Fálkinn - 17.05.1965, Qupperneq 36
FÍLAG SPRENTSMIÐJA
1. maí sl. var merkisdagur í sögu Félags-
prentsmiðjunnar, því að þá voru liðin 75
ár frá stofnun hennar. Lengst af var
prentsmiðjan til húsa að Ingólfsstræti 1 A
(fyrsta setningarvélin sem var flutt til
landsins var sett upp þar), 1961 flutti prent-
smiðjan að Spitalastíg 10 við Óðinstorg.
Milli 30—40 manns vinna að staðaldri hjá
prentsmiðjunni, sem frá upphafi hefur
annast bók- og blaðaprentun. Nefna má
blöð eins og Fjallkonuna, Þjóðólf, Vísi,
Fálkann, Læknablaðið, Tímarit lögfræð-
inga og Samtíðina. — f tilefni afmælisins
höfðu eigendur prentsmiðjunnar boð inni
fyrir starfsfólk og aðra gesti og eru mynd-
irnar teknar við það tækifæri.
Hér ræðast við þrír menn, sem eru engir viðvaningar í prentbrans-
anum. Frá vinstri: Stefán Jónsson, prentsmiðjustióri í Eddu; Magn-
ús Ástmarsson, prentsmiðjust.ióri í Gutenberg og Baldur Eyþórsson,
prentsmiðjustjóri í Odda.
►
Gestur Árnason (t. v.) og Jón Thorlacíus eru hér að kankast á. Gest-
ur hefur unnið hjá Félagsprentsmiðjunni í 7 ár, en hefur unnið í
prentsmiðjum undanfarin 63 ár, þar af lengi í Gutenberg. Jón hefur
unnið ein 35 ár í Félagsprentsmiðjunni — byrjaði sem sendill, nam
síðan prentiðn og er nú verkstjóri.
Og hér eru mennirnir, sem hafa stjórnsýslu með höndum: Talið frá
vinstri: Erlingur Brynjúlfsson, fulltrúi hjá Eimskip (stjórnarmeð-
limur), Kristján Guðlaugsson, lögfræðingur (stjórnarformaður),
Bjarni Konráðsson, læknir (stjórnarmeðlimur), Konráð Bjarnason,
aðstoðarframkvæmdastjóri, Þorsteinn Ásbjörnsson, verkstjórí (á 23
ára starf að baki), Sigurður Guðmundsson, verkstjóri (27 ára starfs-
ferill), Jón Thorlacíus, verkstjóri og Hafliði Helgason, prentsmiðju-
stjóri.