Fálkinn - 24.05.1965, Blaðsíða 11
TILHÖGUN VERÐLAUNA- ,
GETRAUNARINNAR
★ Verðlaunagetraun Fálkans, sem
hófst í 18. tölublaði og lýkur
mánudaginn 28. júní er í senn
stórglæsileg og spennandi.
★ í hverju blaði verður birt mynd
af íslenzkum leikara í hlutverki
og eiga lesendur að ráða af mynd-
inni hvaða leikrit er um að ræða.
Til að gera getraunina auðveld-
ari, eru talin upp þrjú leikrit og
er eitt af þeim hið rétta svar.
★ Dregnir verða út þrír glæsilegir
vinningar.
1. vinningur: 15 daga ferð til Costa
Brava á Spáni fyrir, tvo á vegum
Ferðaskrifstofunnar Sögu. Flogið
til Kaupmannahafnar og heim
aftur með Flugfélagi íslands. Ferð-
in stendur frá 6.—20. september.
Fæði og hótelherbergi er að sjálf-
sögðu innifalið.
2. vinningur: Ferð fyrir einn með
Gullfossi til Kaupmannahafnar og
heim aftur með viðkomu í Leith.
Farið héðan 18. september og
komið til Reykjavíkur 30 septem-
ber. Fæði og þjónusta innifalið.
3. vinningur: Flugferð fyrir einn til
London og heim aftur með Flug-
félagi íslands á tímabilinu októ-
ber—nóvember í haust.
GULLFOSS 15 ÁRA
Nýlega eru 15 ár liðin frá
því að Gullfoss kom hingað
til lands. Daginn eftir kom-
una til Reykjavíkur var skip-
ið sýnt bæjarbúum og komu
þá á einum degi 10 þúsund
manns að skoða skipið! Slík-
ur var áhugi fólks á þessu
glæsta fleyi.
Gullfoss hefur farið 506
sinnum milli Reykjavíkur og
Kaupmannahafnar (253 ferð-
ir fram og til baka) og flutt
92.659 farþega. Frá því fyrsta
hefur eftirspurn eftir fari með
Gullfossi verið mikil á sumr-
in, sérstaklega í júlí—sept-
ember. Yfir vetrarmánuðina
var farþegafjöld-
inn með skipinu
yfirleitt lítill, þar
til haustið 1962,
að teknar voru
upp sumarauka-
ferðirnar svonefndu. Þetta
eru 16 daga ferðir með við-
komu í Leith á heimleið og á
útleið með viðkomu í Ham-
borg, Gautaborg eða öðrum
höfnum, eftir því sem aðstæð-
ur eru hverju sinni. Fargjöld
eru mun lægri á þessum tíma.
Þessar ferðir eiga vaxandi
vinsældum að fagna, t. d.
ferðuðust 1824 farþegar með
Gullfossi á tímabilinu nóv-
ember—marz á sl. vetri.
Enn er ekki of seint að
gera pantanir í flestar ferðir
í sumar.
Um vinsældir Gullfoss þarf
ekki að fjölyrða. Þar um borð
er slíkur myndarskapur á öll-
um hlutum, að það er landi
og þjóð til mikils sóma.
Að undanförnu hefur verið
unnið að gagngerum endur-
bótum (sumt vegna brunans)
um borð í Gullfossi. Reyksal-
ur á 1. farrými er mikið
breyttur og nýtízkulegri, enn-
fremur borðsalur. Þá hafa
farrými skipsins verið endur-
nýjuð að mestu leyti, loftræst-
ing endurbætt og margt ann-
að fært í betra horf.
Farrýmaskipan er á þann
veg, að á 1. farrými eru
rúm fyrir 103 farþega, á
2. farrými 62 farþegarúm
og á 3. farrými, sem er að-
eins opið yfir sumarmánuð-
ina er rúm fyrir 44 farþega.
í frystirúmi skipsins má
koma fyrir 1000 tonnum af
flökuðum fiski eða 36 þús-
und skrokkum af dilkakjöti.
Auk frystirúm-
anna eru farrh-
rúrnin 48,400 ten-
ingsfet.
Þá má geta
þess að Gullfoss
er sérstaklega sterkbyggður
og hefur jafnvel skákað ís-
brjótum á Eyrarsundi og rutt
þeim leið!
Til þess að farþegum líði
vel á einu skipi þarf sam-
bandið á milli áhafnar og far-
þega að vera gott. Flestum
mun bera saman um að á
Gullfossi sé valinn maður í
hverju rúmi. Fyrsti skipstjór-
inn var Pétur Björnsson er
lét af því starfi 1952 fyrir
aldurs sakir. Næstur kom Jón
Sigurðsson, sem einnig lét af
starfi fyrir aldurs sakir árið
1958. Núverandi skipstjóri er
Kristján Aðalsteinsson.
Þegar er farið að huga að
byggingu nýs Gullfoss, en það
verk krefst mikils undirbún-
ings. Líklega er sá vandi
mestur, hvernig gera megi
næsta Gullfoss betur úr garði
en þann, sem nú siglir á milli
landa.
MYND 3
Arndís Björnsdóttir, leikkona, er áreiðanlega
mörgum minnisstæð í þessu hlutverki. Hvað heit-
ir leikritið:
1. Marmari?
2. Tyrkja-Gudda?
3. Gullna hliðið?
Þegar verðlaunagetrauninni lýkur 28. júní eiga þátttak-
endur að klippa út allar myndirnar og senda þær ásamt
svörum til ritstjórnar Fálkans, pósthólf 1411. Annað
form á úrlausnum verður ekki tekið til greina þegar
vinningarnir verða dregnir út.
Rétt svar: