Fréttablaðið - 30.10.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 30.10.2009, Síða 8
8 30. október 2009 FÖSTUDAGUR 1 Skjalasafn hvers var nýverið afhent Reykjavíkurborg að gjöf? 2 Yfir eitt hundrað fórust í sprengjuárás í Pakistan á mið- vikudag. Í hvaða borg? 3 Hver skoraði eina mark íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn Norður-Írum í fyrrakvöld? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50 LÖGREGLUMÁL Byggðastofnun seldi húsnæði í Grundarfirði, sem brann í lok ágúst í sumar, fyrir fimm milljónir í desember árið 2007. Síð- asti eigandi þess, karlmaður sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi, fékk nýverið tæp- lega fjörutíu milljónir króna út úr tryggingunum vegna brunans. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær eru meðal annars til rannsókn- ar hjá lögreglu meint tryggingasvik vegna þessa máls. Fyrirtæki manns- ins keypti húsnæðið í janúar á þessu ári. Rannsókn lögreglu hefur meðal annars snúist um ástæður þess að brunabótamat húsnæðisins hefur hækkað um ríflega tíu milljónir króna frá árinu 2006, þegar það var í eigu Byggðastofnunar. „Ég fór að skoða þetta húsnæði eftir að Byggðastofnun eignaðist það árið 2006 á nauðungarsölu,“ segir Hjalti Árnason, yfirmaður lög- fræðisviðs Byggðastofnunar. „Þetta var eins konar skemma. Það var ekki mikil eign í þessu og að lokum seldum við hana ári seinna á fimm milljónir króna.“ Umrætt húsnæði skipti svo tví- vegis um eigendur en upp úr ára- mótum 2009 keypti fyrirtæki í eigu mannsins sem nú sætir gæsluvarð- haldi húsið. Byggðastofnun seldi brunahúsið í Grundarfirði á fimm milljónir árið 2007: Virðið áttfaldaðist á tveimur árum GRUNDARFJÖRÐUR Húsnæðið sem um ræðir brann í ágúst. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M SVEITARFÉLÖG Sveitarfélagið Álfta- nes þarf að óbreyttu að greiða meira en 200 milljónir króna í leigugreiðslur á næsta ári til Eign- arhaldsfélagsins Fasteignar (EFS) vegna sundlaugar sem tekin var í notkun í sumar, að sögn Krist- ins Guðlaugssonar, forseta bæjar- stjórnar. Leigugreiðslur til Fast- eignar á þessu ári eru áætlaðar um 160 milljónir króna. Bæjarstjórn- in samþykkti í fyrrakvöld að óska eftir aðkomu EFS að rekstri Álfta- ness. Sveitarstjórn er samkvæmt lögum skylt að leita til eftirlits- nefndar sveitarfélaga ef hún telur sér ekki unnt að standa í skilum. EFS hefur ekki hafið formleg afskipti af málum Álftaness, að sögn Jóhannesar Finns Halldórs- sonar, starfsmanns nefndarinnar, en bæjarstjórn þarf að samþykkja á tveimur fundum að leita til nefndarinnar áður en hún tekur til starfa. Boðað hefur verið til auka- fundar í bæjarstjórninni í næstu viku til þess að afgreiða málið end- anlega. Bæjarstjórnin samþykkti einn- ig í fyrrakvöld endurskoðaða fjár- hagsáætlun fyrir þetta ár. Sam- kvæmt henni verður 86 milljóna króna halli á rekstrinum. Í fyrra var hallareksturinn 832 milljónir króna. Þá voru tekjurnar um 1.160 milljónir en eftir endurskoðun fjár- hagsáætlunar þessa árs er gert ráð fyrir rúmlega 1.300 milljóna króna tekjum í ár. Kristinn Guðlaugsson sagði við Fréttablaðið að samningurinn, sem gerður var árið 2007, við Eignar- haldsfélagið Fasteign væri stór þáttur í vanda sveitarfélagsins þótt fleiri þættir hefðu þar áhrif. Jóhannes Finnur segir EFS ekki munu skoða fjárhag Álftaness formlega fyrr en eftir að málið hafi verið rætt öðru sinni í sveitar- stjórninni á sérstökum aukafundi sem boðaður hefur verið í næstu viku. Þegar afskiptin hefjast mun EFS gera sjálfstæða rannsókn á fjárreiðum Álftaness og leggja áherslu á að vinna málið hratt og í samstarfi við sveitarstjórnina. Samkvæmt lögum er heimilt að hækka útsvar og fasteignaskatta um allt að 25 prósent ef sveitar- félag getur ekki „með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbinding- um sínum“. Jóhannes Finnur segir ekki tímabært að tjá sig um hvort til slíkra úrræða verði gripið. peturg@frettabladid.is Sundlaugin að kaffæra sveitarfélagið Álftanes hefur óskað eftir aðstoð frá eftirlitsnefnd sveitarfélaga. Er með 2,5 milljarða gengistryggða skuldbindingu vegna leigugreiðslna af nýrri sund- laug. Aukafundur í bæjarstjórn í næstu viku. ÁLFTANESLAUG Sveitarstjórnin undirbýr að leita aðstoðar Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. 