Fálkinn - 20.01.1964, Blaðsíða 25
Þa8 virSist harla ótrúlegt að gullnáma, sem sannar-
lega hafði að geyma dýran málm, sem metin var á
milljónir sterlingspunda skyldi týnast ... og jafnvel
enn ótrúlegra að einhver virðist halda yfir henni
verndarhendi, reiðubúinn að drepa ef þörf krefur ...
f
Það má vissulega segja með rétti. að þeim detti allt
í hug í Ameríku, en það kom mér þó skemmtilega á
óvart, þegar ég nýlega rakst á bridgeþraut í stórri aug-
lýsingu frá kaffifyrirtæki í einu af stærstu blöðum
Bandaríkjanna. Há verðlaun voru I boði fvrir að leysa
þrautina og við skulum líta á hana.
Meðan Rommel stóð í herferðum sankaði hann að sér mikl-
um fjársjóðum, gulli og gimsteinum og jafnvel listaverkum.
En megnið af auðæfum hans er týnt og tröllum gefið, and-
virði þeirra var talið milli 30 og 35 milljónir. Sumir þykjast
þó vita hvað orðið hefur af þeim ..
Undir lok heimstyrjaldarinnar síðari Iét lítið kaupskip úr
höfn í Korsiku. Svo var sagt að áhöfnin hafi gert allt til
þess að láta skipið líta hversdagslega út. Þetta litla skip var
ekki einu sinni búið vopnum.
En um borð voru auðæfi meiri en dæm> eru til að skip
hafi flutt. í sex vatnsþéttum kÖssum í lestinni var jafnvirði
30 til 35 milljóna sterlingspunda í gulli, silfri, gimsteinum
og listaverkum.
Um borð í skipinu voru samankomin auðæfi sem Rontmel
hafði viðað að sér þau ár sem hann stjórnaði herferð
sinni um Norður-Afríku.
f öryggisskyni hafði fjársjóðurinn verið fluttur á laun til
Korsíku. Nú hafði sú skipun verið gefin að fjársjóðurinn
skyldi fluttur til Berlínar þar sem hans var þörf. Afferma
skyldi skipið í ítalskri höfn og síðan skyldi farmurinn fluttur
með sérstakri lest til Berlín.
Þó fór svo að draumur nazista um að verja fjársjóðnum
til að halda styrjöldinni til streitu, rættist aldrei. Skipið náði
aldrei höfn.
Mennirnir, sem gættu þessa dýra farms voru fjórir liðs-
foringjar úr Afríkuherdeildinni og tveir aðrir liðsforingjar.
Af yfirlögðu ráði var varðliðið þunrskipað til þess að vekja
ekki grunsemdir.
Þó varð ein lítil tilviljun til þess að fjársjóður Rommcls
komst í hættu.
Skömmu eftir að skipið lét úr höfn birtust flugvélar Banda-
manna og gerðu á það árás. Flugvélar þessar voru á venju-
legu könnunar- og árásarflugi. Þýzku liðsforingjarnir urðu
strax flemtri lostnir er þeir sáu fram á að hinn dýri farmur
kynni að lenda á hafsbotni.
Þeir skipuðu skipstjóranum að snúa við og stefna á grunn-
sævið undan strönd Korsíku. Enginn veit með vissu hvað þeim
var í huga, en ýmsir telja að þeir hafi haldið að Bandamenn
hefðu komist á snoðir um farm skipsins og flugvélarnar væru
sendar í þeim tilgangi einum að granda auðæfunum.
í það minnsta gáfu þeir skipstjóranum skipun um að
varpa akkerum. Síðan var kössunum sex lyft fyrir borð
og þeir látnir sökkva í djúpið.
Þarna hurfu 30 milljónir sterlingspunda virði í blátt Mið-
jarðarhafið. Og síðan hefur enginn augum litið fjársjóð
Rommels.
Það hefur sýnilega verið ætlun liðsforingjanna að koma
aftur og sækja fjársjóðinn í góðu tómi. En ekki fengu
þeir allir ráðrúm til þess.
Það þarf engan að undra þótt herstjóm Þjóðverja væri
síður en svo ánægð með þessar aðgerðir. Er ljóst var nokkurn
veginn um staðinn sem fjársjóðnum hafði verið sökkt á, voru
liðsforingjarnir fjórir leiddir fyrir herrétt. Enginn vafi gat
leikið á um dómsorðið þegar í húfi voru þvílík verðmæti.
