Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1964, Page 9

Fálkinn - 01.06.1964, Page 9
eða 15. ágúst fengum við nokk- ur boð. Óvissan og biðin reyndi mjög á taugarnar og ég get varla sagt að okkur hafi komið blundur á brá. Snemma morguns hinn 16. var ég orðin örmagna og sofnaði, en vakn- aði aftur um nóttina. Keisar- inn hafði komið inn í herbergi mitt og þrátt fyrir hina venju- legu sjálfstjórn hans gat ég mér strax til um, að eitthvað óttalegt hefði komið fyrir. „Soraya,“ sagði hann. „Nass- iri og fylgismenn hans hafa verið handteknir. Við höfum beðið ósigur. Við verðum að komast á braut eins fljótt og unnt er.“ Zahedi sagði okkur síðar að hann hefði beðið þar til að kvöldi hins 15. ágúst áður en hann afhenti forsætisráðherran- um uppsagnarskjalið. Þetta kvöld var stjórnarráðsfundur og Nassirir gat því verið viss um að hitta Mossadeq. En á meðan hafði einhver fylgis- maður okkar svikið okkur og skýrt stjórninni frá áformum ókkar og þegar herforinginn kom til heimilis Mossadeqs klukkan hálfellefu var hann samstundis tekinn fastur. Zahedi var varaður við á síð- ustu stundu og fór í felur. Þessi þróun mála kom alger- lega flatt upp á okkur. Við höfðum engan farangur tekið með okkur til Kalardasht. Ég hafði haft með mér hið nauð- synlegasta í handtösku og við klifruðumst í skyndi um borð í litlu einkavél keisarans, sem við höfðum flogið í frá strönd- inni og upp í fjöllin. Þetta voru æsandi augnablik. Og allt virtist nú okkur tapað. Þegar ég lít um öxl undrast ég mest, hversu róleg og stillt ég var. Ég held það sé yfirleitt eðlileg viðbrögð manna, maður öðlast einhverja óskiljanlega sáálfstjórn og einbeitir sér að því að hugsa um, hvað næst verði að taka til bragðs. ,f„Getum við flogið til íraks í þessari vél?“ spurði ég Moham- med Reza. „Nei, hún er allt of lítil fyrir svo langt flug,“ svaraði hann. „Við verðum að fara til Rams- ar, þar sem Beechkraft vélin bíður í flugskýlinu." „Já, ef hún er þar enn,“ sagði ég. „Já, ef hún er þar enn,“ sagði keisarinn og yppti öxlum. Við vissum ekki hvort við vorum að ganga í einhverja kænlega lagða gildru, eða hvort stóra vélin hafði ekki verið tekin burt og eyðilögð af stuðn- ingsmönnum Mossadeqs. En til allrar hamingju var allt í lagi og við flugum áleiðis til Bagdad með tveimur flugmönnum og einkaflugmanni okkar. Á leiðinni voru karlmennirn- ir mjög daprir í bragði og keisarinn sagði: „Nú er öllu lokið.“ Og þó að ástæður okkar virt- ust vissulega óglæsilegar þá fékk ég eitt af hugboðum mín- um og sagði: „Hafið engar áhyggjur. Við verðum komin heim til Teheran innan viku.“ Mohammed Reza brosti þung- lyndislega við mér eins og hann vildi segja: „Þér trúið þessu ekki einu sinni sjálfar.“ Mér fannst keisarinn hafa misst alla von of fljótt, og ég var sannfærð um að hann var enn vinsæll hjá þorra þjóðar- innar. Um nónbil greindum við moskur Bagdad í fjarska. Við báðum flugturninn um lending- arleyfi, og sú bón olli feikileg- um glundroða. og hefði ekki getað verið meiri þótt við hefð- um komið á fljúgandi teppi. * \ stæðan fyrir því var sú að von var á írakskonungi innan lítillar stundar, en hann hafði verið á rannsóknarleið- angri um land sitt. Flugvallar- starfsliðinu þótti það vitaskuld í hæsta máta grunsamlegt að einmitt þá skyldi óþekkt flug- vél birtast yfir Bagdadflugvelli. „Hver eruð þér og hvað viljið þér?“ spurðu þeir hvað eftir annað en keisarinn vildi ekki upplýsa það. Við bárum fyrir okkur vélarbilun og var okkur sagt að lenda á yzta horni flug- vallarins. Jafnskjótt og vélin var lent kom jeppabíll akandi með fjölda hermanna. Enginn þeirra þekkti okkur. Mohammed Reza reif blað úr minnisbók sinni, skrifaði fáein orð og sagði: „Gerið svo vel og færið kon- ungi íraks þennan miða.