Fálkinn - 24.07.1963, Síða 4
Fyrir nokkru brutust tveir fangar út úr Broadmoor i'angelsinu í
Fnglandi. Þeir höfðu verið dœmdir til dauða og var annar 17 ára
en hinn 35 ára. En flóttinn heppnaðist ekki algjörlega, þeim tókst
aðeins að flýja upp á þakið. Og þar dvöldust þeir í 31 klukkustund.
En um leið og lögregluþjónar reyndu að komast upp til þeirra,
brutu þeir flísar úr þakinu og hentu niður. En loks tókst fanga-
vörðunum að fá móður þess 17 ára að koma og biðja hann um að
koma niður. Hann taldi svo fclaga sinn á að koma niður. En þá
höfðu þeir félagar eyðilagt þakflísar fyrir nær hálfa milljón króna.
Sálfræ&in
Meðal þeirra uppeldisfræðinga, sem höfðu sótt um styrk við
uppeldismálastofnunina, var kynbomba nokkur. Hún hafði staðizt
inntökuprófið með miklum ágætum, — en kennarar stofnunarinn-
ar voru ragir við að veita henni styrkinn. Þeir gerðu nefnilega
ráð fyrir, að slík þokkadis yrði fljótlega föstnuð, og þá færu þeir
peningar, sem ríkið hafði eytt í hana til einskis. Hún var kölluð
fyrir forstöðumanninn, sem ætlaði að grennslast um hvað hún
hygðist fyrir.
— Vissuiega stóðuzt þér prófið með miklum ágætum, sagði hann.
En hvað ætlið þér að gera, þegar þér eruð búin hjá okkur?
— Ja, svaraði þokkadísin og blikkaði forstöðumanninn, —
eiginlega ætlaði ég heim, en ....
íþróttamyndin
Fjórða lota í hnefaleikakeppninni stóð yfir og enn var ekkert
bragð að bardaganum og kapparnir létu bara smá pústra dynja.
En þegar kapparnir byrjuðu að dansa svona í kringum hvorn annan
í fimmtu lotu, var áhorfendum nóg boðið. Þeir æptu og skræktu.
Á aftasta bekk heyrðist kallað:
— Hver andskotinn er að ykkur. Haldið þið, að þið séuð á
afvopnunarráðstefnu.
limferftin
Það stóð maður á gangstéttarbrúninni og beið þess að eitthvað
lát yrði á umferðinni, svo að hann gæti komizt yíir götuna. En
áður en hann hætti sér yfir sá hann mann á gangstéttinni hinum
megin.
— Heyrðu, hvernig komstu þarna yfir? kallaði hann.
Og hinn kallaði á móti:
— Það var svo sem enginn vandi. Ég er nefnilega fæddur
hérna megin.
Joe Louis var heimsmeistari í hnefaleik.
Hann var eitt sinn beðinn um að koma á
ritstjórnarskrifstofur bandaríska vikublaðs-
ins Life, en það ætlaði að birta myndaseríu
af honum.
— Jæja, verð ég fallegur á myndunum
ykkar? spurði Louis.
— Auðvitað, sagði einn af ljósmyndurum
blaðsins. En hvaða myndir viljið þér helzt.
— Þær, sem ég stend uppi á, svaraði hnefa-
leikakóngurinn.
★
í veiztlu, sem haldin var í Hollivúdd, sneri
hvassyrt leikkona sér að Rosalind Russel og
sagði:
— Mig hryliir við tilhugsuninni um að
vera 45 ára.
— Hvers vegna? spurði Rosalind Russell.
Hafið þér slæmt minni?
★
Eigið þér erfitt með svefn. Ef svo er þá
skuluð þið lesa ráðleggingar þessa fræga
fólks.
Rithöfundurinn Sophie Kerr segir: Ég dreg
bara andann mjög
ört, tuttugu sinnum,
en í tuttugasta og
fyrsta skiptið held
ég andanum eins
lengi og ég get niðri
í mér. Ef ég sofna
ekki, endurtek' ég.
En venjulega er ég
sofnuð áður en ég
reyni þetta í þriðja
skipti.
Leikkonan Grace
Allen segir: Ég raula með sjálfri mér gamlar
vísur. Það er dálítið erfitt að muna vísurnar
við söngva, sem maður hefur ekki sungið í
háa herrans tíð og meðan ég leita í huganum
að vísuorðunum, sofna ég venjulega.
Orson Welles er ekkert að tvínóna við
hlutina: Það þýðir ekkert annað en að ímynda
sér að klukkan sé fimm á svalköldum morgni,
og vekjaraklukkan hafi verið að hringja til
þess að rífa mann upp úr rúminu.
Cecil B. de Miile segir og ættu tónlistar-
unnendur að fara að dæmi hans:
Ég set mína uppáhaldssinfóníu á fóninn,
og þegar platan er búin, er ég venjulega
sofnaður.
★
Jules Romains er franskur rithöfundur og
kunnur mjög. Hann hefur aldrei verið neitt
hrifinn af hinu fagra kyni. í útvarpsumræð-
um, sem haldnar voru fyrir nokkrum árum,
sagði hann svo frá mismuninum á karli og
konu:
— Hafið þér tekið eftir því, góðir áheyr-
endur, ef talað er um karlmann, sem situr
og hugsar, þá segir maður að hann hugsi
um eitthvað, en ef um konu er að ræða, þá
segir maður, að hún hugsi um einhvern.
FÁLKINN