Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 34

Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 34
Enn eitt kynlífsspólumál- ið er komið upp í Holly- wood. Í þetta skipti er það smástirnið Shauna Sand sem er í aðalhlut- verki og er hún grunuð um að hafa komið spól- unni í dreifingu. Leikkonan Shauna Sand fól lögfræð- ingi sínum að koma í veg fyrir að klámframleiðandinn Vivid gæfi út myndband sem sýnir hana stunda óbeislað kynlíf með kærastanum sínum. Með öðrum orðum: Enn eitt kynlífsspóluhneykslismálið er komið upp í Hollywood. Sand hætti í vikunni við að fara í mál og telja margir að það sé hluti af markaðssetningu á spólunni. Það þekkja ekki margir nafn Shaunu Sand. Hún hefur ekki vaðið í bitastæðum hlutverkum um árin og er þekktust fyrir að hafa setið fyrir í Playboy á tíunda áratugnum. Kynlífsspólan gæti þó breytt því, en lætin sem hafa skapast í kringum hana kallast á við það sem kynlífs- spólur hafa skilað stjörnum á borð við Paris Hilton og Kim Kardashian. Þrátt fyrir digurbarkalegar yfir- lýsingar frá lögfræðingi Sand, sem töfðu útgáfu spólunnar, er talið að deilurnar séu settar á svið til að vekja athygli. Sand er grunuð um að hafa sjálf komið spólunni til klámframleiðandans, sem hafi greitt henni væna fúlgu fyrir. Þetta er ekki einsdæmi því kynlífs- spólur Paris Hilton og Kim Kard ashi- an skutu þeim upp á stjörnuhimin- inn og það má velta fyrir sér hvort þær hafi sjálfar staðið á bak við útgáfurnar – enda fengu þær báðar vel greitt fyrir og stöðvuðu ekki dreifinguna. Það sem er sérstakt við kynlífs- spólu Shaunu Sand, er að hún virðist vera framleidd af atvinnumönnum. Lýsingin er fagmannleg og þriðji aðili virðist halda myndbands- upptökuvélinni í nokkrum tilvik- um. Þá þykir tímasetning útgáfunnar „heppileg“ þar sem fyrstu fréttir af henni bárust degi eftir að raunveruleikaþáttur Lorenzo Lamar, fyrrver- andi eiginmanns hennar, var frumsýndur, en Lamar-fjöl- skyldan hefur lýst yfir að hún telji Sand standa á bak við útgáfuna. 2 • POPP er fylgirit Fréttablaðsins. POPP kemur út einu sinni í mánuði. Ritstjóri: Atli Fannar Bjarkason atlifannar@frettabladid.is Útlitshönnun: Arnór Bogason Forsíðumynd: Valgarður Gíslason Sölustjóri auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is • sími 512 5411 ...FARA Á MCDONALDS McDonalds breytist í Metro 1. nóvember, þannig að nú er síðasti séns að skófla í sig erfðabreyttum borgurum, stútfullum af há- klassa amerískum rotvarnarefnum og frönskum kartöflum sem myndu ekki mygla þó að þær stæðu á heitum ofni í þrjár vikur. ...SJÁ ZOMBIELAND Woody Harrelson ætti auðvitað að vera nægt tilefni til að fara í bíó og það er ekki verra að hann sé í jafn skemmtilegri mynd og Zombieland. Zomb- ieland er ógeðslega fyndin og viðbjóðslega frábær. ...TAKA MYNTKÖRFU- LÁN Eða jú, það er orðið of seint. ...HLUSTA Á GRUGG Gruggþörungarnir í Alice in Chains og Pearl Jam voru að senda frá sér nýjar plötur. Hljómsveitirnar eiga það sameiginlegt að hafa náð sköpunarlegum hápunkti snemma á tíunda áratugnum og mega svo sannar- lega muna sinn fífil fegri. Þær reyna samt og eru að minnsta kosti að gera betri hluti en hinir ævafornu og uppþornuðu U2 og Rolling Stones. ÞAÐ ER EKKI ORÐIÐ OF SEINT AÐ... Í dag er 30. október. Airwaves er búið og þú ætlaðir að meika það með hljómsveitinni þinni. Þú sást fram á að næsta ár yrði samfelld rútuferð um Evrópu þar sem stútfullir tónleikastaðir og lauslátir aðdáendur myndu bíða ykkar í hverjum bæ. En nei. Kraftaverk yrði varla nógu öflugt