, Page 33
Fuglinn sendi öðru hvoru huggunartíst
niður yfir hreiðrið og hallaði síðan und-
ir flatt, eins og hann ætti von á svari.
Ský dró fyrir sólu og hr. Sommer fékk
áhyggjur af, að eggin þörfnuðust nú
enn frekar hinnar móðurlegu hlýju.
Hann vonaði, að það færi ekki að rigna.
Króna eikarinnar var mjög þétt, enda
þótt blöðin væru ung og smá, ef til vill
myndu þau veita nóg skjól fyrir smá-
skúr. Fuglinn var orðinn rólegri, hann
hoppaði ekki alveg eins eirðarlaust um,
heldur fylgdist með hreiðrinu og hall-
aði undir flatt.
„Það getur vel verið, að hún snúi nú
aftur,“ heyrðist frá hr. Boden að ofan„
ekki mikið hærra en skrjáf vindsins í
blöðum eikarinnar, en hr. Sommer, sem
hafði alveg gleymt að andstæðingur
sinn væri til, hrökk í kút. „Þeir hafa
verpt hérna áður. Sömu hjón. Þetta er
heimili þeirra.“
„Nei, hafa þeir gert það?“ hvíslaði
hr. Sommer.
„Ég held áreiðanlega, að það séu þau
sömu. En það eru nú ein sex hreiður í
þessu tré.“
„Sex hreiður?“ endurtók hr. Sommer
hrifinn.
„Að minnsta kosti,“ svaraði hr. Bod-
en.
Hr. Sommer hallaði sér að stofninum
og íhugaði það. Sex hreiður .... það
var ekki sem verst fyrir eitt tré.
„Boden.“
„Ahr.“
„Hve gamalt er þetta tré?“
„Get ekki sagt það með vissu. Kann-
ski hundrað ára, kannski tæplega það.“
Hundrað ára. í hundrað ár höfðu
fuglarnir byggt hreiður í því. Það var
undarlegt að hugsa til þess.
Það dró frá sólu, meðan hann sat
og hugsaði um það. Gullnum bjarma
sló á blöðin umhverfis hann. Hann
gladdist yfir, að sólin skein. Hún myndi
halda eggjunum heitum, meðan hann
biði. Hann lokaði augunum og hlustaði
á öll hljóðin, sem urðu að Ijúfum klið
hérna uppi í þessum græna heimi milli
himins og jarðar. Hér var gott að vera.
Það fór ágætlega um hann á sléttri,
breiðri greininni. Stofninn, sem hann
hallaði sér upp að, var öruggur og góð-
ur, og samt var það eins og hann rugg-
aði óskynjanlega fram og aftur. Höfuð
hans seig niður á bringu. Hr. Sommer
svaf.
Þegar hann vaknaði allt í einu aftur,
vissi hann í fyrstu ekki, hvar hann var,
en síðan mundi hann það og leit snöggt
upp á greinina yfir höfði sér. Hún var
auð. Öll vellían sálar hans rauk út í
veður og vind. Fuglamóðirin var horfin.
Hún hafði yfirgefið egg sín. Það mundu
aldrei koma litlir, dúnmjúkir ungar,
sem voguðu sér varlega út á grein til
að flögra síðar út í ómælisvídd heiðloft-
anna. Hr. Sommer neyddi sig til að líta
í átt til hreiðursins og hrópaði næstum
því hátt af gleði.
Fuglinn var kominn aftur í hreiðrið
sitt. Brúnu vængirnir breiddust vernd-
andi yfir hnöttót, ljósblá eggin. Léttur
andvari vaggaði litlu fjölskyldunni
blíðlega. Sjaldan hafði hr. Sommer séð
slíka fegurð og frið.
Yfir honum heyrðist hvíslandi rödd:
„Það skeði, meðan þér sváfuð. Ég hef
aldrei séð neitt slíkt. Hún treysti
samt á yður, það gerði hún.“
„Já!“ svaraði hr. Sommer hreykinn.
Hvorugur þeirra mælti orð frá vörum
Framh. á bls. 36.
7
■
Nýr bíll
Nýlegur bíll
Notaður bíll
Beiglaður bíll
Ónýtur bíll
• •
Oskuhaugamatur
Þarf þetta að ske ef þér eigið VOLKSWAGEN ?
Varahluti í Volkswagen er auðveldara að fá en í
nokkurn annan bíl og þess vegna getur bíllinn yðar
litið út sem nýr væri — enda er endursöluverð
Volkswagen viðurkennt.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Heildverzlunin HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sími 11275.
FALKINN
33