Fréttablaðið - 05.10.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er mánudagurinn 5. okób-
er 2009, 278. dagur ársins.
7.48 13.16 18.42
7.36 13.01 18.24
New York
New York!
Iceland Express kynnir:
með ánægju
Tímamót í flugsamgöngum!
Í júní á næsta ári hefur Iceland Express áætlunarflug til New York
og verður flogið fjórum sinnum í viku um Newark-flugvöll.
Loksins, loksins fá íslenskir ferðalangar annan valkost þegar
kemur að því að ferðast til Bandaríkjanna.
Bókaðu núna flug til New York á www.icelandexpress.is
Fyrstu sætin frá:
19.900 kr.
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Sala hefs
t
kl. 12:00
á hádegi
!
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Hvar er þín auglýsing?
35%
72%
Mánuði eftir að ég horfði klökk á eftir litlu dótturinni byrja
í skóla, taldist mér til að á tíma-
bilinu væru horfnar þrjár húfur,
eitt buff, fjölmargir vettlingar og
ullarsokkar auk gullfallegu lopa-
peysunnar frá ömmu. Þrátt fyrir
talsverða vandvirkni höfðum við
steingleymt að kenna barninu að
passa sjálfu upp á fötin sín. Á tíu
skrefa ferðalagi á frístundaheim-
ilið eftir skólatíma getur greini-
lega allt gerst. Afföllin voru orðin
umtalsverð og ullarsokkalager-
inn yrði brátt á þrotum. Sama dag
og gúmmístígvélin hurfu líka og
í þeirra stað önnur skilin eftir,
fjórum númerum of lítil, gerðist
tvennt: Spáð var haugarigningu
og mælirinn var fullur.
URRANDI af geðvonsku æddi
ég af stað eftir kvöldverkin út í
myrkur og slagviðri í einu búðina
sem opin er svona seint og selur
hlífðarfatnað. Gramsaði þusandi
fúl eftir réttum stærðum og gerð-
um af gúmmístígvélum og öðrum
nauðsynjum. Það var ekki fyrr en
á leiðinni löngu á afgreiðslukass-
ann sem mér varð ljóst að ég var
reyndar klædd náttfötum og þau
stungu undarlega í stúf við háu
hælaskóna. Sem betur fer býr
kona á mínum aldri yfir töluverðri
reynslu í að láta sem ekkert sé.
JAFNVEL kaldrifjaðir töffarar
fara dálítið á taugum þegar litla
rúsínubollan þeirra stígur fyrstu
sjálfstæðu skrefin fyrir alvöru
og hefur skólagöngu. Þeir dagar
liðnir þegar tekið er á móti barn-
inu með faðmlagi af hlýlegu stað-
foreldri í líki leikskólakennara.
Hámarks öryggisgæsla fyrir bí,
bómullarlífið búið að eilífu. Fram-
vegis verður litla viðkvæma blóm-
ið að bjarga sér upp á eigin spýtur
í hörðum heimi, sneisafullum af
hrekkjusvínum.
JAFNVEL dásamlegar móttökur
í nýja skólanum ná ekki að sefa
nema verstu ekkasog foreldranna
og fyrstu morgnana þarf að smala
þeim út úr skólastofunni með valdi
svo kennsla geti hafist. Sem betur
fer líður öryggisleysið fljótlega hjá
og fyrr en varir eru foreldrarnir
farnir að haga sér nokkuð eðlilega
í hinum nýja raunveruleika. Hætt
að yfirheyra barnið í þaula um öll
smáatriði lærdóms, athafna og
nýrra félaga og reyna ekki lengur
að slá í gegn með flottasta nestis-
boxinu. Furðu fljótt beinist athygl-
in einkum að því hvort vettlingar
og húfa hafi skilað sér heim.
Bómullarlífið
búið að eilífu