Fálkinn - 18.09.1963, Qupperneq 24
KVENÞJOÐIN
Ritstjóri: Kristjana Steingrímsdóttir,
húsmæðrakennari.
GrœHmettiréttir
Berið grænmeti á borð að minnsta kosti einu
sinni til tvisvar í viku, án kjöts eða fisks, þann
stutta tíma, sem úr nógu er að velja.
Munið að grænmetið á að vera nýsoðið og
hæfilega soðið. Sjóði grænmeti of lengi missir
það bezta bragðið, fallegasta útlitið, auk þess
sem verðmæti vítamínsins fara til spillis. Sjóð-
ið það frekar of lítið en of mikið. Bezt er það
gufusoðið.
Með grænmetinu, sem geta verið 2 eða fleiri
tegundir eftir því sem til er, er
gott að bera smjör eða ein-
hverja sósu, sem búin er til úr
grænmetissoðinu og mjólk, t. d.
ostasósu, sveppasósu, steinselju-
sósu eða sítrónusósu.
Fallegt og gott er að skreyta
fatið með grænum salatsblöð-
um, tómatbátum, agúrkusneið-
um og klipptri steinselju.
Hvítkál í móti.
10—12 stór hvítkálsblöð.
4 tómatar Salt, pipar
4 msk. brauðmylsna
4 msk. rifinn ostur
2 msk. bráðið smjör.
Hvítkálsblöðin soðin í létt-
söltuðu vatni, þar til þau eru
allt að því meyr. Eldfast mót
smurt með smjöri, hvítkáls-
blöð tómatsneiðar, brauðmylsna
og ostur sett í lög í mótið, salti
og pipar stráð yfir, brædda
smjörinu jafnað ofan á. Lok
sett á mótið og það sett
inn í ofn við vægan hita um
% klukkustund.
Smá hrukkur í kringum augun, þurfa ekki að bera
vott um háan aldur. Þær geta komið á unga aldri hjá
þeim, sem hafa þann vana að píra. Orsökin getur líka
verið sjóndepra eða nærsýni og svo dvöl í of mikilli birtu.
Þar sem hörundið í kringum augun er mjög fíngert,
þarf að gæta varfærni, þegar krem er borið í kringum
augun. Notið aðeins fingurgómana og það svo léttilega sem
spilað væri á hljóðfæri. Það nægir til að örva blóðrásina
og koma kreminu inn í hörundið.
1. Rennið einum eða tveim fingrum léttilega yfir augn-
lokið, byrjið við nefrót út að gagnauga.
2. Spilið léttilega með 2—3 fingrum innundir augað í
áttina að nefinu.
3. Að lokum er barið léttilega í hring við gagnaugun.
24
FALKINN