Fréttablaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 34
18 5. október 2009 MÁNUDAGUR NOKKUR ORÐ Þórunn Elísabet Bogadóttir ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Og til þess að komast á leynda staðinn verðurðu að drepa drekann sem vaktar leiðina inn! Svo verðurðu að finna blinda munkinn til að fá kóðann til að opna kistuna, sem er vöktuð af brjáluðum hundum. Ég missti fjögur líf en náði rétt svo að klára! Heyrirðu eitthvað sem ég er að segja? Þú náðir rétt svo að klára! Haltu áfram! Ég hlakka svo til að deila skáp með þér, Sara! Ég er pínu stress- uð yfir þessu. Ég meina, hvað ef þetta gengur ekki upp? Hvað ef þetta reynist of mikið? Hvað ef ávanar okkar láta hinn fá nóg? Gott, í hvaða hillu á ég að geyma túrtappana mína? Ég get næstum því lofað því að svo verður ekki. Sara, Sara, Sara... Lalli, þessir púðar mættu alveg vera mýkri. Ertu ekki til í að hringja niður í móttöku? Hvað ertu að horfa á Solla? Atvinnumenn í nautaati. Vá! Þetta eru ansi grimmileg- ar skepnur! Ég veit. Ég vorkenni grey bol- unum. ... eftir að hafa unnið hundarækt- arkeppnina fær Fífi ekki frið fyrir hundóðum ljós- myndurunum... Það er orðið ansi langt síðan ég fékk ógeð á Icesave. Ekki bara fyrirbær-inu, heldur orðinu. Undir lok sumars- ins var þetta hreinlega orðið þannig að í hvert skipti sem ég þurfti að skrifa orðið, og það var mjög oft, fékk ég hroll. Ég er alveg ábyggilega ekki ein um þetta. En aldrei skulum við fá frí frá þessu. Ekki einn einasti dagur virðist líða hjá án þess að þetta beri á góma. Ef ekki í frétta- tímum, þá bara einhvers staðar annars staðar. Ég ákvað að kanna málið aðeins frekar. Getur það í alvörunni staðist að í heilt ár hafi ekki liðið dagur án Icesave? Svarið er já. Á vísir.is var í gær búið að skrifa tæplega 1.800 frétt- ir og greinar þar sem orðið kom fyrir. Á mbl.is höfðu verið skrifaðar rúmlega 1.000 fréttir. Ég geri ráð fyrir því að frá því að fyrirbærið varð til og fram í október í fyrra hafi lítið verið skrifað um það  bara stöku frétt um tæra snilld. Þá stendur eftir að þessir tveir fréttamiðlar hafa sagt okkur eitthvað um Icesave að meðaltali átta sinnum á dag síðustu 365 dagana. Ég lagði ekki í það að reyna að setja fleiri miðla í reikninginn, það væri enn meira niðurdrepandi. Það virðist ekkert lát ætla að verða á þessu. Þá er bara tvennt í stöðunni. Ann- ars vegar að láta þetta yfir sig ganga, og fylgjast áfram með fréttum heimsins, eða hætta að fylgjast með og vonast til að sleppa þannig úr prísundinni. Bráð- um ætla ég að komast burt úr bænum og sleppa interneti, sjónvarpi, útvarpi og blöðum. Og vonast til að upplifa nokkra góða daga án Icesave. Nokkrir góðir dagar án Icesave

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.