Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Qupperneq 4

Fálkinn - 17.02.1964, Qupperneq 4
Eyðieyjan hefur verið skopteiknurunum mikill og góður efniviður í inyndabrandara og virðist þetta efni nær ótæm- andi. Venjulega útsetningin er eitthvað í kringum ástina og heíur það birst á ótcljandi vegu. Þá hefur það einnig sézt að eyjarskegginn hefur orðið sér úti um „utanborðs- mótor“ og siglt eyjunni í átt að næsta meginlandi. Þá hef- ur það einnig verið vinsælt að láta skattheimtumanninn gera eyjabúum heimsókn. En þessi útsetning sem hér fylgir mun vera algjört einsdæmi. Textinn er á þessa leið: Mark. Núna er staðan 375350 gegn 372414. Þrátt fyrir aldurinn heldur Louis gamli Arm- strong sig við efnið. Nýlega hélt hann upp á fimmtíu ára afmæli sitt í „show business11. Þegar hann átti þetta merka afmæli var hann staddur í Las Vegas og þar fóru hátíðahöldin fram. Þess- ar þrjár stúlkur léku á sama stað og hann og báru honum þessa köku. Þær eru talið frá vinstri: Conni Haines, Jane Russel og Beryl Davis. Mikið var um það rætt hér fyrir nokkru að Louis mundi gera okkur heimsókn en það virðist hafa dregizt eitthvað á langinn. Vonandi verður þó af þeirri heimsókn. STAL LÖGREGLUMÖNNUM 4, fXlkinn Það getur margt furðulegt skeð í Ameríkunni og að minnsta kosti ef dæma má eftir þessari sögu frá smá- bænum Oxford í Michigan ríki. Tveir umferðarlögregluþjónar, Richard Lamphier og Wendell Hill, voru úti á eftirlitsferð hinn 6. apríl 1963 þegar þeir stöðvuðu bíl, sem ekki hafði sinnt stöðvunar- skyldu. (Munið þið sjálf alltaf eftir að hlýða þeirri skyldu). Bílnum ók hinn 24 ára gamli Fred Hannah. Lögregluþjónarnir báru kennsl á Fred en hann hafði setið inni í 11 mánuði fyrir ikveikju. Þegar lögreglu- þjónarnir fóru að athuga málið kom í Ijós að Fred hafði ekki ökuskírteini og var auk þess undir áhrifum áfengis. Var hann því þegar í stað fluttur á lögreglustöðina. Þegar þangað kom var Fred skipað að tæma vasa sína hvað hann gerði en dró jafnframt fram skammbyssu, sem hann miðaði á lögregluþjónana. Skipaði hann nú lögreglumönnunum að afvopnast og hlýddu þeir án mótmæla. Að þessu búnu gekk hann í bakherbergi nokk- urt þar í stöðinni og skipaði konu þeirri er hafði tal- stöðvarvaktina með höndum að fara fram í afgreiðsluna. Þessu næst skipaði Fred lögregluþjónunum úr ein- kennisjökkunum og síðan allri hersingunni út í bíl annars lögregluþjónsins. Þessu næst var haldið í tveggja tíma ökuferð og að því búnu á gistihús nokkurt. Er þangað var komið skipaði Fred konunni að binda lögregluþjón- ana og batt hana síðan sjálfur. Að þessu búnu tók Fred vasabækur lögreglumannanna og 140 dollara, sem hann fann í vösum þeirra og hélt á braut. Eftir um klukkutíma veru í gistiherberginu gátu lög- regluþjónarnir losað sig úr böndunum og þar með hófst eltingaleikurinn við Fred. Hann fannst ekki hvernig sem leitað var. Þremur vikum síðar gaf hann sig sjálfur fram við lögregluna. Hann sagðist hafa stolið lögreglu- mönnunum vegna þess að hann hefði óttazt að fá þungan dóm fyrir að bera á sér skotvopn. Hinn 6. ágúst sl. fékk Fred 7 til 15 ára fangelsisdóm fyrir vopnað rán. Ákæran vegna ránsins á lögregluþjón- unum var felld niður. Hér fylgja tvær myndir og er önnur þeirra af þeim sem var stolið en hin af Fred þegar hann gaf sig fram.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.