Fálkinn - 24.05.1965, Qupperneq 16
• Stúlkan í gulu
kápunni
Framh. af bls. 13.
við umferðarljósin í 5. götu.
Loren dró úr hraðanum. Svo
kom grænt ljós, og bíllinn hélt
áfram í áttina út úr borginni.
Loren ók á eftir.
Við 11. stræti beygði sá ljós-
græni til vinstri. Umferðin niður
i bæ tafði Loren um hríð. Þegar
henni tókst loksins að fylgja
bilnum eftir, hafði hann heil-
mjkið forskot.
Loren elti. Á virkum degi hefði
þetta verið vonlaust verk, en á
sunnudögum var sama og engin
umferð.
Þegar sá ljósgræni beygði inn
i 22. stræti, var Loren búin að
ná honum.
Hún ók á eftir honum I um
það bil 30 metra fjarlægð.
Nú sá hún greinilega, að það
voru tveir í bílnum, karlmaður
og stúlka.
Stúlkan var með bláa slæðu ...
Loren jók hraðann.
En um leið fóru skötuhjúin
I hinum bílnum að hraða sér
lika.
Þau óku inn á West Side
Highway og síðan í áttina til
Hawthorne Rondeel.
Loren hélt áfram á eftir þeim.
Ég verð að komast að, hvað
þetta á allt að þýða, hugsaði
Loren, hélt fast um stýrið og
einblíndi á ljósgræna bílinn.
Ég veit, að enginn trúir mér,
ekki lögreglan — og Peter bara
vegna þess að hann elskar
mig...
Kannski er ég að gera hroða-
lega vitleysu núna — ég hefði
átt að láta lögregluna vita, strax
og ég fann líkið i íbúðinni minni!
Hún einbeitti athyglinni að
konunni í ljósgræna bílnum, þar
sem hún sat makindalega við
hliðina á manninum.
Hver var hún?
TRÚLOFUNAR
ULRICH FALKNER GULLSM
LÆKJARGÖTU 2 2. HÆÐ
16 FÁLKINN
En alitaf þegar Loren ætlaði
að fara að sveigja framhjá, jók
hinn billinn hraðann.
Hvað hafði hún viljað i íbúð-
ina hennar?
Loren reyndi að komast fram
• úr hinum bílnum til þess að geta
séð fr'aman í konuna: Hver var
þetta?
Loren komst ekki fram úr
honum.
Peter, hugsaði hún... Bara ef
Peter væri með mér núna ...
Ég er hrædd — hrædd við allt,
sem búið er að gerast, og það
sem eftir á að gerast...
En ég verða að sanna, að ég
hef allan timann sagt sannleik-
ann!
Ég verð að sanna, að það er
alltaf eitthvað nýtt og nýtt að
koma fyrir, sem á að gera mig
grunsamlega, sem á að koma
öllu á mig, svo að ég verði til
þess að leiða gruninn frá hinum
seku...
Og Loren ók enn á eftir Ijós-
græna bilnum.
Og nú beygði hann einmitt inn
á Taconie Stau Parkway.
—v—
Eftir að Peter Sayers hafði
skilið við þá Stein og Simmons,
ók hann fram og aftur um borg-
ina án þess að hafa nokkurt
sérstakt markmið.
Hvar skyldi Loren vera núna?
Það var óhugsandi, að hún
hefði farið aftur heim til sín:
Henni hlaut að hafa orðið óskap-
lega um að sjá myrta manninn
á gólfinu þar.
Peter beygði inn í Saw Mill-
stræti. Þaðan lá vegur beint til
Stamford.
Peter steig benzínið i botn.
Það var næstum víst, að Loren
hefði farið heim til frænda síns
og biði þar eftir Peter — að
minnsta kosti hlaut hún að
koma þangað.
Þegar Peter ók skömmu seinna
íramhjá grasflötinni og upp að
húsinu í Stamford, stóð Charles,
kjallarameistari, úti á tröppum.
Peter nam staðar og stökk út
úr bílnum.
„Guði sé lof, að þér eruð kom-
inn!“ Charlés var fölur og gat
varla staðið á fótunum.
Peter skellti aftur bílhurðinni.
„Hvað hefur komið fyrir?“
„Ungfrú Hartley hringdi."
„Og hvað sagði hún?“
„Ja, þáð er nú það ... Hún var
i óskaplegu uppnámi... Hún
sagðist vera á eftir einhverj-
um ...“
Peter gekk framhjá Charles,
settist í körfustól, en stóð sam-
stundis upp aftur.
