Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 6
6 30. október 2009 FÖSTUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL Fjölskylduhjálp Íslands býst við annríki í aðdrag- anda jólanna en árið í ár hefur verið það annasamasta í sex ára sögu samtakanna. Fjölskylduhjálpin hefur óskað liðsinnis tæplega fimm þús- und fyrirtækja til að geta staðið straum af öllum þeim umsóknum um aðstoð sem víst er að berist fyrir jól. Í bréfi til forsvarsmanna fyrir- tækjanna kemur fram að skjól- stæðingar Fjölskylduhjálparinn- ar þurfa að sýna tilskilin gögn til að njóta aðstoðar. - bþs Annir hjá Fjölskylduhjálpinni: Óskað eftir að- stoð fyrirtækja Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Rafgeymar Japanskir DÓMSMÁL Matsnefnd eignarnáms- bóta hefur úrskurðað að Hafnar- fjarðarbær eigi að greiða Skóg- rækt ríkisins rúmar 608 milljónir króna fyrir 160 þúsund fermetra af landi í Kapelluhrauni. Hafnarfjarðarbær fékk landið í Kapelluhrauni afhent í apríl 2008 og skipulagði þar byggingarlóð- ir. Ekki náðist samkomulag við Skógrækt ríkisins um kaupverð og kom því til kasta matsnefndar eignarnámsbóta. Skógræktin taldi að miða ætti við úrskurð matsnefndarinnar frá árinu 2005 í máli Kjartans Gunn- arssonar og Reykjavíkurborgar. Þá hafi Kjartan á núverandi verð- lagi fengið ríflega sex þúsund krónur á hvern fermetra af um 36 þúsund fermetra landi sínu við Norðlingaholt. Skógræktin benti á að fyrri hluta árs 2008 hefði verið mikil eftir spurn eftir bygging- arlandi á höfuð- borgarsvæðinu og kvaðst telja að greiða ætti minnst einn milljarð og 72 milljónir króna fyrir landið. Þar af væru tæpar 69 millj- ónir í vexti frá því í apríl 2008. Fyrir sitt leyti krafðist Hafn- arfjarðarbær þess að matsnefnd- in miðaði við stöðuna á fasteigna- markaði eins og hún væri orðin eftir bankahrunið. Umrædd eign væri „í raun óseljanleg á almenn- um markaði“ og eini raunhæfi kaupandinn að landinu væri bær- inn sjálfur. „Það voru allar lóðirn- ar á þessu svæði farnar og marg- ir að bíða en þeim hefur öllum verið skilað aftur og gatnagerð hætt,“ segir Gísli Valdimarsson, formaður skipulags- og bygging- arráðs Hafnarfjarðar, við Frétta- blaðið. Matsnefndin segir að í þessu máli eigi matið á landinu að miða við fasteignaverð eins og það var í apríl 2008 „enda hefði landið skipt um hendur á því verði ef samkomulag hefði náðst. Hafnar- fjarðarbæ bæri að taka áhættuna af þeirri verðlækkun sem orðið hefur á landi og lóðum síðan“. Varðandi samanburðinn við áður- nefnt land Kjartans Gunnarsson- ar segir matsnefndin hins vegar að landið í Kapelluhrauni sé verr staðsett og henti ekki eins vel til bygginga og landið í Norðlinga- holti. Niðurstaðan varð því sú að Skógræktin fær 3.800 krónur á hvern fermetra eða alls rúmar 608 milljónir eins og fyrr sagði. „Þetta er ekki endanlegt. Við munum nú skoða málið og ákveða hvort bærinn unir niðurstöðunni eða beri hana undir dómstóla,“ segir Anna Jörgensdóttir, bæjar- lögmaður í Hafnarfirði. gar@frettabladid.is Greiði Skógræktinni 608 milljónir króna Hafnarfjarðarbær á að borga Skógrækt ríkisins 608 milljónir króna fyrir 16 hekt- ara í Kapelluhrauni, segir matsnefnd eignarnámsbóta. Allar lóðir seldust en var skilað eftir hrun. Bærinn leitar ef til vill til dómstóla, segir bæjarlögmaður. Í KAPELLUHRAUNI Þegar hefur verið skilað inn lóðum sem skipulagðar voru á landi sem Hafnarfjarðarbær tók eignarnámi af Skógrækt ríkisins í Kapelluhrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GÍSLI VALDIMARSSON PERSÓNUVERND „Enginn vafi er á því að hægt er að nota þessar upplýsingar í vafasömum tilgangi og engin ástæða til þess að þær séu aðgengilegar öllum,“ segir í umsögn Þórðar Clausen Þórðarson- ar, bæjarlögmanns í Kópavogi, vegna kvörtunar um kortavefsjá á heimasíðu bæjarins. Að því er fram kemur í umsögn Þórðar kvartaði íbúi í Kópavogi til Persónuverndar