Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 39
• 7
Tæknin æðir áfram á ógnarhraða, en til hvers
að horfa til framtíðar þegar við lifum nú
þegar á hátækniöld? POPP tók saman nokkr-
ar slefandi flottar græjur sem gaman væri að
geyma á rykföllnum hillum heimilisins.
POPPGRÆJUR: DÓT FRAMTÍÐARINNAR Í DAG!
SLEFANDI
FLOTTAR
GRÆJUR
LOGITECH
SQUEEZEBOX
RADIO
Hérna erum við komin
með útvarp framtíðar-
innar, hvorki meira né
minna. Þessi kassi tengist
þráðlaust við Netið og
hefur aðgang að milljónum
útvarpsstöðva um allan
heim. Hvort sem þú ætlar
að halda partí með Bolly-
wood- eða handboltarokk-
þema finnur framtíðarút-
varpið réttu stöðina. Svo
er að sjálfsögðu hægt að
tengja MP3-spilarana við
græjuna og hún hljómar
einnig vel.
Tískuverslunin Nakti apinn
verður opnuð á nýjum stað við
Klapparstíg á morgun. Eigandi
verslunarinnar, hönnuðurinn
Sara María Júlíudóttir, stendur
í ströngu við að standsetja nýja
húsnæðið fyrir opnunina. „Okkur
bauðst nýtt húsnæði mjög
skyndilega og við ákváðum að
stökkva á þetta. Við erum búin
að vera í sama húsnæðinu í fimm
ár en þar sem við erum með
breyttar áherslur langaði okkur
að breyta ímynd búðarinnar
svolítið og verða þroskaðari og
fullorðnari,“ segir Sara María.
Nýja verslunin verður með
svipuðu fyrirkomulagi og sú eldri
þar sem verslun verður á efri
hæðinni og vinnustofa á þeirri
neðri. „Nýja verslunin er rosalega
flott og verður með svipuðu
fyrirkomulagi og sú fyrri. Gamla
verslunin var í rauninni allt of
stór og kaotísk og mér fannst
þetta orðið of mikið; þessi verð-
ur aftur á móti alveg passleg.“
Opnunarteiti verður haldið
á laugardaginn í tilefni af nýju
versluninni og hefst gamanið
klukkan 14. „Við verðum með
einhverjar veitingar, tónlist og
skemmtiatriði, en hvað það
verður er ekki enn komið á hreint
því við höfum verið of upptekin
við að pakka og mála síðustu
daga. En það verður stuð, því
get ég lofað,“ segir Sara María
að lokum. - sm
NAKTI APINN FLYTUR SIG UM SET
Fyrsta
PlayStation-tölv-
an kom á markað í
desember árið 1994.
Sony hætti ekki að
framleiða hana fyrr en
í mars árið 2006 og í
dag hefur hún selst í
meira en 100 milljón
eintökum.
PS3
Playstation 3 heitir núna PS3 og er orð-
inn minni, hljóðlátari og miklu flottari.
Svo er minni hávaði í henni og hún notar
minni orku en áður. Þeir sem biðu með
að fá sér PlayStation 3 vegna þess að
hún var svo mikill hlunkur geta skellt sér
á græjuna núna og falið hana bak við
hátalarana sem voru keyptir fyrir hrun.
XIVA MUSICM8
ENTERTAINMENT SERVER
Þetta er svakalega sniðug græja. Hún geymir öll
gögnin þín, tónlist, kvikmyndir, þætti og myndir
á risavöxnum 1.000 gígabæta disknum. Svo get-
urðu spilað allt úr græjunni í hljómflutningstækj-
unum þínum og sjónvarpinu á einfaldan hátt.
Þegar þú setur geisladisk í tækið tekur hún lögin
á disknum og setur sjálfkrafa í geymslu. Svo
talar græjan við hinar græjurnar þráðlaust og
þannig geta þær notað gögnin úr geymslunni.
NÓG AÐ GERA
Sara María
og starfsfólk
hennar hafa
haft í nógu að
snúast síðustu
daga við að
undirbúa nýja
verslun.
F
R
É
T
T
A
B
L
A
Ð
IÐ
/V
IL
H
E
L
M
Forhlustun
ÚTGÁFUDAGUR3. nóv.
Ragnheiður Gröndal
sendir frá sér plötuna
Tregagás 3. nóvember.
Nú býðst þér einstakt
tækifæri að hlusta á plötuna
í heild sinni áður en hún kemur
út þér að kostnaðarlausu.
Betra
verð
2.499
,-Betra verð
249,-
Betra
verð
179,-
Betra
verð
1.799
,-
Heit tónlist á betra
verði á Tónlist.is!