Fálkinn - 17.05.1965, Qupperneq 15
KJARIMORKUSKIP
í júlí 1959 var hleypt af stokkunum í New
Jersey nýstárlegu skipi og glæsilegu. Því var
gefið nafnið „Savannah“ og var fyrsta kjarn-
orkukriúða kaupfarið sem framleitt er í heim-
inum. Skipið átti að vera sönnun þess að Banda-
ríkjamenn væru engir eftirbátar Rússa um
smíði kjarnorkuknúðra skipa, og meiningin var
að verða fyrstir með slíkt skip. En það fór á
annan veg, eins og svo oft áður í kapphlaupi
þessara tveggja stórvelda kjarnorkunnar. Rúss-
ar urðu á undan með ísbrjótinn „Lenín“.
WINSTON heitinn Churchill var eins og allir vita
framúrskarandi rithöfundur og snjall stjórn-
málamaður. Hann var einnig afkastamikill mál-
arj og er talið að hann hafi málað milli 300—
400 myndir. 250 myndir eru geymdar á heimili
hans.
ANN-MARGRET, sænska stúlkan sem leikur í
Hollywood kvikmyndum, hefur það líklega ljóm-
andi gott, því að hún er búin að undirskrifa
samning um að leika í 17 kvikmyndum á næst-
unni.
KIMATTSPYRIMUSTJARIMAIM . . .
Uwe Seeler frá Þýzkalandi á sitt eigið „trikk“,
sem hann notar þegar tækifæri gefst. Hann kast-
ar sér fram, liggur lóðrétt í loftinu með vinstri
hendina á jörðinni og spyrnir aftur fyrir sig.
Gaman væri að sjá íslenzka knattspyrnumenn
leika þetta eftir!
Hvers vegna nota sífellt fleiri og fleiri konur „SUPER
LUMIUM“ varalitina frá
Svarið er auðvclt. Einfaldlega vegna þess að þessi nýi
varalitur inniheldur undraefnið „LUMIUM“, sem kemur í
veg fyrir að varirnar þorni, en gefur yður í þess stað
unglegt og fallegt útlit.
Fáanlegt í flestum leiðandi snyrtivöruverzlunum.
Heildsölubirgðir:
SNYRTIVÖRUR h.f. — Laugavegi 20 — Símar: 11020-11021.
l
FÁLKINN 15