Fréttablaðið - 05.10.2009, Síða 36
20 5. október 2009 MÁNUDAGUR
menning@frettabladid.is
Annir um liðna helgi urðu til þess
að ekki var hægt að sjá Heima er
best í Borgarleikhúsinu fyrr en á
laugardagskvöld. Þessi írski farsi
– verðum víst að kalla hann það –
er skrifaður fyrir kvartett, einn
eldri karl, tvo yngri og eina stelpu.
Hann er settur á svið í nýja saln-
um með löngu og loftlágu gati sem
er aflukt þriggja herbergja rými:
við göngum beinlínis inn á feðg-
ana þrjá sem eyða lífinu í síend-
urtekinn flutning á skrumskældri
útgáfu af eigin lífi. Bókstaflega.
Stelpan kemur óvænt inn í leikinn
um miðju og riðlar öllu með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum.
Grunnurinn er staðbundinn: írska
eymdin leiddi til landflótta sem
hefur varað í nær hundrað ár.
Til Suðvestur-Englands fluttu
þúsundir karla og lentu í erfðis-
vinnu, byggðu London, oft einir
með fjölskyldur heima. Um írsku
diasporuna hafa Írar sjálfir smíð-
að blekkingarfulla og sára sögu:
valdastéttin í þeirra gamla landi
kaus frekar að tæma landið en
leyfa samfélagslega uppskipun. Og
í sjálfskipaðri útlegð eru flóttinn
og heimalandið upphafið. Í þessa
sögu blandar höfundurinn minninu
um sterka bróðurinn og veika sem
býsna oft er sögð og harðstjórann
hann pabba. Ég er enn að reyna að
skilja valið á þessu verki á íslenskt
svið: hvaða erindi á það við okkur?
Hvar rímar það við samtímann?
Ef líkindin má grafa upp eru þau
langsótt.
Allt er svo klætt í þvælingslegar
hlutverkaskiptingar á upphöfnu
máli. Guðjón Karlsson og Jörund-
ur Ragnarsson berjast af þolin-
mæði við hlutverk sín og Þröstur
Leó Gunnarsson er svo fjarri því
sannfærandi sem harðstjórinn
sem heldur þessum galskap uppi.
Sýningin verður langdregin, er
mestanpart alveg ófyndin og örlög
þessa liðs snerta mann ekki hið
minnsta. Það er langt síðan mér
hefur leiðst jafn innilega í leik-
húsi og var þraut í hléinu að þurfa
að sitja sýninguna út þótt Dóra
Jóhannsdóttir kveikti smátíru af
áhuga með innkomu sinni en svo
fór allt á sama veg.
Það er afar mikilvægt að leikhús-
stjórar vandi valið í nýjum erlend-
um verkum og finni þeim stað í
samfélagi okkar hér nyrðra. Þetta
stöff átti ekkert erindi hingað á
svið, persónurnar grunnar og end-
irinn fyrirsjáanlegur lengi fram-
an af. Og það sem verst var: hin
marglofaða færni leikaranna við
að skipta um ham reyndist ekki
mikil, trúðsskapur þeirra grautar-
legur og uppskrúfað tal þeirra allt
bull. Má ég biðja um annað nýtt
írskt drama – af nógu er að taka.
Páll Baldvin Baldvinsson
Betur heima setið
LEIKLIST
Heima er best
Enda Walsh
Þýðing: Heiðar Sumarliðason
Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur á Nýja sviði
★
Lítið gaman, betur heima setið
Eins og segir í prógramblaði þess-
arar sýningar virka sum vanda-
mál kannski fáránleg og fyndin
en afleiðingarnar geta orðið væg-
ast sagt rosalegar.
Ungt par ruglar saman reytum
sínum og eins og oft þegar fólk
er að kynnast er það eitthvað sem
fólk gerir til þess að fanga athygli
hins aðilans.
Í þessu tilviki er það ungi maður-
inn Höskuldur sem heillar Hönnu
upp úr skónum með því að vera
mikill brandarakarl og herma
eftir hinum og þessum. Þessir eft-
irhermutaktar fá hana til að hlæja
og hann heillast af henni þegar hún
hlær og svona fer þessi endaleysa
af stað, það er, maðurinn verður
að hermikráku og það verður hans
þráhyggja.
