Fálkinn - 24.05.1965, Síða 42
fiennar, sem hún hafði haldið,
að væri trúverðugasti maður,
sem hugsazt gat ...
„Og hvað ætlið þið nú að
gera?“ rödd Lorenar hljómaði
einkenniiega rólega, hún undr-
aðist það sjálf.
„Það færðu fljótlega að sjá,
væna mín.“
Bob setti upp skinnhanzka,
gekk inn i hliðarherbergið og
kom tii baka með ferðatösku.
Hann opnaði hana og fór að taka
upp úr henni föt.
Það voru föt Lorenar ...
Bob hafði sótt þau í ibúð
hennar, eftir að systir hans hafði
rekið Lathrop í gegn.
„Allt mun benda til þess að
þú hafir ætlað að koma þér
skemmtilega fyrir hérna,“ sagði
Bob. „Það er bráðum kominn
hálfur mánuður, síðan þú tókst
húsið á leigu — og auðvitað
undir föisku nafni.“
Hann hengdi föt Lorenar um-
hyggjusamlega inn í skápinn.
„Þú leigðir húsið undir nafn-
inu — Alice Jackson ...“
Dorothy Campbell lokaði
skápnum, tók veski Lorenar,
opnaði það og dreifði snyrtivör-
um hennar víðs vegar um her-
bergið.
„Ég viðurkenni, að þú átt rétt
á skýringu," sagði Bob.
Hann greip ullarklút og byrj-
aði næstum fjálgur á svipinn
að útmá öll fingraför eftir sig
og Dorothy: hann þurrkaði hurð-
arhúna, stólarma og borð og
skápa — og alla þá staði, sem
þau systkinin kynnu að hafa
snert.
„Eins og ég var að segja —
skýringin er sú,“ byrjaði hann
mjúkri röddu. „Við Dorothy vor-
um að velta fyrir okkur, hvernig
við gætum á auðveldastan hátt
náð í peninga. Og þá datt okk-
ur i hug blessunin hann Alex
frændi í hug... Svo að við
ákváðum að kála honum. En
ekki gátum við gengið beint til
verks.. .“
Hann staðnæmdist fyrir fram-
an Loren og brosti blíðlega.
„Við þurftum að finna ein-
hvern, sem auðvelt var að gera
tortryggilegan, og svo völdum
við þig. Veiztu hvers vegna?"
Loren leit upp til hans. Aldrei
hafði hún látið blekkjast jafn
hrapallega og af Bob ...
„Það var ofur einfalt, barnið
gott: Þú ert nánasti ættingi
hans — og svo kem ég. En ef
þú drepur hann, minnka talsvert
horfurnar á þvi, að þú erfir
hann .. . Og þá er komið að okk-
ur Dorothy. Skilurðu?"
Dorothy Campbell leit á klukk-
una. „Flýttu þér svolítið," sagði
hún.
„Þetta er alveg pottþétt," hélt
Bob áfram. Hann studdi báðum
höndunum á armana á stólnum,
þar sem Loren sat. „Þú hefur
nefnilega spunnið þetta allt upp,
Loren ... okkur líka. Þú hefur
alltaf verið að segja lögreglunni
einhverja vitleysu um hann Bob
frænda þinn og Alice Jackson —
en þú getur ekkert sannað, því
þú bjóst þetta sjálf til... Og
við erum alls ekki til — að
minnsta kosti ekki i New York!“
Dorothy brosti háðslega. ís-
kalt augnaráðið beindist að Lor-
en.
Framh. í næsta blaði.
® Hreinsið hörundið
Framh. af bls. 38.
2—3 msk. af geri hrært út
í þykkan graut með köldu,
saðnu vatni, eða sódavatni.
í öllum tilfellunum er grím-
an sett jafnt á andlit, háls og
hnakka og hún á að liggja á
hörundinu, þar til hún er vel
þurr. Þá er hún þvegin varlega
af með köldu, soðnu vatni,
sódavatni eða soði af sítrónu-
berki. Þá er hörundið bleytt
vel aftur og aftur með ísköldu
vatni. Það örvar blóðrásina og
herðir andlitsvöðvana. Nú er
hörundið vætt með andlitsvatni.
• Norsk peysa
Framh. af bls. 39.
Saumið saman axlirnar á rétt-
unni. Takið í hverja brugðna
lykkju, ágætt er að sauma með
tvöföldum þræði en skiljið eftir
um 25 cm breitt hálsmál. Setj-
ið ermarnar þannig í, að síð-
ustu 4 sléttprjónuðu umferð-
irnar geti lagzt á röngunni
yfir uppúrklippta handvegin-
um. Saumið ermarnar í frá
réttunni, saumið í 1. 1. fyrir
innan vélsauminn á bolnum og
í brugðnu umf. á erminni. Snúið
peysunni við og saumið innaf-
brotið niður með lausum spor-
um, svo að ekki taki í. Allir
saumar pressaðir.
