Fálkinn - 24.05.1965, Síða 30
Tjöld innlend og erlend nýjar gerðir,
orangelituð með blárri þekju.
Svefnpokar sem breyta má í teppi..
Vindsængur sem breyta má í stóla frá kr. 480.00.
Picnic töskur.
Ferðagasprímusar.
Pottasett frá kr. 290.00.
Ferðatöskur frá kr. 147.00, að ógleymdri
veiðistönginni.
Póstsendum.
Laugavegi 13 — Sími 13508.
að lesa, skrá í dagbók, merkja
svo það færi rétta boðleið eða
svara því sjálfur.
„Hypjaðu þig nú, Dorsey,“
sagði hann. „Sjáumst seinna.“
Aðkomnu skeytin fjölluðu um
öll möguleg hernaðarleg smáat-
riði: Swain ofursti, afskráður
sendiráði Buenos Aires, áleiðis
til Washington, taka við öðru
starfi, æskir leyfis gefa Scott
hershöfðingja sjálfum munnlega
skýrslu ... Gen Kelly hershöfð-
ingi, yfirforingi Lageris flug-
stöð, Azoreyjum, hvetur Sam-
eiginlega yfirherráðið til að
áfrýja úrskurði landvarnaráð-
herra um takmörkun á áfengis-
skammti til liðsforingjaklúbba.
Úrskurður hefur slæm áhrif
baráttuhug stöðinni hér ... Yfir-
foringi 101. flugherdeild, Fort
Campbell biður útskýringu undir-
málsgr. c aðalmálsgrein 15 gagn-
rýni Sameiginlega yfirherráðs-
ins frammistöðu flugdeilda síð-
ustu alrauðu æfingu ...
Casey hafði fyrir reglu að
vinna sjálfur skrifstofustörfin
þegar hann átti sunnudagsvakt.
Hann dró því að sér ritvél og
gekk frá svörum við sumum
fyrirspurnunum, hversdagsleg-
um hlutum sem yfirherráðið
hafði fengið honum vald til að
úrskurða. Hinum skeytunum
var komið fyrir í hylki, þar sem
þau skyldu biða úrskurðar fimm
æðstu herforingjanna sjálfra.
Casey festi athugasemdamiða
við hvert um sig. Meðan á þessu
stóð þurfti hann öðru hvoru að
lita í einhverja af mörgum laus-
blaðabókum, allar með áletrun-
inni Hernaðarleyndarmál, sem
hann tók út úr öryggisskjala-
skáp sínum.
Komið var undir hádegi þegar
hann lagði af stað til dulmáls-
herbergisins með skjalamöppu
fulla af svarskeytum. En fyrst
þurfti hann í daglega húsvitjun
í stríðsherbergi Sameiginlega
yfirherráðsins. 1 þessum stóra
sal, innanum heimskort og
smærri kort af „hættusvæðum",
héldu liðsforingjar vörð dag
og nótt fyrir æðstu herstjórn
landsins. Beinir herstjórnarsím-
ar tengdu stríðsherbergið við á
annað hundrað meiriháttar her-
stöðvar, þar á meðal yfirher-
stjórn sprengjuflugvélaflotans
hjá Omaha, loftvarnastjórn N-
Ameriku í Colorndo Springs og
aðalstöðvar NATÓ í París. Á
sérstöku borði stóðu tveir sím-
ar, gylltur og rauður, um þá
yrðu gefnar fyrirskipanir ef til
ófriðar kæmi.
Casey spjallaði við varðstjór-
ann. Á kortunum var ekki að
sjá neinn sérstakan hernaðar-
viðbúnað, nema ferhyrning sem
markaður var með rauðri krít
á Suður-Kyrrahafi. Þar áttu sex
kjarnorkukafbátar að hefja skot-
æfingar með Pólaris-flugskeyt-
um næsta dag, en siíkt var al-
vanalegt. Casey stóð ekki við
í stríðsherberginu nema nokkr-
ar mínútur.
Á leiðinni eftir aðalgangi
30 FÁLK/NN
Pentagon stanzaði hann og leit
út um glugga á sólbjartan húsa-
garðinn. Mjó trégrindin í þaki
laufganganna og háir stein-
steypuveggirnir gáfu húsagarð-
inum jöfnum höndum svip af
fangelsisgarði og þorpstorgi.
Milt maísólskin flóði um garð-
inn; á svona degi hlaut mann
að langa til að eiga sumarbústað,
stól undir laufsælu tré og kann-
ski nokkra hesta.
Hesta. Svo Jim séntilmaður
var með félagsveðmál á Preak-
nessið, hm. Casey glotti. Svona
gat Scott verið lævís, blekkt
æðstu herstjórnendur sína með
blaðri um veðreiðar sem áttu
að fara fram sama daginn og
og alrauða viðbúnaðaræfingin.
