Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 34
Heitt ostabrauö
Annaðhvort getum við alls ekki þolað
heitan »st, eða okkur finnst það eitt af
því bezta, sem við leggjum okkur til
munns og sem betur fer eru fleiri í
seinni hópnum. Úr gömlu eða nýju
brauði, allskyns afgöngum úr matar-
skápnum og svo náttúrlega osti og
kryddi, karrý, papriku, sinnepi, pipar,
koma gómsætir réttir úr ofninum.
1. Ostabrauð með reyktu fleski.
Skerið skorpuna af brauðinu, ristið
það annars vegar, smyrjið hina hliðina
þunnt með smjöri, stráið þykku lagi
af rifnum osti þar ofan á. Setjið litla
bita af reyktu fleski ofan á ostinn. Hrær-
ið örlítið af cayennapipar með Vi tsk.
af sinnepi, sett ofan á. Sett inn í heitan
ofn, þar til osturinn er búinn að fá lit.
2. Ostabrauð með chutney.
Ristið brauðið annars vegar; smyrjið
chutney á hina hliðina og leggið þykka
sneið af osti á. Látið inn í heitan ofn,
þar til osturinn er orðinn fljótandi og
gylltur á lit.
3. Ostabrauð með rækjum
og humar.
Skerið hveitibrauðsneiðar í þríhyrn-
inga. Búið til þykka, hvíta sósu. Setjið
rækjur og humar saman við. Sett á
brauðsneiðarnar og þar ofan á bragð-
sterkur ostur, rifinn. Smjörbitar settir
ofan á ostinn. Sett í heitan ofn, þar til
osturinn er bráðinn.
4. Ostabrauð með möndlum.
Flysjið möndlurnar, saxið þær gróft,
ristið þær litillega í smjöri. Blandið
saman rifnum osti og rjóma, svo úr
verði þykkur grautur, setjið ríflega
helminginn af möndlunum saman við,
kryddað með salti og pipar. Sett
á hveitibrauðsneiðar, afgangnum af
möndlunum stráð yfir. Steikt í vel
heitum ofni, þar til komnir eru dökkir
kantar.
5. Heitt ostabrauð
með kryddsíld, lauk og eggi.
Skerið út kringlóttar, skorpulausar
sneiðar af rúgbrauði, ristið þær annars
vegar. Smyrjið hina hliðina lítillega
með smjöri og setjið þar ofan á eggja-
rauðu, smáttsaxaða kryddsíld (ansjós-
ur) og dálítið af smátt skornum lauk.
Rifnum osti stráð yfir. Sett inn í heitan
ofn. Borið fram með kældum tómat-
safa.
6. Heitt ostabrauð með vínberjum.
Skerið skorpuna af hveitibrauði,
smyrjið það annars vegar með smjöri,
raðið hálfum, steinlausum vínberjum
þar ofan á . Ostsneið lögð ofan á vín-
berin. Sett inn í heitan ofn, þar til ost-
urinn er bráðnaður og gylltur.
<■■■*■
34
FALKINN