Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 50
6 föstudagur 30. október
tíðin
✽ Hrekkjavökutískan
Á morgun er allrasálnamessa,
hátíð hinna dauðu – öðru nafni
hrekkjavaka (Halloween á ensku).
Þessi hátíð er að festa sig í sessi
hér á Íslandi og mörg hrekkja-
vökupartí haldin á heimilum og
skemmtistöðum landsins. Bún-
ingar tengdir hrekkjavöku eiga
allir að vera í drungalegri kantin-
um – vampírur, nornir, seiðkarlar,
draugar og forynjur. Föstudagur
fékk Margréti Rögnu Jónasdóttur,
förðunarfræðing og eiganda Make
Up Store, til að sýna sér hvernig
er hægt að framkalla frábært
„gotneskt“ útlit: ljósa húð, dökk
augu og varir og vera um leið sexý
og seiðandi.
UNDIRBÚNINGUR Undirbúið húð-
ina með Face Mist rakaspreyi og
Skin Serum. Berið örlítið af farða
eða hyljara á augnlok og undir
augu til að augnskugginn festist
og endist betur.
AUGUN Mótið augun með því að
bera mjúkan svartan augnblýant
í kringum augun. Dreifið með litl-
um bursta og berið blýantinn líka
á vatnslínuna. Brett-
ið augnhárin og berið
á svartan maskara.
Veljið lengd auka-
augnhára eftir því
hversu dramatísk
augun eiga að vera.
SMOKEY AUGU Byrj-
ið á því að bera á Pink Metal
augnskugga létt undir augabrún.
Dökkur Nightfall augnskuggi
er settur yfir allt augnlokið. Að
lokum er Devil Dust duftskuggi
borinn á augnlokið og undir
augun. Örlítið af glæru Blend &
Fix kremi er penslað í augnhvarm-
ana til að gefa gljáa. Einnig er þvi
dúppað á nefbein og kinnbein.
HÚÐ Þrífið undan augunum ef
eitthvað hefur sest þaraf augn-
skuggaduftinu. Berið síðan á húð-
ina léttan farða. Reflex Cover er
sett undir augun til að endurkasta
ljósinu og gefa birtu í kringum
augnsvæðið. Dustið síðan lausu
púðri yfir til að festa farðann.
KINNAR Rennið kinnalit eingöngu
undir kinnbein-
in til að móta þau.
Varist að setja
fremst í kinnar ef út-
litið á að vera dramat-
ískt. Sand eða Caramel eru
flottir í skyggingu.
BRÚNIR Snyrtar með ljósum blý-
anti og formaðar með Stay in
Shape vaxi.
VARIR Berið örlítinn hyljara yfir út-
línurnar á vörunum og mýkið inn
á við. Berið rauðan Pout varalit á
varir og formið útlínur með bursta.
Rennið síðan dökkum varablýanti
eins og Passionate Glory meðfram
útlínum varanna þannig að dökki
blýanturinn blandist við varalitinn.
Að lokum er dökkum varalit dúpp-
að yfir varirnar. Byrjið við útlín-
urnar og skyggið inn á við. Black
Orchid eða Dawn eru flottir litir í
þetta. - amb
Seiðandi augu og dimmrauðar varir:
HEILLANDI Á
HREKKJAVÖKU
Make Up: Margrét með MAKE UP STORE
Módel: Indíana Nanna Jóhannsdóttir
50% meira af góðgerlum í hylkjunum sem þýðir að
sumir þurfa bara að taka inn 1 hylki á dag.
og enn betri fréttir
Frábærar
til þeirra þúsunda Íslendinga sem
nota Pro-Gastro8
Pro-gastro8 fæst í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM
OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐANNA!
Pro-Gastro8 góðgerlanir vinna gegn erfiðri meltingu.
Hvernig er flott að líta út á hrekkjavökunni?
Ef maður vill ekki fara alla leið í grímubún-
inginn og mæta sem Frankenstein eða brúð-
ur Drakúla eru margar frábærar leiðir til
að umvefja sig myrku hliðunum um helg-
ina. Það eru margar skemmtilegar leiðir að
„goth“-útlitinu. Hvernig væri að lita einn
hárlokkinn fjólubláan, fara í viktoríanska
blúnduskyrtu eða kynþokkafullar leður-
buxur í anda Lestat-vampíru? Hér eru
nokkur flott dæmi sem hægt er að sækja
innblástur í.
- amb
Sýndu þínar myrku hliðar
Drungalegt
og sexý
Blúndur Gamaldags blúnda virkar alltaf
til að framkalla vampíruáhrifin – þessi er
frá Givenchy.
Gamaldags „goth“ Viktoríönsk blúndu-
skyrta við frakka frá Givenchy.
Kvenlegt Skemmtileg samsetning af
fínni blúndu við latex-buxur frá Givenchy.
SVARTAR NEGLUR – Alison Mosshart
úr Kills er daglega með svartar neglur og það
passar líka fullkomlega við hrekkjavökubúning-
inn. Þetta fallega lakk er frá Yves Saint Laurent.
Svart Síður „goth-
ara“-kjóll frá Chris-
topher Kane.