Við erum líklega öll haldin ein-
hverri þráhyggju og birtingar-
mynd hennar er í raun alltaf eins
eða svipuð þótt afleiðingar þrá-
hyggjunnar sé mjög mismunandi.
Maðurinn sem þarf alltaf að berja
í hattahilluna áður en hann fer út
og gerir svo að öðru leyti ekkert
annað er þolanlegur, en maður
sem brýst út í eftirhermur er ger-
samlega óþolandi.
Kristjáni Hrafni tekst hér vel
að lyfta upp þessari röskun sem
í raun getur verið hver sem er.
Ást konunnar er óskiljanleg fyrir
áhorfendur, með öllu óskiljanleg
en þó svo heil og sársaukafull.
Þau Sveinn Geirsson og Tinna
Hrafnsdóttir voru bæði mjög góð
í sínum hlutverkum. Sveinn átti
salinn þegar hann braust út í Ólaf
Ragnar og kærustunni fannst hann
líka fyndinn en svo þegar á leið
hætti hann að vera fyndinn fyrir
hana og það sama gilti fyrir áhorf-
endur þótt þeir hefðu nú meira
langlundargeð.
Þetta var ekki bara smellin sýning
og góð hugmynd heldur að mörgu
leyti svolítið þerapeftískt sýning
býst ég við. Við höfum öll séð eig-
inkonuna, ástkonuna, móðurina,
sem lætur allt yfir sig ganga áður,
en með því að gera fíknina svona
fáranlega verður vandamálið
ferskt og þolanlegt að nýju.
Sviðsetningin er lagleg þótt leik-
myndin þjóni ekki alveg tilgangi
sínum, hefði verið betra að þessi
hringur (vítahringur) sem þau
leika í væri með opum þannig að
stúlkan þyrfti ekki að klofa svona
yfir hann. Tinna Hrafnsdóttir
í hlutverki Hönnu hefur sterka
útgeislun og er fulltrúi normsins
eða hins eðlilega þannig að það var
í sjálfu sér nokkuð ótrúverðugt að
hún skyldi heillast af svona nörd-
týpu sem Sveinn var látinn leika.
Þetta er engu síður skemmtileg
sýning og örugglega einhver sem
getur fundið stimpilinn á þessa
röskun, því allt þarf jú að skil-
greina nú til dags. Elísabet Brekkan
Ég lofa: Aldrei aftur!
LEIKLIST
Fyrir framan annað fólk
eftir Kristján Þórð Hrafnsson
Leikarar: Sveinn Geirsson og Tinna
Hrafnsdóttir
Lýsing: Garðar Borgþórsson
Leikmynd: Leikhópurinn
Tónlist: Sveinn Geirsson
Leikstjóri: Melkorka Tekla Ólafsdóttir
★★★
Lagleg sýning
kl. 21
Kvartett Sigurðar Flosasonar saxófónleikara
kemur fram í Múlanum í kvöld. Með honum
leika Eyþór Gunnarsson, Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson og Einar Valur Scheving, sann-
kallaðar stórkanónur Íslands jazzins. Þetta
eru útgáfutónleikar vegna útkomu nótnabók-
ar Sigurðar, „36 Jazzlög“, og verða þau öll
leikin í Múlanum næstu þrjú kvöld.
Fyrsti þátturinn af Hamrin-
um fór í loftið í gærkvöldi. Þetta
fjögurra þátta drama með átök-
um um land og sálir og tilheyr-
andi dulúð er upprunalega komið
úr kviku Sveinbjörns I. Baldvins-
sonar og Hilmars Oddssonar þótt
Sveinbjörn hafi á endanum tekið
til við frágang hugmyndarinnar.
Hér má sjá líka handbragð Reyn-
is Lyngdal, í fyrsta sinn á svona
efni. Verkið er skotið á Red-vél
en á forsýningu gat framleiðand-
inn þess að linsur væru gamalt
sett úr sameign þeirra Snorra og
Friðriks Þórs. Þegar ég sá fyrsta
þáttinn á stóru tjaldi í Smárabíói
varð ég heldur glaður: hér mátti
sjá að handrit, leikur, taka, hljóð
og tónlist voru með slíkum ágæt-
um að enn færi hér dæmi um að
íslensk sjónvarpsframleiðsla væri
vaxin úr grasi og orðin á pari við
nágrannaframleiðendur.
