Fálkinn


Fálkinn - 17.05.1965, Page 10

Fálkinn - 17.05.1965, Page 10
SIENZKAR HÚSMÆÐUR OÐRUM HEIMSALFUM „En tíkin — urðuð þið aldrei vinkonur?“ „Jú, jú, hræðslan fór alveg af mér — við alla hunda.“ AðgerSaleysið versti gallinn „Hvað fannst þér ólíkast því sem þú varst vön?“ „Ja, það var nú náttúrlega margt, kannski mest sjálf til- högun dagsins. Við fórum alltaf á fætur klukkan hálfsex á morgnana, því að þá var enn sæmilega svalt, og aðalmáltíð dagsins var morgunverðurinn — á öðrum timum var of heitt til að hafa mikla lyst. Við borð- uðum venjulega papaya til að byrja með — í garðinum val papayatré, og 1 þeim ávextf eru öll efni sem hægt er a§ hugsa sér, vítamín, sölt og nær- ingarefni — drukkum ávaxta- safa og fengum okkur síðan egg og svínakjöt. Allt kjöt var innflutt, því að nautgriparækt er bönnuð í Kongó vegna hætt- Framh. á bls. 24. „Lausir léreftskjólar og opn- ir sandalar voru þægilegasti fatnaðurinn. Það er betra að klæða af sér hitann en ganga of ber.“ „Þoldirðu hitann vel?“ „Nei, ekki get ég sagt það, við vorum alltaf blautar af svita mæðgurnar, en Þorsteinn er svo vel gerður, að honum er sama hvort hann er uppi á Grænlandsjöklum eða inni í myrkviðum Afriku, honum er aldrei of heitt og aldrei of kalt. Við höfðum enga loftræstingu i húsinu fyrstu tvö árin, en eftir að við fengum hana, leið mér miklu betur. Þá var hægt að sofa í svölu lofti, og það munaði mestu.“ Þorsteinn flaug með Lumumba og Kasavubu „Var Þorsteinn ekki mikið að heiman í flugferðum?“ „Jú, hann vann hjá Afríku- deild Sabena flugfélagsins og var venjulega burtu 20 daga af hverjum 30, mislengi í einu. Hann flaug um landið þvert og endilangt, stundum með Lumumba, Kasavubu. og þessa karla, og hafði oft margt spenn- andi að segja þegar hann kom heim.“ „Bjó þjónustufólkið í húsinu hjá ykkur?“ „Nei, það var ekki til siðs. Það kom snemma á morgnana og fór aftur seinnipart dags- ins.“ „Varstu ekkert hrædd að búa ein í húsinu með litlu dæt- urnar?“ „Nei, nei, við höfðum hund eins og flestallir þarna, og það var alveg nóg vörn. Það hlægi- lega var, að ég var dauðhrædd við hunda, jafnvel var mér ekkert um þessa indælistik sem við áttum, þó að hún væri ósköp ljúf, en einn góðan veður dag týndist hún og fannst hvergi, og þá leitaði ég og leit- aði að henni með öndina í háls- inum og fann hana loksins undir rúminu mínu — með níu hvolpa!“ „Þú hefur ekki verið hrædd við þá?“ „Nei, þessi litlu kríli voru svo bjargarlaus og sæt.“ 10 REYNIÐ ÞESSAR FRÁBÆRU JURTA- BOLLUR 175 gr Jurta-smjörlíkl 1/2 • mjólk 175 gr hveiti (sigtað) 1/4 tsk sait 2 tsk sykur 4-5 egg (eftir stærð) Hitið mjólkina og Jurta-smjörlíkið að suðu- marki, setjið hveitið, sykurinn og saltið í og hrærið mjög vel. Deigið kæit, iátið í skál og eggin látin f, eitt og eitt, hrært vel á milli. Setjið deigið með skeið á Yei smurða plötuna. Bakist í 45 mín. við góðan hita (375° F eða 190° C). Varizt að opna ofninn fýrstu 35 mín. Sem fyllingu í bollurnar má nota t.d. rjóma og sultu, rækju jafning eða. salat og ís. jurfca Allur bakstur betri með Jurta ## Þér Þufið að • # reyna Jurta-smjörlíki • • til að 5annfæra$c * • um gæði þess. í JURTA-smjörlíki eru nötuð þessi hráefni: Fljótandi baðmullarfræsolía, hert jarðhnetuolía, hert kökosfeiti, kókosfeiti, soyabauna-lecithin, jurta-bindiefni, jurtalitur, undanrennuduft, salt, vatn, kartöflumjöl, sítrónusýra, bragðefni og A- og Dj-vítamín. í hverju grammi JURTA- smjörlíkis eru 30 einingar af A- og 3 einingar af Dj-vítamíni. FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.