undan kortavefsjá á vefsetri bæjarins. Þar væri meðal annars hægt að nálgast teikningar af einkaheimilum manna, upplýs- ingar um fjölda íbúa í hverju húsi og aldur þeirra. „Að þessar upplýsingar séu aðgengilegar öllum, geti til dæmis verið gagnlegar fyrir innbrotsþjófa,“ vitn- ar bæjarlögmaður til ábendinga íbúans. Þórður kvað það vart standast lög um persónu- vernd og meðferð persónupplýsinga að vera með svo ítarlega upplýsingagjöf á vefsíðu bæjarins. Bæjar- ráð samþykkti tillögu hans um að loka kortavef sjánni þar til afstaða Persónuverndar lægi fyrir og hefur það þegar verið gert. Ekki er ljóst hvenær niðurstaða Persónuverndar fæst. - gar Bæjarráð Kópavogs bregst við kvörtun íbúa og lokar kortavefsjá á vefsetri: Vefsjá talin stríða gegn lögum HEIMASÍÐA KÓPAVOGSBÆJAR Íbúi í Kópavogi taldi innbrots- þjófa geta notfært sér upplýsingar í kortavefsjá bæjarins og henni hefur verið lokað á meðan Persónuvernd skoðar málið. DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur dæmt séra Sigríði Guðmarsdótt- ur ríflega 1,6 milljónir króna í skaðabætur fyrir brot á jafnrétt- islögum. Sigríður krafðist ríflega fjórtán milljóna, en aðalkröfu hennar var hafnað og gengið að varakröfunni. Sigríður sótti um embætti sendiráðsprests í London árið 2003 líkt og karlkyns umsækj- andi. Karlmaðurinn hlaut stöðuna og kærði Sigríður þá niðurstöðu til jafnréttisnefndar þjóðkirkj- unnar. Nefndin komst að því að stöðuveitingin hefði verið brot gegn jafnréttisáætlun kirkjunn- ar, enda væri enginn kvenprestur starfandi við íslensk sendiráð. Sigríður fór í kjölfarið í mál við kirkjuna og krafðist að réttur sinn til skaðabóta vegna brots á jafnréttislögum yrði viðurkennd- ur. Hún hafði sigur í því máli árið 2006. Nú er skaðabótaupphæðin orðin klár: 1.637 þúsund krónur. Upphæðin byggist á því tekju- tapi sem Sigríður varð fyrir við það að verða af starfinu í sendi- ráðinu. Þar koma bæði til hefð- bundnar tekjur, sem eru lægri hjá sendiráðsstarfsmönnum en prestum, og einnig staðaruppbót vegna búsetu erlendis. - sh Þjóðkirkjan greiði Sigríði Guðmarsdóttur bætur fyrir brot á jafnréttislögum: Fær 1,6 milljónir frá kirkjunni SIGRÍÐUR GUÐMARSDÓTTIR Fór fram á ríflega fjórtán milljónir en fékk 1,6. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR EFNAHAGSMÁL Alþjóðlega mats- fyrirtækið Moody‘s lækkaði lánshæfismat Portúgals í gær en setti lánshæfismat Grikklands á athugunarlista. Ástæðan fyrir verra lánshæfi Grikklands er erfið skuldastaða þjóðarbúsins, sem nemur 12,5 prósentum af landsframleiðslu. Horfur voru færðar úr stöðug- um í neikvæðar. Sömu sögu er að segja af Portúgal. Reuters hafði eftir sérfræð- ingum í gær að niðurstaðan hefði ekki komið á óvart í kjölfar stjórnarskipta í Grikklandi í síð- ustu viku þegar vinstri stjórn tók við valdastólum. - jab Fitch með skurðarhníf á lofti: Lækkar láns- hæfismatið WAL-MART Einkaneysla jókst verulega í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur jókst um 3,5 prósent í Bandaríkjunum á þriðja ársfjórðungi. Niðurstað- an er nokkuð umfram væntingar. Þetta eru fyrstu jákvæðu hagtöl- urnar sem sést hafa í þessa átt vestanhafs í rúmt ár. Fréttastofa Bloomberg bendir á að hagvöxturinn sé öðru fremur knúinn áfram af mikilli aukningu í einkaneyslu og betri tíð í verk- takageiranum. Bloomberg segir stjórnvöldum sniðinn þröngur stakkur. Halli á fjárlögum hefur aldrei verið meiri og útlit er fyrir að atvinnu- leysi muni aukast. - jab Hagvöxtur mælist í BNA: Bestu tölurnar sem sjást í ár ÁSGERÐUR JÓNA FLOSADÓTTIR Framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands. Gætir þú hugsað þér að skipta yfir í rafbíl? Já 73,8% Nei 26,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á ríkisstjórnin að hætta við fyrirhugaða orku- og auðlinda- skatta? Segðu þína skoðun á vísir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.