Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Síða 30

Fálkinn - 17.02.1964, Síða 30
\ UTLA SAGAIM EFTIR WILIV BREIIMHOLST HííY»W"/7r^ ‘ i» h’im& AFTURNJÖLSNARMLEIKUR Sé gert ráð fyrir að bíllinn manns dveljist ekki alla ævi í bílskúrnum heldur aki maður honum stöku sinnum, þrátt fyrir þrengslin á strætum og vegum, viðri hann í stuttri öku- ferð á sunnudegi, þá verður ökumaðurinn að horfast í augu við þá staðreynd að ósköpin geti dunið yfir hvenær sem er og í 99 tilfellum af hinum frægu 100 einmitt þegar þeirra er sízt von. Þau dundu yfir okkur næst liðinn sunnudag á undurfagurri leið norður á bóginn. BANG! heyrðist skyndilega, og Marí- anna rak upp skræk meðan ég lét ekkert á mig fá og steig fast á bremsuna æðrulaus. — Hitti hann þig? surði Maríanna og náði varla andan- um. — Hitti? sagði ég og dró andann djúpt að mér. — Já, var þetta ekki veiði- maður sem skaut voðaskoti? — Það var afturhjólið sem sprakk. Ég fór út og leit á það. Það var ákaflega flatt og vindlaust. — Hvað nú? spurði Marí- anna, ekki geturðu skipt um. — Auðvitað get ég það, svaraði ég og gjóaði augunum til hliðar lítið eitt taugaóstyrk- ur, en því skyldi ég gera það? Það er einmitt í svona tilfell- um sem maður getur hrósað happi yfir því að vera meðlim- ur í Félagi Bifreiðaeigenda. — Skipta þeir um dekk í Félagi Bifreiðaeigenda? spurði Maríanna örvilnuð. Ég kinkaði kolli og settist í aftursætið. — Já, sagði ég við þurfum ekki annað en bíða róleg eftir því að hjálparbíll aki framhjá. Svo skipta þeir um dekk. Og það kostar ekki eyri úr því maður hefur greitt árgjaldið sitt. Og það hef ég greitt skil- víslega í 17 ár án þess nokkru sinni að hafa notfært mér rétt- inn til að láta þá skipta um afturdekk. Vegaþjónustan gerir ekki annað en aka um allan liðlangan daginn og aðstoða bíl- stjóra sem þarfnast þess. Og nú þarfnast ég þess. Við biðum hálftíma. Vega- þjónustan lét ekki sjá sig. — Þetta er einkennilegt, sagði ég og leit á klukkuna. Kannski hafa þeir ekki heyrt hvellinn, sagði Maríanna. Þessi athugasemd fannst mér of barnaleg til þess að hún væri svaraverð. — Kannski er þetta ómögu- legur staður sem við höfum valið okkur, hélt hún áfram, ég á við... þetta er mjór af- leggjari, ekki satt? Kannski fara þeir bara eftir þjóðvegun- um. Ég leit á kortið til að athuga hvað væri langt að næsta þjóð- vegi. Fjórir kílómetrar. — Vilt þú, eða ég? spurði ég þegar við höfðum beðið hálf- tíma í viðbót. — Hvað þá? — Labba út á þjóðveginn og ná í hjálarbílinn. Ég sá það greinilega á svipn- um á Maríönnu að hún hafði þegar tekið ákvörðun um hvort okkar ætti að fara. Svo ég steig orðalaust út úr bílnum og lagði af stað. Ég hlaut að hafa litið vitlaust á kortið. Þegar ég loks ******* var kominn út á þjóðveginn var ég að niðurlotum kominn og fannst ég hafa gengið a. m. k. 40 kílómetra. Eða kannski 400; Ég lét fallast niður á vegar- brúnina. Ég beið einn klukku- tíma. Enginn hjálparbíll. Ég varð hálf sljór af sólskininu og rann í brjóst dálítinn tíma. Þegar ég opnaði augun sá ég gult mótorhjól bruna framhjá. Vegaþjónustan! — Hæ! hrópaði ég af öllum lífs og sálarkröftum, hæ! Bíddu! En það var um seinan. Hann heyrði ekkert. Nú átti hann eftir að fara sýsluna á enda áður en hann kæmi aftur. Það tæki minnst þrjár klukkustund- ir. Ekki nennti ég að bíða eftir því. Svo ég lallaði af stað á völtum fótum aftur í áttina að bílnum mínum Eftir hálftíma gang mætti ég stóreflis vöru- bíl. Ég veifaði hendinni og stöðvaði hann. — Viljið þér græða hundrað- kall á því að skipta um eitt dekk? — Nei, svaraði bílstjórinn, ég hef öðrum hnöppum að hneppa. Ég gerði ekki annað í dag ef ég ætti að sinna öllu svoleiðis kvabbi. Og þar með fór hann. Nú var farið að skyggja þegar ég loksins komst aftur að bílnum. Mig rak í rogastanz. Það var búið að skipta um dekk! — Það kom vörubíll með skepnur á pallinum, útskýrði Maríanna sigri hrósandi, bíl- stjórinn sagði það væri óhæfa að falleg stúlka eins og ég skyldi sitja hér með sprungið dekk í stað þess að aka um veröldina og freista gæfunnar og svo skipti hann um dekk 30 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.