„Viljið þér ekki endurtaka orð-
rétt, hvað ungfrú Hartley sagði!“
„Jú, jú ...“ Charles margrugl-
aðist i frásögninni, en tókst þó
loksins að gera Peter skiljanlegt,
hvað Loren hefði sagt.
„Fyrir svona hálítíma hringdi
ungfrú Hartley hingað. Hún
spurði um yður, og þegar ég
sagði, að þér væruð ekki hérna,
bað hún mig að segja yður..
„Hvað?“
„Tja... hún sagði, að hún
væri að elta einhvern ...“
„Hvern?“
Charles yppti öxlum. „Það
sagði hún ekki. Hún sagði bara,
að hún væri stödd á benzin-
stöð ... benzínstöð við eitthvert
torg...“
Hann leitaði í vösum sínum
og fann loksins miðann, setti
síðan á sig gleraugun með mikl-
um tilburðum og sagði svo: „Við
torg, sem heitir Van Brunt."
„Sagði hún nokkuð annað?"
„Hún bað mig að hringja lika
til Steins, lögreglumanns, og
segja honum það sama.“
„Og gerðuð þér það?“ Peter
gat ekki leynt óþolinmæði sinni.
„Já ... en Stein var farinn aí
skrifstofunni. Ég talaði við annan
rannsóknarlögreglumann — en
hann vissi ekkert um þetta.
Hann skrifaði það samt allt hjá
sér.“
Peter gekk að bilnum sinum,
náði þar í vegakort og leitaði
að torginu, sem Loren hafði
nefnt.
Van Brunt lá fyrir ofan Peeks-
hill ekki langt frá Hudson-fljót-
inu við götu, sem var aðeins
sýnd með örmjórri línu á kort-
inu.
„Hvað ætlið þér nú að gera
hr. Sayers?“ spurði Charles, sem
hafði fylgzt með honum.
„Ég fer á þessa benzinstöð,"
sagði Peter.
Hann settist inn í bílinn og ók
af stað.
Með því að stytta sér leið
komst hann að vörmu spori upp
á Saw Mill-stræti, og þaðan ók
hann í norðurátt að Hudson-
fljóti.
Það hafði mikið kólnað, þegar
leið á daginn, en samt límdist
skyrtan við hann.
Loren...
Hvað var hún að gera — var
hún orðin brjáluð?
Hún var í lífshættu!
Hún var að elta einhvern ...
Og hver var þessi einhver?
Það var aðeins um eitt að
ræða: Hún var á hælunum á
morðingjum Lathrops ...
Kannski hafði hún komið þeim
að óvörum heima hjá sér og elt
þá þaðan?
Peter jók hraðann.
Biddu á benzínstöðinni, Loren,
ó, biddu þar! Þar ertu þó sæmi-
lega örugg!
Gerðu það, Loren — passaðu
þig...
—v—
Ég er nú meira fíflið, sagði
Stein við sjálfan sig. Allt bendir
í sömu átt: Stúlkan myrðir Alex
Hartley til þess að ná í pening-
ana hans.
Svo myrðir hún Lathrop,
vegna þess að hann hefur ætlað
að beita hana fjárkúgun.
Og svo hleypur hún frá öllu
saman! Ekkert er skiljanlegra!
En hvers vegna, hugsaði hann,
hvers vegna losna ég ekki við
HVERFISGÖTU 16
SÍMI 2-1355 s
■c
þá tilfinningu, að eitthvað sé
bogið við þessa röksemda-
færslu...?
Hann fór yfir þetta allt i hug-
anum.
Ef gert væri ráð fyrir, að eiif-
hver óþekkt persóna hefði reypt
Framh. á bls. 35.
NÝJUNG frá
OLTRfí+LfíSH Mascara
gerir augnhárin eins löng og silki-
mjúk og frekast verður á kosið.
ULTRA-LASH gæð-
ir augnhárin mjúkri
lengd án þess að Þau
verði óþjálli. Hinn
frábæri Taper-bursti
lengir bau og gerir
silkimjúk um ieið
og hann litar hvert
hár á hlið og bak
ULTRA-LASH
storknar ekki, smitar,
rákar, óhreinkar eða
flagnar. Hrnn er voð-
felldur, vatnsfastur
og lyktarlaus ... eng-
ar áhyggjur af gljáa,
lausum eða hlykkjuð-
um hárum. Þvæst uí
á svipstundu með Mayuellina
Mascara uppleysara, í þrem hríf-
andi litbrigðum: Flauelssvörtum,
eirbrúnu og myrkbláu.
alltaf hið vandaðasta og bezta
til augnfegrunar.