Fálkinn - 24.05.1965, Blaðsíða 25
FÁLKINN RÆÐIR VIO FEÐGANA
Á STÓRHÖFÐA
AUSTIN GIPSY
UHi VITAVÖRZLU OG FLEIRA
(TEXTI OG TEIKIMIIMGAR RAGIMAR LÁR)
til Reykjavíkur, beint í gegn-
um talsímann.
Þetta starf er illa borgað,
sagði Sigurður, en vitavarzl-
an er borguð sér.
Við spurðum Óskar, hvern-
ig honum litist á að taka
við þessu starfi af föður sín-
um, og sagðist honum lítast
allvel á það, enda væri hann
alinn upp við starfið og því
kunnugur af þeim sökum.
Við spurðum, hvort þeir
hefðu búskap á höfðanum,
og kvað Óskar þá til skamms
tima hafa haft kýr, en erfitt
hefði verið um flutninga
neðan úr kaupstaðnum og
vart hægt að fá mjólk úr
bænum.
— Við urðum að bera vör-
urnar heim á bakinu hér
áður fyrr, segir Sigurður, þá
var lélegur vegur hingað,
en nú höfum við bíl til að
flytja vörurnar á, enda er
nú góður vegur á höfðann.
— Hvernig komust þið í
skólann, spyrjum við Óskar.
— Okkur var komið fyr-
ir á einkaheimilum í bæn-
um yfir skólatímann.
— Eruð þið mörg syst-
kinin?
— Við erum tvö.
— Og hvernig kanntu við
Farartæki
hinna vandlátu
Það mun vera samdóma álit þeirra sem bezt þekkja
að varla muni farartæki betur búin að vélakosti en
Austin Gipsy Iandbúnaðarbifreiðin.
Þrautreyndar benzin eða dieselvélar sem spara allt
nema aflið.
Vegna mikillar eftirspurnar er væntanlegum kaupendum
bent á að hafa sem fyrst samband við okkur vegna
afgreiðslu i haust.
ÞÉR GETiÐ TREYST AUSTIN
Garðar Gíslason h.f.
BIFREIÐAVERZLUN.
þig á svona stormasömum
stað?
— Ágætlega, enda get ég
ekki sagt að ég þekki annað.
— Er mikil úrkoma hér?
— Hún er minni en víðast
annars staðar á landinu, eða
13—14 mm yfir árið.
— Nú er mun lygnara niðri
í kaupstaðnum en hér á höfð-
anum hvað munar það miklu?
— Það getur munað allt að
8 vindstigum í suðaustanátt-
inni, en kaupstaðurinn er op-
inn fyrir norðanáttinni, og þá
munar það svo miklu, en mér
er ekki kunnugt um saman-
burðinn.
— Og þið hafið ekki annað
vatn en það sem safnast af þök-
unum i rigningum?
— Yfirleitt dugar það okk-
ur, en þó kemur fyrir í lang-
varandi þurrkum, að við veríí-
Framh. á bls. 27.
FÁLKINN 25