Fálkinn


Fálkinn - 04.09.1963, Qupperneq 6

Fálkinn - 04.09.1963, Qupperneq 6
Götuviðgerðir. Kaeri Fálki. Veizt þú hvers vegna sama gatan er rifin upp þrisvar eða fjórum sinnum með loftbor- um og látum til þess að gera við vatnsleiðslur, skolpleiðsl- ur eða malbikið sjálft? Það er búið að gera þetta þrisvar í sumar við þá götu, sem ég bý við. Og ég hef stundum varla sofið dúr. Þú verður náttúrlega hissa, þegar ég segi, að ég hafi ekki sofið dúr, en svo er mál með vexti, að ég er á næturvakt aðra hvora viku, og verð því að sofa á daginn. Nonni. Svar: ÞaO getur alltaf komiO fyrir aO leiOslur í götu bili svo oft og ejckert viö þvi aö segja þótt gert sé viö á daginn. ílvernig eiga verkamennirnir aö vita aö þú sofir á daginn, en ekki á nýttiinni eins og venjuiegt fólk. Um kvikmyndir, Góði Fálki minn. Þú ert alltaf að kynna kvik- myndir og því ættirðu að geta sagt mér það sem ég spyr þig um. Á sumrin er ég venju- lega að vinna í bænum og á kvöldin veit ég ekki hvað ég á af mér að gera. Það verður því oftast úrræðið að skreppa í bíó. En ég hef rekið mig á, að það eru mikið lélegri myndir sýndar á sumrin en á veturna. Hvernig stendur á þessu. Palli. Svar: Og œtli þaö sé ekki alveg sitt á livaö. Þaö fer eftir þvl livaöa myndir eru á markaöinum er- lendis. Ryk. Segið mér vitið þið um nokkuð rykbindiefni eða leið til þess að losna við ryk í herberginu hjá sér. Ég hef reynt allar leiðir, opnað glugga og allt hvað er, en rykið hrúgast upp hjá mér. Hvað á ég að gera? Piparsveinn. Svar: Náöu þér í konu, eöa ef þú nennir því ekki, taktu þá klút og þurrkaöu af húsmununum og ryksugaöu teppiö og stólana. Hvert liggur vegurinn? Kæri Fálki. Það hefur oftlega verið um það skrifað að vegir á íslandi væru illa merktir og án efa á mikið eftir að skrifa um þetta efni þar til vegamerkingar verða komnar í sæmilegt horf. Og það eru tvenns konar vegavísar sem gefa til kynna alla afvegi frá aðalvegi og þess háttar. Og í öðru lagi ökumerki sem gefa til kynna ástand vegarins svo sem FOREIGN TRADE COMPANY centrozap POLAI\D KATOWICE, LIGOAIA 7 P.O. BOX 825 mnn»iir uied: — gas- og logskurðartækjum. i'hjtuv uít: — háþrýsti kolvetnisgas-rafala — stilli-loka fyrri súrefnis, kolvetnis og aðrar gas- tegundir. — fjöltækni logsuðutæki til að skera og sjóða hvers- konar ir.álma. beygjur, brýr eða annað fram- undan. í sumarleyfi mínu fór ég austur á land óg rriér farinst öllum yegamerkingum þar ábótavant sérstaklega öku- merkjum. Nú getur það varla talizt nema heiðarleg krafa þeirra sem vegina aka að þeir viti svona með nokkurri vissu hvað þeir eru að fara og hvort þeir eru á réttri leið. Þetta er mál sem þarf úr- lausnar nú þegar. Ökumaður. Svar: Vissulega má þaö til sanns- vegar færa aö þaö sé rétt hjá bréfritara aö vegamerkingum sé í mörgu ábótavant hjá okkur. En minnast má í þessu sambandi sem oftar aö Rómaborg var ekki byggö á einum degi. Þetta á sjálfsagt eftir aö lagast þegar aöstœöur leyfa. Leiðinlegir menn í strætó. Háttvirta blað. Það eru margir hlutir sem setja má út á samborgarann bæði stórir og smáir. Ég ætla mér ekki að skrifa langt bréf að þessu sinni eða taka til meðferðar sambýli manna al- mennt heldur drepa lítillega á eitt atriði í þessu sambandi. Mér hefur alltaf fundizt það fólk leiðinlegt, sem stöðugt er flissandi í strætisvögnum. Ég á hér ekki við krakka skamm- irnar heldur fullorðið fólk, sem er að stinga saman nefj- um og hlæja. Þetta er að mínu áliti megnasta ókurteisi og getur undir vissum kring- umstæðum verið mjög óþægi- leg að ekki sé meira sagt. Ég minnist í þessu sambandi at- viks sem nýlega átti sér stað í Hafnarfjarðarvagninum. — Þetta var að kvöldlagi og ég var að fara suðureftir á kvik- myndasýningu. Við hlið mér í aftasta sætinu sátu tveir ungir menn sem alla leiðina tautuðu og bentu að farþeg- unum um leið og þeir hlógu eins og hálfvitar. Einn sem fer iðulega með strætisvagni. Svar: Vissulega er þetta hin grófasta ókurtéisi og heimska. En þaö er algjörlega ástœöulaust aö láta þetta á sig fá þvi aö þaö er ekki endilega öruggt aö þaö sé veriö aö lilœja aö þér. Láttu ókurteisi annarra veröa þér leiöarljós þinnar kurteisi gegnum lífiö. Þaö eru ennfremur miklar líkur fyrir því aö þessir tveir í Hafnar- fjaröarvagninum liafi veriö illa uppaldir. 6 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.