Húfan: Fitjið upp með rauðu
(grænu eða gulu) garni 126 1.
á sokkaprj. nr. 3. Prjónið 2 cm
brugðningu, 1 sl., 1 br. Prjón-
ið síðan mynsturröndina, sem
merkt er á skýringamynd.
Pi'jónið því næst 1 umf. einlita
og svo er farið að taka úr:
Prjónið 12 sl., 2 saman, út umf.
Næsta umf.: 11 sl., 2 saman,
út umf.
Haldið þannig áfram með 1 1.
færra milli hverrar úrtöku þar
til 9 1. eru eftir. Dragið tvö-
faldan þráð gegnum lykkjurn-
ar og herðið vel að. Gengið vel
frá endunum. Heklið um 17 cm
langa snúru. Festið snúruna á
húfukollinn, búið til lítinn
dúsk á snúruendann.
Húfan pressuð varlega.
© Kanelkaka
Framh. af bls. 39.
bita, sem raðað er með
nokkru millibili í mótið.
Rakur klútur látinn yfir
mótið.
5. Kakan látin lyfta sér um
helming, nál. 1 klst. Smurð
með eggi, bökuð við 200° í
15—18 mínútur. Kakan sett
á grind stykki látið yfir
meðan hún kólnar.
mi
i stjörnurnar
Kæri Astró.
Ég hef lesið þætti þína undanfarið og oft langað til að skrifa
þér, en hef aldrei látið verða af því fyrr en nú.
Mig langar til að vita eittlivað um framtíðina. Ég er fædd
1947. Hvenær trúlofast ég eða giftist? Verð ég hamingjusöm
í hjónabandi? Eignast ég mörg börn? Hvernig verður fjárhag-
urinn og heilsan? Er útlit fyrir að ég haldi áfram að eiga
heima þar sem ég er nú?
Með fyrirfram þökk fyrir svarið, sem ég vonast eftir að lesa
í Fálkanum áður en langt um líður.
Ninný.
Svar til Ninnýjar:
Þér er svolítið hætt í ásta-
málunum, og ef þú lætur róm-
antíkina ráða of mikið gjörð-
um þínum, gæti svo farið, að
það tefði dálítið fyrir þér á
ýmsum sviðum. Þú hefur Úr-
anus í sjöunda húsihjónabands-
ins og bendir hann til allmikill-
ar rómantíkur. Stundum bendir
hann til giftingar á unga aldri,
skyndilegra og óvæntra gift-
inga, en er einnig sú pláneta,
sem gefur til kynna aðskilnað
hjóna. Það er því þörf á að
gæta varkárni í vali maka, þvi
að þessi pláneta veldur oft
skyndihrifningu, sem þá stend-
ur varla nóttunni lengur. Þér
hættir einnig til að taka ástar-
ævintýri full alvarlega, þó að
aðeins sé um leik að ræða hjá
hinum aðilanum, og geta þvi
ástai-samböndin valdið þér sorg
og vonbrigðum, ef þú anar út
í þau hugsunarlaust. Þú hefur
að mörgu leyti mjög mikla
möguleika til að verða ham-
ingjusöm, og ég held, að ef þú
kemst hjá skakkaföllum í ásta-
málum á meðan þú ert að
hlaupa af þér hornin, vei-ðirðu
ánægð í hjónabandi og heim-
ilislífi. Þú ert að öllum líkind-
um nokkuð skapmikil og fljót
að skipta skapi og stundum dá-
lítið viðkvæm. Þú vilt hafa
frelsi til að gera það sem þér
þóknast. Ef þú hefur gefið upp
réttan tíma, þá bendir allt til,
að þú munir ekki alltaf eiga
heima á sama stað. Þú hefur
þó nokkra löngun til að ferðast
og sjá þig um og það má einnig
búast við að þú hafir nokkuð
oft bústaðaskipti þegar líða tek-
ur á ævina. Heimilislíf hefur
nokkuð ríkt aðdráttarafl fyrir
þig, og þú munt ávallt leitast
við að eiga gott heimili, hvar
sem þú ert niðui-komin. Þú
munt varla eiga mjög mörg
börn, nema þá að maki þinn
sé með sérstaklega frjósamt
merki á geisla fimmta húss.
Fjármálin verða yfii-leitt í góðu
lagi svo lengi sem þú hugsar
eingöngu um þína eigin fjár-
muni, en þú ættir aldrei að
skipta þér af fjármálum ann-
arra, og eftir giftingu ættii'ðu
að láta manninn hafa veg og
vanda af fjármálunum.
Ef svo skyldi fara, að þú lent-
ir í einhverju ástarævintýri í
júlí—sept. í sumar, þá skaltu
minnast þess að láta ekki róm-
antíkina bera skynsemina of-
urliði. Þér bjóðast nóg tæki-
færi þótt síðar verði. Þú þarft
ekki að verða hrædd um að þú
piprir.
FÁLKINN