Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 4
JERtiY WÆWTS
Af vini okkar Jerry er það a8 frélla að hann hefur
nýlega lokið við eina myndina enn „The nutty Professor", og
eigum við sjálfsagt eftir að brosa að henni sem öðrum hans
myndum. Og hér er mynd af honum í þessari nýju kvikmynd.
Annars lásum við það nýlega í blaði, að síðan Jerry hætti að
leika með Dean Martin hefði honum farið stórlega fram og
hefði aldrei verið vinsælli en einmitt nú. En allt um það þá er
alltaf gaman að sjá Jerry.
ceife mciiAnn
Einn dag ákváðu torelurar tunnar sex ára gömlu Marie Nuttall að flytja
búferlum til Ástralíu — en sú litla tók þeim tíðindum heldur fálega. Hún
fór að gráta og sagðist þá aldrei fá að sjá stjörnuna Cliff Richard aftur
og það var henni mikill harmur. — Cliff frétti af þessu og heimsótti litlu
stúlkuna og þá var þessi mynd tekin af þeim og þið getið rétt ímyndað
ykkur hamingju þeirrar litlu.
VMVIAJY LEIGIM OG SYIIML BURTON
Þið þekkið sjálfsagt þessar tvær konur á myndinni, þær Vivian
Leigh sem gift var Lawrence Oliver og Sybil Burtons sú sem gift
var Richard Burton þar til Liz Taylor komst í spilið. Og myndin
virðist bera það með sér að þær séu í góðu skapi konurnar og
kannski hafa þær ástæðu til að gleðjast.
MMÍR VABO EEMiM UM SEL
Mér varð ekki um sel þegar ég frétti af
frænda mínum, sem gekk á land í Hafnar-
firði, fyrst var hann grýttur og laminn i
fjörunni, síðan var hann settur í baðker svo
hann fékk lungnabólgu og svo komu þeir
frá Alþýðublaðinu . . .
4
FALKINN