Fálkinn - 18.09.1963, Síða 7
Um knattspyrnu.
Nú er íslandsmótinu í knatt-
spyrnu lokið sem betur fer. Ég
segi sem betur fer því þá fer
maður sennilega að hafa frið
fyrir þessu fótboltakjaftæði
sem einkennir blöðin á sumrin.
Það er að mínu áliti alveg óþol-
andi. Og hvað geta þessir menn
svo sem í þessari íþrótt á heims-
mælikvarða. Ekki nokkurn
skapaðan hlut. Nei, það væri
réttast að banna þetta. Ég fer
aldrei á kappleiki og hef ekki
ætlað mér að gerá. Ég tel þá
menn hamingjusama sem aldrei
koma nálægt þessari vitleysu.
N. M.
Svar:
Knattspyrnan er um þessar
mxindir vinsœlasta íþróttin liér-
lendis og þeir eru ekki fáir sem
leggja þaö á sig aO fara nokkurra
klukkutíma akstur ef þeir vita um
skemmtilegan leik. Og ef viö eig-
um aO vera álveg lireinskilnir þá
er þetta feglulega skemmtileg l-
þrótt. Því er þaö okkar ráö aö þú
s kellir þér eittlivert kuöldiö á
völlinn þegar skapiö og veöriö er
gott. ÞaÖ mundl ekki koma okkur
aö óvart þótt þú skemmtir þér vel.
Þú spyrö í þínu bréfi hvaö þessir
menn sem leggja stund á þessa
iþrótt geti svo sem. ÞaÖ má vel
vera aö þeir séu ekki þeir beztu
í heiminum en viö drögum þaö
elcki í efa aö þeir eru betri en þú
og þá er nokkuö sagt. Þaö er held-
ur ekki nauösynlegt aö vera bezt-
ur heldur hitt aö hafa ánægju af
leiknum. Þá er tilganginum náö.
Hins vegar gerum viö ráö fyrir
aö þú yröir stoltur af þínum
drengjum ef þú fréttir einn dag-
inn aö þeir væru orönir heims-
meistarar. Og svo er þaö aö lokum
síöasta setningin i þínu bréfi. Okk-
ur viröist þú ekkert sérlega liam-
ingjusamur þótt þú komir ekki
nálœgt knattspyrnu. Þú hefur
kannski aldrei hugleitt þaö í fullri
alvöru aö þú yröir liamingjusam-
ur maöur ef þú kæmir nálægt
knattspyrnu.
ÍJtvarp í bíó.
Það getur varla talizt stór
atburður þótt maður eina
kvöldstund skreppi í bíó en
það er margt sem getur borið
fyrir augu og eyru þótt ekki
sé nema ein bíóferð. Ég fór
um daginn í Tónabíó að sjá
myndina Einn, tveir og þrír.
Þeita er ein su sKemmmeg-
asta mynd, sem ég hef séð
hin seinni ár og á hinn ís-
lenzki texti þar stóran hlut
að máli. Ef texti væri ekki
með myndinni þá er hætt við
að maður hefði misst af mörg-
um brandaranum. Vil ég
þakka Tónabíói alveg sérstak-
lega fyrir að hafa sett texta
með þessari mýnd. En það var
nú ekki aðalatriðið með þessu
bréfi að þakka bíóinu heldur
hitt að segja frá atviki sem
kom fyrir meðan á sýning-
unni stóð. Þetta var fimm
sýning á sunnudegi og fyrir
norðan voru þeir að ljúka við
íslandsmótið í knattspyrnu.
Einn sýningargestur, sem
nærri mér var staddur í saln-
um hafði tekið með sér út-
varpstæki og hlustaði á lýs-
ingu á leiknum meðan á sýn-
ingunni stóð. Nú er ég síður
en svo á móti knattspyrnu
og geri þá játningu hér að ég
fer iðulega á völlinn og
skemmti mér oft vel þar. En
hitt vil ég leyfa mér að draga
í efa að saman fari lýsing á
knattspyrnukappleik og kvik-
myndasýning. Ef menn hafa
svona mikinn áhuga á að
hlusta á lýsinguna þá eiga
þeir að gera slíkt heima hjá
sér en ekki að neyða lýsing-
unni upp á aðra í bíó.
