Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 4

Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 4
4 30. október 2009 FÖSTUDAGUR Greinasafn Þjóðarsátt, lýðræði,stóriðja og hagstjórn Jóhann Rúnar BjörgvinssonReykjavík, 2009 990,- Verð aðeins • • • • • VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 26° 16° 8° 8° 14° 15° 17° 8° 8° 25° 16° 25° 16° 30° 6° 16° 17° 6° Á MORGUN Fremur hæg suðvestlæg átt. SUNNUDAGUR Hæglætis veður og úrkomulítið. 10 9 8 8 9 10 4 6 6 7 8 15 10 11 10 7 5 6 5 7 10 8 8 5 7 8 8 2 0 2 6 4 BETRA VEÐUR UM HELGINA Það verður leiðinlegt veður í dag sérstak- lega vestanlands en þar verður heldur vindasamt. Það bætir síðan í vind og vætu norðan og austantil þegar kemur fram á síðdegið. Mun skaplegra veður verður á morgun og á sunnudag léttir til en kólnar heldur. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður SJÁVARÚTVEGSMÁL Finnbogi Vikar Guðmundsson, laganemi við Háskólann á Bifröst, fullyrðir að honum hafi verið vísað út af aðal- fundi LÍÚ í gær vegna gagnrýn- inna skrifa um fiskveiðistjórn- unarkerfið í vor. Finnbogi segist hafa sótt fundinn til að afla sér upplýsinga um sjávarútveg. Hann situr í starfshópi á vegum sjávar- útvegsráðherra sem ætlað er að endurskoða fyrirkomulag fisk- veiðistjórnunar, og var tilnefndur af Borgarahreyfingunni. „Ég tengi þetta atvik beint við skrif okkar Þórðar Más Jóns- sonar um kerfisbundna misnotk- un á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Ég vissi ekki að þetta risti svona djúpt,“ segir Finnbogi. Hann segir að sér hafi verið vísað á dyr eftir að upplýsingafulltrúi LÍÚ hafði „ráðfært sig við yfirboðara sína“. Sigurður Sveinn Sverrisson, upplýsinga- og kynningarmála- fulltrúi LÍÚ, segir ekki ástæðu til að gera frávísun Finnboga tor- tryggilega enda sé hún á engan hátt persónuleg. Finnbogi hafi leitað til hans til að fá upplýsing- ar um hvort honum væri heim- ilt að sitja fundinn þótt óboðinn væri. Hann hafi síðan fengið stað- fest að svo væri ekki. „Aðalfund LÍÚ sitja bara boðsgestir, full- trúar fjölmiðla og þeir sem eru kjörgengir aðalfundarfulltrúar útvegsmanna. Þannig hefur það ávallt verið.“ - shá Laganemi segir frávísun af aðalfundi LÍÚ vegna skrifa sinna um sjávarútveg: Segir pólitík á bak við frávísun FINNBOGI VIKAR GUÐMUNDSSON Var vísað út af aðalfundi LÍÚ í gær. BELGÍA, AP Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, yrði frábær sem fyrsti forseti Evrópu- sambandsins. Þetta kom fram í máli Gordons Brown, núver- andi forsætis- ráðherra lands- ins, á fundi leiðtoga Evr- ópu sambands- ríkjanna í gær, Skoðanir eru skiptar á meðal leiðtoganna um væntanlegan forseta. Andstaða við Blair er þó nokkur, ekki síst vegna þess að Bretar eru hvorki hluti af myntbandalaginu né Schengen-samstarfinu. Enginn hefur enn lýst yfir framboði í embætti forseta sam- bandsins, og ekki hefur verið skilgreint nákvæmlega í hverju starfið mun felast. - þeb Gordon Brown á fundi ESB: Blair yrði frá- bær forseti DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl- maður hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu á skilorði, fyrir sérstaklega hættu- lega líkamsárás og fíkniefna- akstur. Maðurinn sló annan mann í hálsinn með glerflösku með þeim afleiðingum að flaskan brotnaði og fórnarlambið hlaut tólf sentimetra langt, opið sár hægra megin á hálsi og tvö önnur minni. Árásarmaðurinn játaði sök fyrir dómi. Með þessum brotum rauf hann skilorð. Auk fangelsis- dómsins var hann dæmdur til að greiða þeim sem hann sló rúmar 400 þúsund krónur og var jafn- framt sviptur ökurétti í fjóra mánuði. - jss Hætttuleg líkamsárás: Braut flösku á hálsi manns TONY BLAIR NORÐURLANDARÁÐ Helgi Hjörvar, alþingismaður Samfylkingarinn- ar, var kosinn forseti Norður- la ndaráðs á Norðurlanda- r á ð s þi ng i í Stokkhólmi á fimmtudag. Helgi Hjörvar tekur við forsæt- inu um áramót þegar Ísland tekur við formennsku af Svíum. Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var jafnframt kjörinn varaforseti Norðurlanda- ráðs. Norðurlandaráð: Helgi Hjörvar kosinn forseti HELGI HJÖRVAR STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun telur að í starfi yfirlæknis Heilbrigðis- stofnunar Austurlands (HSA) hafi verið alvarlegar brotalamir. Í 26 til- vikum hafi hann krafist of hárrar þóknunar fyrir vinnu sína. Þá hafi einnig verið brotalamir á lögboðinni færslu í sjúkraskrá. Þrátt fyrir það mun ríkisendurskoðun ekki aðhaf- ast frekar í málinu. Stofnunin hvetur hins vegar heil- brigðisráðuneytið til að „ganga rækilega úr skugga um hvaða úrræðum viðeig- andi sé að beita í þessu máli“ líkt og segir í bréfi hennar til ráðu- neytisins. Heilbrigðis- ráðherra, Álf- heiður Inga- dóttir, segir að brugðist verði v ið þ e s s a r i hvatningu ríkis- endurskoðunar. „Ráðuneytið mun verða við þessu. Það verður kann- að til hvaða úrræða þarf að grípa,“ segir ráðherra. Álfheiður segir að jafnframt hafi verið ákveðið að verða við ósk bæjarráðs Fjarðarbyggðar um að fenginn verði sjálfstætt starfandi úttektaraðili til að ræða við starfs- menn og stjórnendur um starfsum- hverfið. „Ráðuneytið er að kanna, í framhaldi af þessum tilmælum ríkisendurskoðunar, hver staðan er. Markmiðið er auðvitað að finna lausn sem allir geta sætt sig við,“ segir Álfheiður. Yfirlækninum, Hannesi Sigmars- syni, var vikið tímabundið frá störf- um í febrúar. Þá hófst rannsókn á vinnulagi Hannesar og meintum fjárdrætti. Ríkisendurskoðun kemst að þeirri niðurstöðu að í 26 tilvikum hafi Hannesi „verið eða mátt vera ljóst að hann ofkrafði HSA um þókn- un fyrir vinnu sína“, segir í bréfi stofnunarinnar. Lögreglurannsókn fór fram en 30. september var ákveðið að kæra ekki. Frestur til að áfrýja þeirri ákvörðun rennur út um mánaðamótin. Einar Rafn Haraldsson, forstjóri HSA, sagðist ekki vilja tjá sig um framhaldið fyrr en viðbrögð hefðu borist frá ráðuneytinu. Eftir stæði að læknirinn hefði fengið ofgreitt fyrir vinnu sína. Þess má geta að Persónuvernd hefur nú afturkallað leyfi sem stofnunin hafði í janúar síðastliðn- um veitt Hannesi og öðrum lækni á heilsugæslunni til að nota sjúkra- skrár í rannsókn á starfsemi heilsu- gæslunnar. Hannes hafði sjálfur skrifað upp á heimild til notkun sjúkraskránna fyrir hönd heilsu- gæslunnar. Í reynd var það lækn- ingaforstjórinn sem átti að veita slíkt samþykki. Lækningaforstjór- inn gerði síðar athugasemd við Per- sónuvernd sem afturkallaði leyfið eftir að hafa skoðað málavexti. kolbeinn@frettabladid.is gar@frettabladid.is Ríkisendurskoðun telur brot yfirlæknis HSA vera alvarleg Ríkisendurskoðun telur að í starfi yfirlæknis Heilbrigðisstofnunar Austurlands hafa verið alvarlegar brota- lamir. Mun þó ekkert aðhafast. Heilbrigðisráðherra mun kanna úrræði. Óháðir aðilar fara yfir málið. STOFNUNIN Frestur til að áfrýja ákvörðun um að kæra ekki yfirlækni Heilbrigðisstofnunar Austurlands rennur út um mánaðamót. Ríkisendurskoðun telur að alvarleg brotalöm hafi verið í starfi hans. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR GENGIÐ 29.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,2415 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,76 125,36 205,37 206,37 183,96 184,98 24,710 24,854 21,878 22,006 17,783 17,887 1,3738 1,3818 198,02 199,20 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.