“ Hermennirnir horfðu tor- tryggnir á okkur og leiddu okk- ur að litlum kofa, sem var eins konar biðskýli. Fáeinum mín- útum síðar fylgdumst við með komu Feisals konungs. Hann framkvæmdi herkönnun og ók síðan á braut, og hafði ekki hugmynd um að fáeinum metr- um í burtu voru keisarahjón írans sem pólitískir flóttamenn. Nú kom flugvallarstjórinn til okkar. Hann þekkti okkur sam- stundis og flýtti sér að hringja til hallarinnar. Þegar Feisal konungur heyrði, hvað gerzt hafði sendi hann utanríkisráð- herra sinn Khalil Kenna út á flugvöllinn og okkur var fylgt á hið konunglega gestaheimili. Þennan sunnudag var hiti óvenjulega mikill i Bagdad, svo að við gátum varla dregið and- ann. Hitinn var 40 gráður í skugga. Til allrar hamingju var húsið með kælikerfi, og ég geri ráð fyrir að við hefðum hnigið niður örmagna eftir tauga- spenning síðustu daga, svo hefði ekki verið. Klukkan fimm bauð Feisal okkur til tedrykkju. Eini kjóll- inn sem ég hafði verið í á leið- inni. Ég spurði: „En get ég gengið fyrir konunginn svona klædd, hatt- laus og berhent?“ „Auðvitað getið þér það,“ svaraði Kenna. „Hans Hátign er full ljóst að þér eruð ekki að koma af týskusýningu.“ IV JB..HLinn tuttugu og tveggja ára gamli Feisal fagnaði okkur hið bezta og bauð okkur að dvelja í Bágdad eins lengi og við óskuðum þess. En við vild- um helzt ekki níðast á gest- risni hans og auk þess var hitinn óbærilegur eins og fyrr segir. Þess vegna tókum við á leigu enska vél og flugum áleiðis til Rómar hinn 18. ágúst. Á meðan hafði flótti okkar verið aðalfréttir heimsblað- anna. Þegar við lentum á Ci- ampino flugvelli voru mættir fulltrúar ítölsku stjórnarinnar að taka á móti okkur og auk þess mörg hundruð blaðamenn og ljósmyndarar. Hins vegar leituðum við árangurslaust að ambassador okkar, Nezam Nouri, sem hafði tveimur ár- um áður skipulagt hátíðahöldin við brúðkaup okkar. Þar sem hann kaus að sýna Mossadeq hollustu sína hafði hann valið þennan sérstaka dag til að fara i sund við Ostia. Ekki var nóg með það. Ég hafði skilið eftir bifreið mína — sem ég hafði keypt fyrir eigin fé — í apríl í Rómaborg. Áður en ég hélt heimleiðis bað ég Nouri gæta lyklanna fyrir mig. Nú neitaði hann blákalt að afhenda mér þá. Sú staðreynd að ég fékk lyklana þrátt fyrir það var eingöngu að þakka hjálpsemi eins sendiráðsstarfs- mannsins, sem jafnvel þá var fús að leika þjóf til að þóknast keisaraynju sinni . . . Við dvöldum að Hótel Ex- clesior og fyrsta kvöldið hvild- umst við eftir flugferðina. Þá heyrðum við í útvarpinu, að Fatemi utanríkisráðherrann hafði ráðist mjög harkalega að okkur í ræðu sem hann hélt yfir alþýðu Teheranborgar. Hann hafði krafist þess að allir af Phaleviættinni skyldu hengdir, lýðveldi stofnað og kommúnistum boðin þátttaka j ríkisstjórninni. Eftir ræðu þessa höfðu Tudeh fylgismenn rænt og ruplað 1 hundruðum verzlana í borg- inni. Þeir höfðu ruðzt inn í skóla og ráðuneyti og brennt óteljandi myndir af keisaran- um. Þeir höfðu einnig velt um koll styttu af gamla keisaran- um og sprengt hana í loft upp. Þegar ég heyrði þetta allt missti ég einnig alla von. Keis- arinn og ég ræddum, hvað við ættum til bragðs að taka. Hann sagði: „Við verðum að vera hagsýn, Soraya, því að ég verð að játa að ég er ekki ríkur. Þó vona ég það nægi til að við gætum keypt okkur einhvers staðar búgarð.“ „Hvert vilduð þér helzt fara?“ suprði ég. „Ef til vill til Ameríku. Móð- ir mín og Shams eru komnar þangað og ég vona, að bræðr- um mínum takist að koma á eftir okkur.“ „Þér eigið við að við mund- um öll búa saman?“ „Já, okkur yrði lífið léttbær- ara ef við værum öll saman, og sömuleiðis peningalega.“ * I raun og veru voru sogu- sagnir þær um ævintýraleg auðæfi Pahleviættarinnar stór- kistlegar ýkjur. Þeir áttu nokkrar landareignir, sem þeir höfðu fengið eftir föður sinn, en arðurinn af þeim hrökk þó engan veginn til að hægt væri að lifa sæmilegu lífi fyrir hann. Bræður keisarans og systui fengu einnig nokkra fjárupp hæð frá honum, sem hann greiddi þeim af sínu einkafé. í íran hefur þjóðhöfðingi ekki annað en laun sín frá ríkinu Sú upphæð var þá um það bil 250.Q00 pund á ári, en af því fé varð hann að greiða öll útgjöld við hirðina og einnig annast alla ættingja sína Þar af leiddi, að hann hafði ekki getað lagí mikið til hliðar. Margt fólk hélt að við gæt- um veitt okkur allt, sem hug urinn girntist, en það var fjarr öllum sannleika. T. d. höfðum við aldrei efni á að kaupa dýr- mæt listaverk. Ég vissi líka, að keisarann hafði langað í mörg Framh. á bls. 42. ö FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.