Fálkinn


Fálkinn - 17.05.1965, Side 7

Fálkinn - 17.05.1965, Side 7
SAMTAL VIÐ FRÚ MARGRÉTI THORS UM LÍFIÐ Í KONGÓ TEXTI: STEINUNN S. BRIEM MYNDIR: SIGURJÓN JÖHANNSSON OG ÞORSTEINN JÓNSSON Þýðir ekki að geía litlum börnum lausan tauminn „Hvar í landinu vóruð þið?“ „Mestallan tímann í Leopoldville, en einn mánuð í Kivu héraði, í bæ sem hét Bukavu. Þetta er hátt uppi í fjöll- um og loftslagið hreinn unaður. Það er óskadraumur allra flugmannanna að komast þangað, og við skiptumst á að búa þar. íbúarnir eru af tveim ætt- flokkum, yfirstéttin er Hamítar, há- vaxnir stórglæsilegir menn, 7—8 fet á hæð, þeldökkir en ekki með andlits- fall svertingjanna, skrautlegt fólk, og svo dvergár, 4—5 fet á hæð, sem not- aðir eru-í skítverkin, bardaga, akur- yrkju og erfiðisvinnu af öllu tagi. Það var í Bukavu sem tuttugu ítalskir flug- menn voru síðar myrtir.“ „Ætli glansinn hafi þá ekki eitthvað farið að minnka?“ „Ja, sjáðu til, mikið af svertingjun- um er eins og smábörn að þroska, og það þýðir ekki að gefa litlum börnum lausan tauminn og búast við, að allt fari vel.“ ^ Ólafur litli er ekkert hræddur við afrísku galdralæknana, enda veit hann, að á bak við grímurnar eru bara syst- ur hans, Anna og Margrét. Elzta systirin, Ingibjörg, var I skóla- ferðalagi, svo að hún gat ekki verið með á mynd- unum. Frú Margrét Thors á heimili sínu í Reykjavík. Á veggjunum hanga af- rísk spjót, bogi og örv- ar, trumba, litskrúðugar myndir og aðrar minjar frá dvölinni í Kongó. Stelpurnar döfnuðu prýðilega í Kongó „Á hvaða aldri voru börnin ykkar?“ „Þegar við fórum fyrst til Kongó, var Margrét eins og hálfs árs, Anna þriggja og hálfs og Ingibjörg fjögurra og hálfs.“ „Varstu ekkert kvíðin að fara með svo lítil börn suður til Afríku?“ „Nei, ég hlakkaði svo til að fara, að enginn ótti komst að. Og stelpurnar döfnuðu prýðilega í Kongó.“ „Þurftuð þið ekki að fá kynstrin öll af sprautum áður en þið lögðuð af stað?“ „Jú, jú, við vorum áreiðanlega tvo mánuði í sífelldum sprautum við alls ►

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.