Fálkinn


Fálkinn - 17.05.1965, Qupperneq 14

Fálkinn - 17.05.1965, Qupperneq 14
PETER O’TOOLE hlaut heimsfrægð fyrir hlutverk sitt í Arabíu-Lawrence, í sam- nefndri kvikmynd. Ekki er svo að skilja að Peter hafi ekki sýnt góð- an leik áður, þvert á móti er hann einn af viðurkenndustu sviðsleik- urum Englands. En hingað til hefur hann ekki verið sérlega á- fjáður í að yfirgefa sviðið, en þó hefur hann gert nokkrar undan- tekningar. Með Peter á meðfylgjandi mynd er eiginkona hans, Sian, og er myndin tekin þegar þau komu til Taorminu á Sikiley. en þar tók Peter á móti virðingarmestu verð- launum sem ítalir veita fyrir kvik- myndaleik. HELDUR VIIMSÆLDUIVI Því var spáð að Elvis Presley mundi fljótlega gleymast — hann væri svo svo sem ekkert annað en venjuleg dægurfluga, eins og lögin sem hann varð vinsæll af að syngja. En raunin hefur orðið önnur, Presley er sífellt á toppnum og leikur í hverri kvikmyndinni á fætur annarri. Stúlkan, sem er til vinstri handar við Presley, heitir Ursula Andress (Dr. No), svissnesk að ætt, en hin heitir Elsa Cardenas og er fædd í Mexíkó. En skiptir það annars nokkru máli? FRÚ RA DENNY á Nýja Sjálandi á óstaðfest heimsmet í tvistdansi. Það var í marz 1962 sem frúin dansaði 100 klukkustundir sam- fleytt. Geri aðrir betur. HÖGGIVIVIMD AF KOIMU Konan er engin önnur en sænska leikkonan Ingrid Berg- man. Sá sem gerði myndina er einnig sænskur og heitir Gud- mar Olovson. En Ingrid gerði hinum unga myndhöggvara dá- lítið erfitt fyrir því að hún sat ekki fyrir hjá honum. Þegar hún sá myndina svotil full- gerða gerði hún sér lítið fyrir og tók af hökunni, sem henni fannst vera of stór. Að öðru leyti virtist hún ánægð með myndina. Gudmar er meðlim- ur listamannagrúppu í París, sem heitir „Groupe de Neufs“, en félagar hennar ætla að halda sj'ningu á næstunni. Á þeirri sýningu verður myndin af Ing- rid, og allar verða myndirnar á sýningunni af þekktu fólki. 14 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.