Fálkinn - 01.06.1964, Page 22
Okkur finnst hann ekkert sérlega frýnilegur þessi
gamli maður, enda á hann ekki að vera það, ,
Hann er að stíga gamla særingadansinn og flytja
formælingar. Annars eru þetta leikur. Tveir menn
keppa mn það, hvor geti talað verr um hinn
og formælt hinum meira. Á meðan stíga þeir
dans og slá taktinn á skinn, sem strengt er
á viðarhring. Nú munu fáir kunna þennan gamla
þjóðdans, og eru það nær eingöngu fulltrúar
eldri kynslóðarinnar.
Hinn 16. apríl síðastliðinn hóf flugvélin
Gljáfaxi sig til flugs af Reykjavíkurflugvelli
og tók stefnu til norðvesturs. Innanborðs voru
fjórir menn. Flugstjóri var Jóhannes R.
Snorrason, yfirflugstjóri Flugfélags íslands,
flugmaður Jón R. Steindórsson og flugvél-
stjóri Oddur A. Pálsson. Fjórði maðurinn
tilheyrði ekki áhöfn vélarinnar, enda var
auðséð á útbúnaði hans, að hann hugðist
festa á filmur það sem fyrir augun bar, því
hann var vopnaður kvikmyndatökuvélum í
bak og fyrir, ásamt ljósmælingatækjum og
öðrum þeim útbúnaði, sem til slíkrar iðju
þarf. Þar var kominn Þorgeir Þorgeirsson,
ein aðal driffjöðurin í ungu kvikmyndafélagi,
Geysismyndum, sem telja má fyrsta vísinn
að innlendum kvikmyndaiðnaði. Þorgeir er
ungur maður að árum, aðeins rúmlega þrítug-
ur að aldri. Hann sótti námskeið hjá franska
sjónvarpinu í París og kynntist þar kvik-
myndatöku. árið 1957, en síðar lá leið hans
til Tékkóslóvakíu, þar sem hann stundaði
nám við kvikmyndaskólann í Prag um tveggja
ára skeið, með kvikmyndastjórn sem aðal-
grein. Og nú var hann á leið með flugvélinni
Gljáfaxa til Grænlands til þess að taka mynd-
ir af hinu ævintýralega skíðaflugi, sem Flug-
félagið hefur undanfarin tvö ár haldið uppi
fyrir hina Konunglegu Dönsku Grænlands-
verzlun.
Við hittum Þorgeir að máli, nokkru eftir
að hann kom aftur heim, og fengum að sjá