Fálkinn - 04.09.1963, Qupperneq 12
miamgnH
EíaMa
Sjáðu til, ég er gamall í starfinu og
ef það er nokkuð, sem ég hef vit á þá
er það það, hvort nýliði hafi hæfileika
til þess. Mér er nóg að líta á manninn.
Það var þess vegna, sem ég vissi, að
Mort Samson dugði ekki um leið og ég
sá hann — þegar ætlunin var, að hann
ynni með okkur að verki. Hvað útlitinu
viðkom skorti hann ekki neitt. Hann
var hár, velvaxinn ungur maður með
slétt dökkt hár, viðkunnanlegur náungi
með góða rödd. Hann hafði einnig feng-
ið gott uppeldi. Hann var ekki alveg
fínn maður — en hér um bil. Samt sem
áður vissi ég það strax.
— Morty, sagði ég, glæpabrautin á
ekki við þig, þú getur rólegur treyst
orðum mínum. Þú ert einn af þeim,
sem óheppnin eltir. alltaf. Ég hef þíuS
á tilfinningunni.
Nú hann fór auðvitað ekki eftir því,
sem ég sagði, það var alltaf eitthvað
sem fór aflaga, og í fimm ár var hann
ýmist bak við rimla eða kominn út
aftur. Ég vissi, að það myndi ekki líða
á löngu, þangað til hann tæki þátt í
einhverju alvarlegu og yrði dæmdur í
ævilangt fangelsi. Það var hann líka.
Ef einhver hefur lent illa í því, þá er
það hann og látum það vera aðvörun
til sérhvers ungs manns, sem ætlar að
feta glæpabrautina. Látið spá fyrir yður
í stjörnurnar fyrst eða komið og talið
við mig.
Sjáið til, Morty hafði valið gistihúsin,
en þau eru auðveld viðfangs, einungis
ef maður er nógu frekur og er heppinn.
Morty var hið fyrra, en ekki það síðara.
Hann átti það til að rekast inn um níu-
leytið að kvöldi í eitt af dýrari gisti-
húsunum. Hann sagði dyraverðinum, að
hann vildi tala við þennan og þennan á
herbergi númer þetta og þetta, (hann
hafði athugað þetta gaumgæfilega áður)
og svo hringdi dyravörðurinn upp. Ef
ekki var svarað þýddi það opna braut
fyrir Morty, ef um hið gagnstæða var
að ræða, þá gekk Morty að lyftunni og
lét eins og hann væri að fara upp á
herbergið. Auðvitað fór hann ekki þang-
að og næsta kvöld reyndi hann við
annað gistihús.
í þessu sérstaka tilfelli hafði Morty
sigtað á gistihúsið Galaxy, sem er heil
höll með gosbrunnum í garðinum, næst-
um eins stórt og það, sem er á Trafagar
Square. Nú, en hann gekk inn á bar
til að fá sér drykk í mestu makindum,
meðan hann beið eftir því, að klukkan
yrði níu. Það var ekkert athyglisvert
fólk á barnum fyrir utan fallega Ijós-
hærða stulku, sem var ein,og sem Morty
biikkaði án þess að fá annað í staðinn
en kuldalega augnagotu. Það hafði
engin áhrif á hann. Hann var að vinna
þetta kvöld.
Um níuleytið fór hann að afgreiðslu-
borðinu og bað dyravörðinn, að til-
kynna komu sína til ungfrú Estellu
Dalamain á herbergi númer 303. Hann
ammana iiiiiiiiiinniiiii—hiiiim hhiih
12 FÁLKINN