Fréttablaðið - 05.10.2009, Side 48

Fréttablaðið - 05.10.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er mánudagurinn 5. okób- er 2009, 278. dagur ársins. 7.48 13.16 18.42 7.36 13.01 18.24 New York New York! Iceland Express kynnir: með ánægju Tímamót í flugsamgöngum! Í júní á næsta ári hefur Iceland Express áætlunarflug til New York og verður flogið fjórum sinnum í viku um Newark-flugvöll. Loksins, loksins fá íslenskir ferðalangar annan valkost þegar kemur að því að ferðast til Bandaríkjanna. Bókaðu núna flug til New York á www.icelandexpress.is Fyrstu sætin frá: 19.900 kr. Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Sala hefs t kl. 12:00 á hádegi ! Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Hvar er þín auglýsing? 35% 72% Mánuði eftir að ég horfði klökk á eftir litlu dótturinni byrja í skóla, taldist mér til að á tíma- bilinu væru horfnar þrjár húfur, eitt buff, fjölmargir vettlingar og ullarsokkar auk gullfallegu lopa- peysunnar frá ömmu. Þrátt fyrir talsverða vandvirkni höfðum við steingleymt að kenna barninu að passa sjálfu upp á fötin sín. Á tíu skrefa ferðalagi á frístundaheim- ilið eftir skólatíma getur greini- lega allt gerst. Afföllin voru orðin umtalsverð og ullarsokkalager- inn yrði brátt á þrotum. Sama dag og gúmmístígvélin hurfu líka og í þeirra stað önnur skilin eftir, fjórum númerum of lítil, gerðist tvennt: Spáð var haugarigningu og mælirinn var fullur. URRANDI af geðvonsku æddi ég af stað eftir kvöldverkin út í myrkur og slagviðri í einu búðina sem opin er svona seint og selur hlífðarfatnað. Gramsaði þusandi fúl eftir réttum stærðum og gerð- um af gúmmístígvélum og öðrum nauðsynjum. Það var ekki fyrr en á leiðinni löngu á afgreiðslukass- ann sem mér varð ljóst að ég var reyndar klædd náttfötum og þau stungu undarlega í stúf við háu hælaskóna. Sem betur fer býr kona á mínum aldri yfir töluverðri reynslu í að láta sem ekkert sé. JAFNVEL kaldrifjaðir töffarar fara dálítið á taugum þegar litla rúsínubollan þeirra stígur fyrstu sjálfstæðu skrefin fyrir alvöru og hefur skólagöngu. Þeir dagar liðnir þegar tekið er á móti barn- inu með faðmlagi af hlýlegu stað- foreldri í líki leikskólakennara. Hámarks öryggisgæsla fyrir bí, bómullarlífið búið að eilífu. Fram- vegis verður litla viðkvæma blóm- ið að bjarga sér upp á eigin spýtur í hörðum heimi, sneisafullum af hrekkjusvínum. JAFNVEL dásamlegar móttökur í nýja skólanum ná ekki að sefa nema verstu ekkasog foreldranna og fyrstu morgnana þarf að smala þeim út úr skólastofunni með valdi svo kennsla geti hafist. Sem betur fer líður öryggisleysið fljótlega hjá og fyrr en varir eru foreldrarnir farnir að haga sér nokkuð eðlilega í hinum nýja raunveruleika. Hætt að yfirheyra barnið í þaula um öll smáatriði lærdóms, athafna og nýrra félaga og reyna ekki lengur að slá í gegn með flottasta nestis- boxinu. Furðu fljótt beinist athygl- in einkum að því hvort vettlingar og húfa hafi skilað sér heim. Bómullarlífið búið að eilífu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.