Fálkinn - 04.09.1963, Side 19
Það er stórkostlegt. .. það er of
stórkostlegt. Viðurkenndir starfsmenn
sænska útvarpsins ... efahyggjumenn,
sátu í síðustu viku sem frosnir fyrir
framan útvarpið á litlum sveitabæ á
bökkum stöðuvatns fyrir sunnan Stokk-
hólm. Þeir hlustuðu skelfdir á drauga-
raddir dáinna í því sem nefnt hefur
verið „Fjórða víddin“. Stundum eru
greinileg, hljóð, sem ekki er útvarpað
þetta greinileg hljóð . . . stundum ó-
frá neinni jarðneskri stöð.
— Ég er skelfdur, sagði verkfræðing-
urinn Kjell Stensson — hér er ekki um
venjulegar truflanir að ræða. Þekking
okkar á útvarpi gefur enga skýringu á
fyrirbærinu. — í fjögur ár hefur hinn
rússneski óperusöngvari og málari feng-
izt við raddirnar að handan. Hann fær
alls staðar bezta orð sem sannsögull
maður . .. Tilkynningar komu á blönd-
uðu hrognamáli — og aðeins þegar
segulband er tengt við.
Chessman hefur verið meðal þeirra,
sem hafa kynnt sig. Hann sagði á ensku:
— Nú er ég raunverulega dáinn. Ég
flýg, ég flýg!
Annars segja hinir látnu ekki margt
þýðingarmikið. Það kemur fram, að þeir
geta séð jarðbúa eins og í gegnum
stjörnukíki. Það lítur út fyrir að radd-
ir þeirra og hljóð séu þau sömu og okk-
ar. Margar raddir koma í útvarpinu:
„Við erum ekki dauðir ...“
Friedrich Jurgenson á nú áttatíu seg-
ulbönd með röddum. Enginn getur gef-
ið á þessu skýringu, nema Jurgenson
hafi samið við útvarpsþuli á fjarlæg-
ustu hornum heim ... Og þá er spurn-
ingin, hvernig þeir gætu sent persónu-
legar tilkynningar til Júrgenson á svo
áberandi hrognamáli.
— Á því er enginn vafi. Það eru þeir
látnu, sem hér tala, segir hinn sænski
listamaður. Enginn getur mótmælt hon-
um.
Friedrich Jurgensen, sem buiö heiur á
ótal stöðum víða um heim og talar
átta tungumál reiprennandi. Hann full-
yrðir að hann geti „fengið“ raddir
framliðinna úr geinm’f—
Vantrúað fólk og
sérfræðingar í út-
varpsvirkjun hafa
tekið sér stöðu í
garðinum suður af
Stokkhólmi. Allir
viðstaddir heyrðu
draugaraddirnar, en
enginn gat gefið
neina tæknilega
skýringu á fyrir-
brigðinu.
FÁLKINN
19