Þeir voru skotnir, allir fjórir.
En nú fór að síga á ógæfuhlið fyrir Þjóðverjum og þeir
höfðu öðrum hnöppum að hneppa en gera út björgunarleið-
angur til Korsíku. Og loks var svo komið í stríðslok að ein-
ungis tveir menn höfðu einhverja hugmynd um hvar auðæfi
Rommels voru niðurkomin. Það voru liðsforingjarnir tveir.
Opinberum skjölum hafði verið brennt þegar sókn
Bandamanna nálgaðist... nú var ekki á neitt að treysta
nema minnið.
Síðan hefur ýmislegt komið á daginn um fjársjóð
Rommels.
Tekist hefur að hafa upp á öðrum liðsforingjanum.
Franska ríkisstjórnin hefur þegar látið fara fram rann-
sókn eftir að hafðist upp á eina verðinum sem eftir lifir.
Honum voru boðin 7 punda laun á viku fyrir lífstíð
ef hann gæti vísað á fjársjóðinn.
Því miður mistókst áætlun Frakkanna. Nú er brezk nefnd
þeirrar skoðunar að maðurinn hafi vísað þeim á villigötur
þar eð honum hafi þótt 7 pund á viku ekki nægileg verð-
laun fyrir 30 milljónir.
Formaður nefndarinnar, Kilbracken lávarður, fyrrver-
andi blaðamaður hefur haft upp á manni sem gæti orðið
þeim þægur ljár í þúfu. Hins vegar er ekki vitað hvort
hér sé um að ræða sama manninn og Frakkarnir reyndu
við, hvort hann mundi fáanlegur að leysa frá skjóðunni.
Hins vegar er vitað að Bretarnir hafa vonir um að
finna fjársjóð Rommels áður en líður á löngu.
Enginn vafi leikur á því að gersemarnir hafa ekki spillst
á hafsbotni, svo vandlega var um þær búið í vatnsþéttum
kössum. Nú veltur allt á því að minni Þjóðverjans hafi
ekki bilað.
Enn virðist enginn hafa látið sér til hugar koma að leita
uppi áhöfn skipsins sem flutti hinn dýrmæta farm. Ef til
vill höfðu þeir enga hugmynd um hvilíkan fjársjóð þeir
höfðu í lestinni. Það var vafasamt að Þjóðverjarnir hafi
Framhald á bls. 28.
4
FÁLK.1NN
A K-D-9
V
♦ D-7-6
* Á-K-10-9-7-6-4
A G-8-2
V Á-K-l 0-6-3
♦ K-8-5
* G-2
A Á-10-7-5-4-3
V D-G-9
♦ Á-9-3
* 5
A 6
V 8-7-5-4-J
♦ G-10-4-2
* D-8-3
Suður á að vinna sex spaða. Vestur spilar út hjarta-
kóng. Og nú ætla ég að biðja ykkur að lesa ekki lengra
fyrst um sinn, en hins vegar einbeita ykkur að lausn
þrautarinnar.
Og þá, hún er ekki eins létt og ykkur virtist í fyrstu,
ekki satt? — Þið reynduð að gera hjartagosann góðan,
með því að ná ásnum hjá vestri, og þið reynduð að
spila litlum tígli á drottninguna. en það vantar samt
alltaf eitthvað. Maður verður að gera sér grein fyrir
að laufaliturinn i blindum bjargar samningnum, og til
þess verður að nýta vel spaðainnkomurnar.
Því á að spila þannig. Hjartakóngur er trompaður
með spaða 9, en síðan er laufaás og kóng spilað og á
kónginn kastar suður hjartagosa að heiman! Enn er laufi
spilað frá blindum, og það trompað með spaðaás! Komuð
þið auga á þetta? Spaða er spilað og tekið á drottningu.
Þegar laufa 10 er nú spilað og hjartadrottningu kastað
að heiman eru dagar vesturs taldir. Hann getur trompað
og haldið áfram í hjarta, en nú á suður ekkert hjarta.
Hann getur því trompað heima og spilað spaða, tekið
á kónginn í blindum. Þar með hverfur síðasta tromp
vesturs, og tígultapslagirnir hverfa í laufið. Trompi vest-
ur ekki kastar suður tígli í næsta lauf, og það eina,
sem vestur fær, p" : frompi.
Skemmtilegt s> . untileg hugmynd þetta
með auglýsinguna fyrir þá, sem gaman hafa af bridge-
þrautum.
FALMNN
25