Enginn hafði verið ánægður
með síðustu alrauðu æfinguna
sex vikum áður. Hún kom á
tvo árásarflota flugvélaskipa
liggjandi í höfn með annað hvert
skip óvirkt vegna smáviðgerða
sem hefði átt að vera lokið fyrir
mörgum vikum. Rétt rúmur
þriðjungur flugvéla árásarflug-
flotans komst á loft á tilsettum
tima. Ávæningur af ringulreið
í nokkrum herstöðvum hafði
síazt til blaðanna. Lyman for-
seti símaði tvisvar til að vita
hvað væri að, og Scott, sem
sjaldan skipti skapi, varð fok-
vondur.
Niðurstaðan varð ákvörðun um
aðra fyrirvaralausa æfingu i
þessari viku. Ékki voru liðnir
nema þrír dagar síðan yfirher-
ráðið tiltók æfingardaginn, og
enn vissu ekki aðrir um hann
en ráðsmennirnir fimm, nema
forsetinn, Casey og George Mur-
dock ofursti, aðstoðarforingi
Scotts. Ekki einu sinni land-
varnaráðherrann var látinn vita
hvað til stóð, svoleiðis vildi for-
setinn hafa það, sagði Scott.
Samlyndið milli forsetans og ráð-
herrans fór versnandi, máske
vakti það fyrir Lyman að koma
ráðherranum í opna skjöldu.
Scott hafði valið stundina sjálf-
ur, laugardaginn í þessari viku,
18. maí, klukkan 1900 eftir
Greenwich meðaltima, 1500 eftir
staðartíma í Washington. Casey
taldi að alrauða æfingin á laugar-
dag yrði góð prófraun á úrbæt-
urnar sem fyrirskipaðar voru í
snatri eftir ófarirnar í marz. Um
nónbil á iaugardegi í Washing-
ton yrði venjuiegt helgarástand
hafið fyrir góðri stundu á flest-
um bandarískum herstjórnar-
svæðum. Ef einhvern tíma kæmi
til þess að þrýst yrði á hnapp-
inn í Moskvu, mátti ganga að
því vísu að það yrði ekki frá
því klukkan níu árdegis á mánu-
dag fram til klukkan 4.30 síð-
degis á föstudag.
Og nú gerði Scott sér far um
að villa um fyrir fimm æðstu
herforingjum sínum með skeyt-
inu um Preaknessið, rástíminn
var meira að segja hafður sá
sami og hann hafði valið til að
kunngera æfinguna. Casey sleit
sig frá glugganum og hélt áfram
eftir ganginum að dyrum dul-
málsherbergis allra hergreina.
Varðmaður hleypti honum inn,
en þar mátti segja að flotinn
hefði ailt með höndum. Fjórir
sjóliðar með heyrnartól sátu við
ritvélar. Aðrar dyr, svartar með
„Aðgangur bannaður" áletrað
stórum, hvítum stöfum, voru
fyrir dulmálslyklaklefanum, þar
sem Hough hafðist lengst af við.
En nú lá hann fram á autt skrif-
borð í fremra herberginu og las
myndasögurnar í sunnudagsblöð-
unum. „Halló, ofursti," gall
hann við. „Ertu með einhver
verkefni fyrir tígrisdýrin min?“
Casey rétti honum umslagið.
Hough blaðaði í skeytunum, tók
þau frá sem hann þurfti sjálf-
ur að þýða á dulmál og skipti
hinum milli símritaranna. Casey
sýndi á sér fararsnið, en Hough
klappaði á handlegginn á hon-
um. „Líttu á þetta, ofursti."
Casey tók við skæninu. Það
var afrit af aðkomnu skeyti:
SCOTT, YFIRHERRÁÐIÐ,
WASHINGTON.
EKKERT VEÐMÁL. EN
BEZTU KVEÐJUR ÆVIN-
LEGA.
BARNWELL,
YFIR SJÖTTA FLT.
„Sönnun um það,“ sagði
Hough, „að stundum á ekki einu
sinni aðmíráll tíu dollara til að
veðja. Eða kannski finnst hon-
um að hann megi ekki gefa flot-
anum slæmt fordæmi."
„Ef þú hættir ekki að skipta
þér af því sem Scott einum kem-
ur við,“ sagði Casey, „er ekkert
líklegra en það verði þitt hlut-
skipti að gefa gott fordæmi á
Aleutaeyjum."
„Hægan, ofursti. Hawaii væri
nógu langt í burtu. 1 rauninni
væri afbragð að komast til Pearl.
Ég sagði Murdock í morgun, að
I staðinn fyrir að stússast í hest-
um ætti hann að gera þessari
andstyggðarborg greiða og fá
mig sendan út í Eyjar."
Casey fór I gegnum forsalinn
og inn í borðsal æðri liðsfor-
ingja. Eins og aðrar vistarver-
ur í húsinu var hann næstum
►