Sýningargestur.
Tjaldstæði á Akureyri.
Háttvirta blað.
Ég sendi ykkur fáeinar lín-
ur sem ég vænti að þið birtið
við fyrstu hentugleika í Póst-
hólfinu.
Ég las í einhverju blaðanna
fyrir skömmu bréf frá ein-
hverjum sem kallar sig Ferða-
lang og það varð þess vald-
andi að ég skrifa þetta bréf.
Ég vil áður en lengra er hald-
ið taka það fram að mér hef-
ur alla tíð líkað sérlega vel
við Akureyringa og því bet-
ur sem ég hef kynnzt þeim
nánar. Auk þess er Akureyri
snyrtilegastur bær á fslandi
og gætu önnur bæjarfélög tek-
ið sér þá til fyrirmyndar um
marga hluti.
Þessi Ferðalangur gerir að
umræðu tjaldstæði sem ferða-
mönnum á Akureyri er ætlað
til umráða. Hann telur það
snjalla hugmynd að koma
upp þessu tjaldstæði og þarf
ekki að eyða orðum að því.
Staðsetningu þess telur hann
nokkuð góða. Þetta atriði stað
setning stæðisins hefur verið
nokkuð gagnrýnd. Sumir telja
þetta of nærri bænum og hafa
þeir nokkuð til síns máls. Þá
leiur nann að stæoiö hati lett
mikilli nauð af Akureyring-
um. Má það vel vera en mér
er ókunnugt um að svo sé.
Þá kemur Ferðalangur að Því,
sem hann kallar slæman galla
á þessu stæði og það eru
drykkjulæti um nætur. Segir
hann þau oft mikil og standi
lengi nætur og mun þetta í
nokkrum tilfellum vera rétt.
Hann tekur þó skýrt fram að
Akureyringar eigi ekki hlut
að máli og þar er ég honum
ósammála. Ég gisti þarna
tvær nætur um eina helgi í
sumar og báðar þessar nætur
var talsvert um drykkjulæti.
Ég hygg þó að ekki hafi ein-
göngu verið ferðamenn sem
stóðu að þessum látum heldur
og innfæddir líka. Eins og all-
ir vita hafa Akureyringar sér-
stakan talanda og þennan tal-
anda mátti oft heyra meðan
lætin stóðu yfir. Það væri líka
ólíkt Akureyringum að vilja
eKKÍ taka þátt i sma gieösKap
því þeir eru selskapsmenn
miklir. Til þess að koma í
veg fyrir ólæti þarf eins og
bréfritari bendir á að hafa
gæzlu á staðnum. Það er líka
til önnur leið og hún er sú
að hafa tvenn stæði. Annað
ætlað fólki sem vill taka líf-
inu með ró og hitt fyrir fólk,
sem ekki læðist í háttinn.
Bönn og eftirlit eru ekki alltaf
heppileg þó eitthvert eftirlit
sé alltaf nauðsynlegt. Um það
höfum við svo fjölmörg dæmi.
Svo þakka ég birtinguna,
það er að segja ef bréfið birt-
ist.
Ferðamaður.
Svar til Kalla:
Eftir bréfi þínu ,aö dæma
mundum viö vilja álíta aö bezt
væri fyrir þig aö koma hvergi
nærri þessu máli. Þaö er enginn
kenndur þar sem hann ekki kem-
ur.
Lykitlinn nö
sparnaði við upphitun á ibúð yðar er Rafgeisla-
hitun. Hafið samband við okkur og við segjum
yður hver mánaðareyðsla yðar muni verða með
RAFGEISLAHITUN H.F.
Grensásveg 22 — Sími 18600.
FALKINN