Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Síða 38

Fálkinn - 17.02.1964, Síða 38
VARIÐ YKKUR Á „ÞRENNINGUNNI" Loks varð Ottó ferðafær á nýjan leik, og sólbjartan morgun reið hann uppáhaldshestinum sinum, Baldri, út um hlið Arnar- kastala. Danni reið við hlið hans. Þeir staðnæmdust fyrst við Tindakastala, sem var hálfa dagleið frá Arnarkastala. _ Þar bjuggu frændur Ottós. Danni heimtaði, að þeir færu sér rólega og liðið var á dag, er þeir komu á ákvörðunarstað. Tveir ungir menn, sem voru áberandi líkir, komu hlaupandi út til að heilsa þeim. Það voru Hrói og Álfur, synir Valtýs Tindaíávarðar. „Ottó i Arnarkastala!“ hrópuðu þeir glaðlega. „Hverju eigum við það að þakka, að þú kemur hingað? Ertu að bjóða okkur á burt- reiðar? Eða ertu á veiðum? Vertu alla vega velkominn að Tindum!" Ottó tók hlýlega í útréttar hendur þeirra og sagðl þeim, að hann væri í alvarlegum erindagerðum. „Hættu!“ hrópaði Hrói. „Ekki meira um það. Við megum ekki ræða alvarleg mál fyrr en eftir kvöldmat. Annars missum við alveg matarlystina!“ „Faðir okkar hefur ekki verið hraustur upp á siðkastið," sagði Álfur, sem virtist hugsa nokkru alvarlegar en tvíburabróðir hans. „Hann hvílist seinni part dagsins svo þú getur hvort eð er ekki rætt við hann fyrr en í kvöld." „Sjáðu nýja hestinn minn, Ottó,“ sagði Hrói. Svo fór að Ottó eyddi síðdeginum með hinum iífsglöðu frændum sinum, sem voru uppfullir af prakk- arastrikum. Eftlr konunglega kvöldmáltíð settist hann framan við arininn, ásamt Valtý. Tvíburarnir, sem ekki voru fyrir það að ræða alvarleg viðfangsefni fóru brott og skildu Ottó og föður sinn eftir. Valtýr hlustaði þögull á sögu Ottós. „Já, já, mjög athyglisvert...“ sagði hann, þegar Ottó hafði lokið máli sínu. Kvalagrettur komu á andlit hans. „Þessi gigtarskolli... Fyrirgefðu Ottó, við skulum ræða þetta nánar í fyrramálið." Hann reis á fætur og gekk út, en Ottó sat vonsvikinn eftir. En lávarður Tindakastala kom ekki morguninn eftir. „Vertu ekki svona óþolinmóður," sagði Álfur. „Þú hefur nægan tíma tU að ræða við hann eftir kvöldmatinn." Hrói kom að í sömu svifum með boga og örvar Hann benti á skotskífu í horni hallargarðsins og kaliaði: „Við skulum sjá, hversu hittinn þú ert í dag, Ottó.“ Ottó tók bogann. míðaeði i skyndi og skaut. Or hans lenti til hliðar í skotskifunni. Hann miðaði betur næst og hitti beint í miðju. „Hvað um að fara á veiðar smástund?" spurði Álfur. Hrói rauk þegar til og náði í fleiri stráka, og innan skamms stefndi hersingin til skógar. „Hvi ekki að skemmta sér eitthvað?" hugsaði Ottó. „Ég get hvort eð er ekki talað við Valtý fyrr en i kvöld." Þeir sneru aftur undir kvöld, þreyttir en ánægðir. Og allt kvöldið beið Ottó eftir Valtý lávarði, en árangurslaust.., FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.