Fréttablaðið - 05.10.2009, Page 33
MÁNUDAGUR 5. október 2009 17
Myndbandakeppni 66° Norður
stendur nú yfir í grunnskólum
landsins. Þema keppninnar í ár
er íslenskur iðnaður.
Hugmyndin að keppninni
kemur frá Sigurjóni Sighvats-
syni, kvikmyndargerðarmanni
og eiganda 66° Norður, en hann
vildi gefa börnum sem hafa
áhuga á kvikmyndagerð tæki-
færi til þess að spreyta sig á
þeim vettvangi.
Í dómnefnd eru, ásamt Sig-
urjóni, þau Katrín Jakobsdótt-
ir menntamálaráðherra, Júlí-
us Kemp leikstjóri og Böðv-
ar Bjarki Pétursson, skólastjóri
Kvikmyndaskóla Íslands. Þau
munu velja sigurvegara en taka
einnig mið af netkosningu.
Keppt er í tveimur aldurs-
flokkum, 1. til 7. bekkjar og 8. til
10. bekkjar. Skóli vinningshaf-
ans mun fá Sony myndbandsupp-
tökuvél frá Sony Center að and-
virði 174.990 krónur en auk þess
munu vinningshafarnir fá fatn-
að frá 66° Norður að andvirði
150 þúsund krónur í verðlaun.
Myndbanda-
keppni
66° Norður
HUGMYNDASMIÐIR Sigurjón Sighvats-
son vill veita börnum sem hafa áhuga
á kvikmyndagerð tækifæri á þeim
vettvangi.
Fyrirtækið Íslensk hollusta ehf.
hlaut í síðustu viku viðurkenn-
ingu úr Verðlaunasjóði iðnaðar-
ins. Katrín Júlíusdóttir iðnað-
arráðherra afhenti Eyjólfi Frið-
geirssyni, stofnanda Íslenskrar
hollustu, verðlaunafé að upphæð
ein milljón króna, verðlaunagrip
og viðurkenningarskjal. Verð-
launagripurinn heitir Hjólið og
er tákn mannsins fyrir uppgötv-
un, framfarir og virkni.
Verðlaunasjóður iðnaðarins
var stofnaður árið 1976 af Kristj-
áni Friðrikssyni í Últíma og fjöl-
skyldu hans.
Eyjólfur stofnaði Íslenska holl-
ustu ehf. árið 2005 til að þróa og
framleiða hollustufæði. Fyrirtæk-
ið hefur sett á markað hátt í tvo
tugi vara, allt frá jurtatei, þara-
kryddi og sósum til osta, snakks,
berjasafts og baðefnis.
Hugmyndafræði fyrirtækisins
snýst um að nýta þær auðlindir
sem finnast í íslenskri náttúru til
manneldis og heilsubótar.
Íslensk hollusta hlýtur viðurkenningu
VERÐLAUNAAFHENDING
Katrín Júlíusdóttir afhenti
Eyjólfi viðurkenningu, verð-
launagrip og eina milljón
króna.
Tónlistarkonurnar Helga Þórar-
insdóttir og Dagný Björgvins-
dóttir leika saman á víólu og
flygil á tónleikum á Bókasafni
Seltjarnarness í kvöld klukk-
an 17.30.
Te og tónlist eru stuttir tón-
leikar og hugsaðir þannig að
fólk geti komið við á bókasafn-
inu, hvílt sig og notið tónlistar á
heimleiðinni.
Tónleikarnir eru samstarfs-
verkefni bókasafnsins og Tón-
listarskóla Seltjarnarness. Eru
þeir jafnframt liður í Listaviku
bókasafnsins sem Ásgerður
Halldórsdóttir bæjarstjóri setti
síðastliðin fimmtudag að við-
stöddu fjölmenni en um hana má
lesa frekar á vefsíðunni www.
seltjarnarnes.is/bokasafn.
Þess skal getið að aðgangur
á tónleikana er ókeypis og eru
allir velkomnir.
Notalegir tónar
á Seltjarnarnesi
LISTAVIKA Tónleikarnir eru hluti af Lista-
viku Bókasafns Seltjarnarness, sem var
sett í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
9
-
1
4
9
2
NÝR JÓ
GÚRT
DRYKK
UR
ENGIN
SÆTUEFNI
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS
AÐEINS
1% FITA20%
ÁVEXTIR