832 milljóna króna halli varð á rekstrinum í fyrra. Í ár er áætlað að hallinn verði 86 milljónir. Í byrjun 2007 seldi Álftanes íþrótta- mannvirki sín ásamt lóð fyrir nýja sundlaug til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar fyrir 785,7 milljónir króna. Um leið keypti sveitarfélagið hlutafé í Fasteign fyrir 394,6 millj- ónir króna og samdi við Fasteign um að fyrirtækið tæki að sér að byggja nýja sundlaug og leigja hana sveitarfélaginu. Álftanes er þriðji stærsti hluthafi Fasteignar, með tæplega fimmtán prósenta hlut, en stærstu eigendur eru Íslands- banki og Reykjanesbær með um fjórðungshlut hvor aðili. Samningar Álftanesbæjar við Fasteign eru til þrjátíu ára og eru 55 prósent af leigugreiðslum gengistryggðar. Um síðustu áramót stóð skuldbinding bæjarins gagnvart Fasteign í um það bil 2,5 milljörðum króna. Leigu- greiðslur þessa árs eru áætlaðar um 160 milljónir króna en yfir 200 milljónir króna á næsta ári. SELDU EIGNIR OG KEYPTU HLUTAFÉ UMHVERFISMÁL Árni Bergmann Pét- ursson, forstjóri Rafs ehf. á Akur- eyri, hlaut í gær Umhverfisverð- laun LÍÚ 2009. Viðurkenninguna fékk hann fyrir rannsóknar- og þró- unarvinnu við svokallaða rafbjög- unarsíu. Notkun búnaðarins, sem er framleiddur hjá HBT, um borð í fiskiskipum hefur leitt til allt að tíu prósenta olíusparnaðar með tilheyr- andi minnkun útblásturs. Það stað- festa mælingar úr skipum Þorbjarn- ar hf. í Grindavík, þar sem þessi búnaður hefur verið settur upp. Afhending Umhverfisverðlauna LÍÚ er orðin fastur þáttur í störf- um aðalfundar samtakanna. Verð- launin voru nú afhent í ellefta sinn. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í gær. - shá Árni Bergmann fékk Umhverfisverðlaun LÍÚ: Dregur úr olíueyðslu HUGVIT VERÐLAUNAÐ Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra veitti Árna Bergmann verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í gær. MYND/LÍÚ SÓMALÍA Mörg hundruð brúð- kaupsgestir voru viðstaddir þegar Ahmed Dore gekk að eiga Safíu Abdulleh í bænum Guric- eel í Sómalíu. Brúðguminn er að eigin sögn 112 ára gamall en brúðurin 17 ára. Aldursmunurinn er því níu- tíu og fimm ár. Ahmed á þegar átján börn með fimm eiginkonum og hann segist vilja eignast fleiri með Safíu. Fréttaritari BBC í Sómal- íu hefur eftir foreldrum brúðar- innar að hún sé sæl með eigin- manninn. Ahmed segir að hann hafi ekki neytt Safíu til ráðahagsins held- ur hafi hann notað reynslu sína til þess að sannfæra hana um ást sína. Svo hafi þau ákveðið að gift- ast. - ót Brúðkaup í Sómalíu: 95 ára aldurs- munur hjóna VESTFIRÐIR Ísafjarðarbær og sund- félagið Vestri munu hrinda af stað átaki til að efla sundmenn- ingu í bænum á þriðjudaginn kemur. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta. Átakið var styrkt af Héraðs- sambandi Vestfirðinga og felst í því að sundþjálfari frá Vestra mun bjóða upp á tilsögn á bakka í Sundhöllinni á Ísafirði þrisvar í viku. Einnig munu starfsmenn Sundhallarinnar skrá sundferð- ir og vegalengdir þátttakenda og þegar fólk hefur náð vissum fjölda kílómetra mun það hljóta viðurkenningu. Átakið hefst þriðjudaginn 3. nóvember. Ísafjarðarbær og Vestri: Ætla að efla sundmenningu VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.