Víst er allt of snemmt að fella
dóma um hina dramatísku fram-
vindu, spennu og gæði hræðsl-
unnar, sem röðinni er sýnilega
ætlað að kalla fram. Það verður
ekki fyrr en lengra líður á verkið
að greina má hvernig þetta tekst í
heildina, en upphafið lofar góðu:
leikurinn er eðlilegur og stórt safn
persóna er kynnt látalaust. Eins
og mjög tíðkast í handritum fer
nokkur tími í akstur og aðalpers-
óna sakamála og spennuverka nú
– gemsinn – er fyrirferðar mikill.
Mættu menn fara að vara sig á
þeim tækjum í gerð sögu til kvik-
myndunar.
Þá má gjarna taka fram að
Pegasus hefur ekki látið spara
við tónlistina sem gerði sitt til að
lyfta verkinu og víða voru skot
býsna falleg þó að enn hafi menn
ekki lært að láta náttúru sýna sál-
arástand. En ósköp er maður feg-
inn að sjá skýrt að við erum að ná
tökum á þessu.
Páll Baldvin Baldvinsson
Hamarinn, fyrsti þáttur
SJÓNVARP
Hamarinn
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Leikstjóri: Reynir Lyngdal
Kvikmyndataka: Víðir Sigurðsson
Hljóð: Gunnar Árnason
Framleiðandi: Snorri Þórisson
★★★★
Flott byrjun á spennandi sögu
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 5. október
➜ Tónleikar
21.00 Kvartett Sigurður Flosasonar
verður með útgáfutónleika í jazzkjallar-
anum á Cafe Cultura við Hverfisgötu
18.
➜ Sýningar
Gunnhildur og Brynhildur Þórðardæt-
ur hafa opnað sýninguna „Prjónaheim-
ur Lúka III“ í Minjasafni Austurlands
við Laufskóga 1 á Egilsstöðum. Sýningin
er opin mán.-fös. kl. 13-16.
Á Þjóðminjasafninu við Suðurgötu
hefur verið opnuð ljósmyndasýningin
„Óþekkt augnablik“ þar sem sýndar
eru myndir frá tímabilinu 1900-1960.
Opið alla daga frá kl. 10-17.
➜ Námskeið
20.00 Bókmenntanámskeið verður í
Gerðubergi (Gerðubergi 3-5) þar sem
skyggnst verður inn í söguheim bóka
Kristínar Marju Baldursdóttur um
listakonuna Karitas. Nánari upplýsingar
og skráning á www.gerduberg.is.
20.15 Kínverskunámskeið fyrir byrj-
endur hefst í kvöld hjá endurmenntun
HÍ við Dunhaga 7. Nánari upplýsingar
og skráning á www.endurmenntun.is.
➜ Tónlist
17.30 Í Bókasafni Seltjarnarness á
Eiðistorgi stendur yfir Listavika. Í tilefni
af því verður boðið upp á tónleika í
samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnar-
ness, undir yfirskriftinni „Te og tónlist“.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
FYRIRLIÐI FÓTBOLTALEIKJANNA ER LENDIR 01.10.09
10. HVERVINNUR!
FULLT AF AUKAVINNINGUM
TÖLVULEIKIR · DVD MYNDIR · FULLT AF PEPSI MAX OG MARGT FLEIRA!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Aðalvinnin
gur
er glæsileg
Lenovo fart
ölva!
ideapad
10. HVER
VINNUR!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum.99 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Leik lýkur 23.10.09
SENDU SMS ELKO LTV
Á NÚMERIÐ 1900 OG SVARAÐU SPURNINGU!
Þú gætir unnið Lenovo fartölvu!
Kíktu á nýjan og glæsilegan fartölvuvef
www. .is/fartolvur
Aukavinningar eru: GSM Sími · DVD myndir · Bíómiðar · Pepsi · Geisladiskar og margt fleira.