Fálkinn - 14.08.1963, Side 29
inn og tók út þau fjögur skot, sem eftir
voru.
Það voru laus skot. Trétapparnir
glottu framan í mig.
Laus skot! Jæja, Roger hafði þó látið
mig fá byssuna. Roger!
í einni svipan skildi ég hina snjöllu
áætlun Rogers. Ef hlébarðinn hefði ráð-
izt á mig, hefði það verið bráður bani
minn. Ég hefði ekki haft minnstu mögu-
leika! Sektartilfinning mín hvarf eins
og dögg fyrir sólu. Ég lagði verndar-
hendi yfir Jonnu — og í fyrsta sinn í
langan tíma fannst mér ég vera glaður,
frjáls og hamingjusamur.
Anita Ekberg
Framhald af bls. 13.
baða sig síðla nætur í ísköldu vatni í
Fontana di Trevi. Hún vakti aðdáun
samstarfsfólksins fyrir, hvað hún var
hraust að baða sig í ísköldu vatninu.
Þegar kvikmyndin var sýnd í Cannes,
skrifaði sænskur gagnrýnandi á Þá leið,
að þegar hún hyrfi úr myndinni eftir
fyrsta hluta, skildi hún eftir autt rúm,
því að eftir það vantaði aðalstjörnuna.
Þegar Anita Kerstin Marianna Ek*
berg var ung stúlka í Malmey, las hún
mikið af bandarískum leikarablöðum og
hengdi myndir af stjörnunum upp á
vegg. Hana dreymdi um Hollywood.
Nokkrum árum síðar stóðu þessir
sömu kvikmyndaleikarar í biðröðum til
að fá að bjóða henni út.
í fyrstunni átti Anita í erfiðleikum og
móðir hennar skrifaði henni:
Komdu heim, kæra barn. Það er gott
að koma til Svíþjóðar, ef þú átt í erfið-
leikum.
— Ég kem heim-----------þegar vel
gengur, svaraði Anita.
Fólk er brjálað, þegar það óskar sér
að komast til tunglsins, segir hún. Hér
á jörðinni eru svo margir dásamlegir
hluttr.
Biaðamaður nokkur sagði, að hún
væri Garbo, Pola Negri og Gloria Swan-
son klædd fötum nútímans.
Anita er ákaflega hagsýn í sér. Henni
þykir gaman að gera við borðlampa og
bíla. Hún getur saumað og eldað á við
hverja aðra. Hún málar veggi, töskur
og fleira.
Hún er spaugsöm og hún er hænd að
börnum og dýrum. Hún syndir og fer
í útreiðartúra og í garðinum sínumhagar
hún sér eins og útlærður garðyrkju-
maður.
Anita var eitt þeirra átta barna, sem
Gustaf og Alva Ekberg eignuðust, en
þau dreymdi ekki um að dóttirin ætti
eftir að verða svona fræg.
Til að þekkja Anitu er nauðsynlegt
að þekkja móður hennar.
Táknrænt er kvöldið, þegar Alva
mamma stóð á fætur og fór í símann.
— Halló.
— Mamma, þetta er Anita. Hvernig
líður þér?
— Vel. Hvernig líður þér í London?
Framh. á næstu síðu.
Ný:tarleg samkeppni um beztu
auglýsinguna, sem tf'rzt hefur
á baksíðu FAIKANS á þessu ári
FÁLKINN efnir nú til nýstárlegrar samkeppni meðal lesenda
sinna. Keppnin er í því fólgin, að Iesendur velja beztu aug-
lýsinguna, sem birzt hefur á baksíðu Fálkans á þ’essu árí.
Á baksíðu þessa blaðs birtust átta auglýsingar og fleiri munu
birtast í tveimur blöðum síðar á árinu. Þegar lesendur hafa
valið eina auglýsingu í hvert sinn verður kosið til úrslita um
þær þrjár baksíður. Auglýsingin, sem sigur hlýtur í keppn-
inni verður síðan birt fljótlega á árinu 1964, auglýsendan-
um að kostnaðarlausu. — Meðal allra þeirra lesenda, sem
rétta auglýsingu velja, verður dregið um verðlaun — mynda-
vél fyrir um 2000 kr. frá Hans Petersen.
TAKIÐ ÞÁTT I SKEMMTILEGRI SAMKEPPNI. ÚTFYLL-
IÐ SEÐILINN HÉR AÐ NEÐAN OG SENDIÐ HANN INN-
AN ÞRIGGJA VIKNA. UTANÁSKRIFTIN ER: FÁLKINN,
PÖSTHÓLF 1411, REYKJAVIK, BAKSÍÐUKEPPNI.
BEZTA BAKSIÐAN AÐ ÞESSU SINNI ER AÐ MINUM
DÖMI FRÁ:
NAFNri
HEIMILI:
FÁLKINN 29