Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 42
10 •
Á ökuskírteini Emmsjé Gauta stendur
Gauti Þeyr Másson. Þegar við hittumst
er hann mjög stísaður. Miklu stísaðri
en ég – en útskýringuna á orðinu er
að finna í myndatextanum.
Nýja sándið heillar
Gauti er tvítugur barþjónn í Reykja-
vík. Hann stefnir á plötu í byrjun
næsta árs, sendi nýlega frá sér lagið
Bara ég og vinnur að því að koma
því í spilun. Þangað til geta æstir
lesendur hlustað á lagið á Youtube.
Lagið er poppað – tekur mið af því
sem er að gerast í hipp hopp-senunni
í Bandaríkjunum og Gauti viðurkennir
það. Fáviska mín um hipp hopp er
ærandi. Ég hoppa út í djúpu laugina
og nefni tónlist eins manns sem gæti
hugsanlega fallið undir sama hatt
– eða sama sirkustjald og Emmsjé
Gauti: Lil‘ Wayne.
„Ég hlusta mikið á Lil‘ Wayne, þó
að hann sé ekki besti textahöfund-
urinn í heiminum, né besti rapparinn
eða söngvarinn. Það er eitthvað við
þetta nýja sánd sem nær mér.“
Eins og Kanye West? Eða er hann
búinn að missa það?
„Mér finnst gamla stöffið hans
betra en nýja. Svo hefur eitthvað
farið í hausnum á honum, eins og
kastið sem hann tók á MTV-verð-
laununum. Ég er að pæla í að púlla
þetta á Eddunni! Hrifsa mikrófóninn
af Erni Árnasyni …“
Blastaði Rottweiler með
syni Jónínu Bjartmarz
Við skeggræðum um popptónlist
og erum sammála um að popp sé
töff í dag, en fyrir nokkrum árum
var það nánast eins og lítillækkandi
bannorð.
„Mér finnst pjúra hipp hopp, bara
rapp, ekki skemmtilegt. Ég er ekki að
segja að öndergránd rapp sé lélegt
– Atmosphere er uppáhaldshljóm-
sveitin mín. En mér finnst þurfa að
ORÐ: Atli Fannar Bjarkason
MYNDIR: Anton Brink
Hann er einn af fáum Íslendingum sem hefur lent í opinberu kynlífshneyksli og var
í kjölfarið kallaður forseti klámkynslóðarinnar af Erpi Eyvindarsyni. Svar hans við
því var einfalt: „Nei, þú“ en Emmsjé Gauti á fleiri góð svör við fávísum fullyrðing-
um og spurningum POPPS. Hann var að senda frá sér lag, ætlar að spila eins og
brjálæðingur á næstunni og er ekki aðdáandi Ingós i Veðurguðunum – svo vægt
sé til orða tekið. Emmsjé Gauti, gjörið svo vel.
FORSETI KLÁM-
KYNSLÓÐARINNAR
KYNLÍFSHNEYKSLIÐ
Þegar Gauti gaf út sína fyrstu plötu fyrir þremur árum birt-
ist frétt um hana í DV undir fyrirsögninni: „Gefur út plötu í
kjölfar kynlífshneykslis.“ Grófum myndir af sumarbústaðar-
ferð vinahóps var lekið á Netið og Gauti var í eldlínunni.
„Við vorum í sumarbústað og allir voru fullir og vitlausir og
naktir,“ segir Gauti. „Það trúir mér enginn, en það sem lítur
út fyrir að vera í gangi á myndinni var ekki í gangi. Þetta
lítur út eins og eitthvað úr Hustler.“
Myndin fór víða um Netið, en Gauti gerði reginmistök
þegar hann sendi myndirnar sjálfur til frænda síns og vinnu-
félaga. „Mamma sagðist ekki geta klippt þessa grein út og
hengt upp við hliðina á öðrum greinum.“
STÍSAÐUR L
óforml. • í stíl,
vel til hafður,
flottur í tauinu.
„ÉG HEF ALDREI
VERIÐ JAFN
NÁLÆGT ÞVÍ AÐ
HENGJA MIG OG
ÞEGAR ÉG FÉKK
BAHAMA-LAGIÐ
Á HEILANN.“
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval
TIL
BO
Ð!
VETRARDEKK
ÓD
ÝR
T
5.490,- jepplingur kr 6.490,-
Tilboð á umfelgun
Verðtilboð fyrir eldri borgara
Fólksbíll kr 4.990,-
Jepplingur kr 5.990,-
Gerið verðsamanburð
Sama verð fyrir ál- og stálfelgur
Borgartúni 36, (bakvið Cabin hótel) • Sími 588 9747 • www.vdo.is
Opið mán.–fös. 8–18. Lau. 10–14.