til að láta þessa tálsýn verða að veruleika. Það er samt ekki of seint að gera eitthvað annað. FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • OKTÓBER 2009 SARA MARÍABARNSMÓÐIR DANÍELS ÚR FANGA-VAKTINNI FÓR ÚR LÍFFRÆÐI Í LEIKLIST „Bobbinn er svolítið bældur og segir ekki neitt. Hann er mjög einfaldur og nær alltaf að klúðra málunum í þessari auglýsingu,“ segir Sigurður Þorkelsson sem túlkar Bobbann í auglýsingum Steinda Jr. fyrir Sjóvá. Sigurður á pöbbinn Gullöldina í Grafarvogi og stýrir honum milli þess sem hann bregður sér í hlutverk Bobbans. Margir muna eftir Bobbanum frá því í sumar, en hann kom fyrst fram í atriði Steinda Jr. í Monitor-þættinum á Skjá einum. En hver er fyrirmynd Bobbans? „Ég veit það ekki. Steindi og Ágúst bjuggu til þennan karakter,“ segir Sigurður, sem er hæstánægður við samstarfið. „Steindi er snilling- ur og ég tala nú ekki um Ágúst Bent. Þetta eru alvörugrínarar.“ Bent hefur skrifað grínið með Steinda ásamt því að taka upp og klippa. Þetta breyttist ekki þrátt fyrir að þeir væru að gera auglýsingu fyrir stórfyrirtæki á borð við Sjóvá, en auglýsingarnar voru unnar á svipaðan hátt og það sem félagarnir hafa sent frá sér. Auglýsingar Sjóvá eru fjórar talsins, en óvíst er hvort við fáum að sjá Bobbann í fleiri atriðum. Ertu opinn fyrir að túlka hann aftur? „Já, Bobbinn er kominn til að vera,“ segir Sig- urður. - afb BOBBINN Á PÖBB Í GRAFARVOGI POPPSKÝRING: KYNLÍFSSPÓLUR Í HOLLYWOOD • KYNLÍFSSPÓLA EKKI ÁVÍSUN Á FRAMA Kynlífsspólur gera ekki alla að stjörnum. Kynlífsmynd- bandi með Idol-keppand- anum Jessicu Sierra var dreift af klámframleiðanda í fyrra, en það virðist ekki hafa hjálpað henni að verða stjarna í Hollywood. Þá „lak“ myndband á Netið sem sýndi Survivor- keppandann Jennu Lewis í villtum kynlífsathöfnum með eiginmanni sínum á brúðkaupsnótt þeirra. Talið er að hún, eiginmaður hennar og um- boðsmað- ur þeirra hafi verið á bak við lekann og fengið 70% af hagnaði mynd- bands- ins. • LINDSAY LOHAN Í VÆNTANLEGU KYN- LÍFSMYNDBANDI? Lindsay Lohan hefur ekki átt sjö dagana sæla undan- farið. Stöðugt partístand hefur einkennt líf hennar upp á síðkastið og ferill hennar virðist á leið í hundana. Samkvæmt slúðursíðunni WWTDD.com hefur klámframleiðandi boðið Lohan umtalsverðar fjárhæðir fyrir að framleiða klámmyndband, sem yrði svo „stolið“ frá henni og deilur í kjölfarið settar á svið. Það sem rennir stoð- um undir þessa kenningu er að hún hefur sést rúnta um á Mas- erati- lúxusbíl þekkts klámfram- leiðanda. NOKKRAR KYNLÍFSSPÓLUR SEM LEKIÐ HAFA Á NETIÐ 19 9 8 19 9 9 2 0 0 0 2 0 0 1 2 0 0 2 2 0 0 3 2 0 0 4 2 0 0 5 2 0 0 6 2 0 0 7 2 0 0 8 2 0 0 9 PAMELA AND- ERSON, kyntákn og TOMMY LEE, trommari PARIS HILTON, athafnakona KEELEY HAZELL, bresk glamúrfyrirsæta FRED DURST, söngv- ari Limp Bizkit KIM KAR- DASHIAN, athafnakona SHAUNA SAND, leikkona STJÖRNUR LEKA EIGIN SPÓLUM SHAUNA SAND Kynlífsmyndband hennar og kær- asta hennar var gefið út af klám- framleiðandanum Vivid. Sigurður hefur leikið í fjölmörg- um auglýsingum í gegnum tíðina. Hann var til dæmis í frægri 1x2 auglýsingu þar sem hann lék mann sem rak heiftarlega við í návist annarra. BOBBINN! Þegar Steindi Jr. lendir í bobba er það yfirleitt Bobban að kenna. Kaupþing námsmenn - þegar námið skiptir höfuðmáli - Alhliða fríðindakreditkort fyrir námsmenn - Engin færslugjöld - Fyrsta árgjaldið frítt - Góðar tryggingar ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 67 83 0 8/ 09

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.