Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Qupperneq 17

Fálkinn - 17.02.1964, Qupperneq 17
— Mér kemur í hug Sígurður ívarsson. Hann var flug- skarpur og vel menntaður, orti mikið í Spegilinn á sínum tíma. En honum þótti sopinn góður og fór ekki í launkofa jneð það. Oft var honum fjár vant eins og gefur að skilja og íeitaði þá til ýmissa kunningja sinna. Ég var eitt sinn á ferð i Reykjavík og var á gangi eftir Austurstræti. Um þessar mundir bruggaði ég soldið — það var ósköp lítið, bara soldið — soldið. Jæja, vinur minn ég er þarna á gangi og þá heyri ég fyrir aftan mig að Sigurður víkur sér að Lárusi Jóhannes- syni sem nú er hæstaréttardómari og biður hann að lána sér 50 krónur. Lárus svarar honum: „Þarna gengur hann Hjálmar á Hofi og þú skalt fá 50 krónurnar og nýjan hatt ef þú getur smellt á hann vísu þannig að hann geti ekki svarað.“ Þegar ég heyri þetta greikka ég heldur sporið og skýst inn á sjoppu bakdyramegin, bjóst ekki við að Sigurður fyndi mig. Þetta reyndist þá vera vínsala og ég fæ mér hálfa flösku og fer fram í veitingasalinn og sezt þar og panta öl. En Sigurður hafði séð við mér og kemur nú inn á eftir mér, sezt við borðið hjá mér. Ég býð honum upp á öl. Þá smellir Sigurður á mig vísunni: Hjálmar greiðir hispurslaust úr hverjum vanda. Bruggað hefur ljóð og landa lagtækur til munns og handa. Mér varð algerlega orðfall og er þetta í eina skiptið sem ég hef ekki getað svarað fyrir mig. En ekki þótti mér það lakara, því vel gat ég unnt Sigurði nýja hattsins og 50 krón- anna. Að vísu svaraði ég löngu síðar að gamni mínu með þessari stöku: Léttist Sigga ljósa brún þá skenkt er skálin. Þó löngum syrti lífs í álinn leikur á nótum Braga sálin. Eins og áður er getið fluttist Hjálmar búferlum suður f Kjalarneshrepp og setti saman bú að Hofi, landnámsjörðinni. Við spurðum hann hvort ekki hefði margt breytzt á þeim tíma er hann hefur búið þar. -— Jú, þá voru hér 30 býli á nesinu og allt morandi af fólki. Hér var útræði og þess voru dæmi að bændur úr Kjós- inni kæmu hingað til róðra. Héðan var stutt á miðin, margt á heimili, sjaldan færra en 20 manns og hrokkelsaveiði mikil. Nú er ejcki bein að fá úr sjó. — Og hvað veldur því? — Dragnótin, svarar Hjálmar að bragði. — Ertu viss um það? — Já, það hef ég rannsakað sjálfur, svarar Hjálmar, þetta voru þeir líka að segja fyrst þegar ég fór að amast við drag- nótinni. Þeir sögðu: „Hvað ert þú að segja þetta, Hjálmar, þú þekkir þetta ekkert og veizt ekkert um þetta.“ Svo ? gerðl mér ferð suður síðastliðlð sumar og hitti að máli Guðmu: d vin minn á Hrafnkelsstöðum. Hann kyssti mlg allan og fagnaii vel. Og hann útvegaði mér „skiprúm" á dragnótabát. Ég fór í einn róður og annað eins morðvopn og dragnótina hef ég ek d séð. Það koma kannski 2—3 pokar í hali og af því er ekkl hirð- andi nema rúmur poki. Hitt er allt smáseyði. Þeir segjast bjar.-a þessu öllu með því að hafa riðilinn nógu stóran en gæta hins- vegar ekki að því að sandkolinn leggst flatur fyrir og lokar a'- gerlega fyrir. Seyðin komast ekki út. Já, svona er stjómin. Þetta er hrein vitleysa. Það þætti saga til næsta bæjar f v ð bændur færum að gefa rollunum lyf sem steindrepa í þein fóstrið! — Ertu hættur að róa? — Ég hef trilluna ennþá og ræ oft. Áður fyrr var aflinn svo mikill að heimilisfólkið torgaði honum ekki og varð ég þá að selja það sem umfram var. Nú fór ég um allt í fyrra, þekki hér öll mið, fór út fyrir Akranesskaga og út á Svlð og varð ekki var við marhnút, hvað þá meira. — Og áttu margt fé? — Nei, nei, ég er hættur búskap og hef ekki nema 100 rollur að dunda við í ellinni. Hef þær hér í húsi. En sonur minn Hörður er tekinn við búinu. — Og þú yrkir enn? — Það er nú orðið lítið. Ég á orðið í eina ljóðabók og hcf hana tiltæka, enginn veit sitt skapdægur. Hún á að bera heitið Rökkurstundir. Ég býst varla við að margt drífi á dagana úr því sem komið er. Þó er aldrei að vita hvað fyrir mann getur komið. Eins og ég sagði ykkur áðan veit ég harla fátt um fyrstu æviárin mín, ég var þá á flandri hjá ókunnugu fólki. Það kom því hálfilla við mig þegar ég var á ferð fyrir norðan fyrir fáeinum árum að oddvitinn í Sveitastaðahreppi kom að að máli við mig. Kvað hann erindi sitt það að rukka mig um sveitarskuld — sjötíu ára gamla. Ég hafði aldrei heyrt á þetta minnst. En eftir þessu að dæma hef ég verið á hreppn- um í heilt ár, skuldin var 100 krónur og hafði verið færð frá ári til árs. Ég sagði oddvitanum að þessa skuld skyldi ég borga honum þegar hann sýndi mér hana í frumgerð. Það gat hann náttúrlega ekki, annaðhvort er bókin týnd eða komin í safn en skuldin hafði þó ekki verið afskrifuð heldur látin standa öll þessi ár. Já, þetta kom dálítið illa við mig. Degi var tekið að halla er við kvöddum hið aldna skáld á Hofi, son hans Hörð og Aðalbjörgu tengdadóttur hans Jóns- dóttur frá Norðfirði og þökkuðum þeim góðan beina. Hjálmar stóð einn á hlaðinu er við kvöddum, nokkrum dögum áður hafði hann misst lífsförunaut sinn . .. En fjórar ljóðabækur og 40 afkomendur munu enn um sinn halda nafni hans á lofti. ,

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.