Fréttablaðið - 30.10.2009, Side 37
• 5
„Keppnin er að fá mjög mikla umfjöllun
vegna þess að hún er haldin til styrktar
baráttunni gegn brjóstakrabbameini,“ segir
fegurðardrottningin Ingibjörg Ragnheiður
Egilsdóttir.
Ingibjörg verður dómari í fegurðarsam-
keppninni Miss Sinergy sem fer fram í Wash-
ington, höfuðborg Bandaríkjanna, í nóvem-
ber. Ingibjörg var fulltrúi Íslendinga í Miss
Universe-keppninni fyrr á þessu ári, en þar
tóku aðstandendur Miss Sinergy eftir henni.
Ingibjörg segir marga úr tísku- og módel-
bransanum verða á svæðinu og er mjög
spennt fyrir að setjast í dómarasætið. „Þetta
verður meiri háttar.“ Spurð hvort sérstök
fríðindi fylgi virðulegu dómarastarfinu segir
Ingibjörg svo vera. „Þau bókuðu fyrir mig
flug og ég verð á lúxushóteli eins og drottn-
ing,“ segir hún hress. „Ég þarf ekki einu sinni
að koma með kjól.“
Aðstandendur keppninnar leggja mikla
áherslu á góðgerðarmál og sigurstúlkan
verður nokkurs konar sendifrú ýmissa góðra
málefna. „Mér er mikill heiður sýndur að
fá að vera hluti af keppninni þar sem hún
styrkir gott málefni,“ segir Ingibjörg. - afb
DÆMIR BANDARÍSKA
FEGURÐARSAMKEPPNI
SEST Í DÓMARASÆTIÐ Ingibjörg heldur til Washing-
ton í nóvember til að dæma fegurðarsamkeppni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bloodgroup vinnur nú hörð-
um höndum að annarri breið-
skífu sinni,
sem ætti
að koma út
áður en árið
er á enda.
Hljómsveitin
sendi frá
sér lagið
My Arms
um miðjan
október og lofar það mjög
góðu. Hljómsveitin virð-
ist vera að feta sig í átt að
drungapopptónlist níunda
áratugarins sem ætti að vera
gleðiefni fyrir hina fjölmörgu
aðdáendur hljóðgervla og
tölvutromma. Bloodgroup er
nýkomin heim úr velheppn-
aðri ferð til New York og
meðlimir hljómsveitarinnar
voru vafalaust varla búnir
að ganga frá ferðatöskun-
um þegar þeir héldu aftur í
hljóðverið.
Hljómsveitin Cliff Clavin, sem
var í forsíðuviðtali í síðasta
tölublaði POPPS, situr í efsta
sæti vinsældalista Xins 977
þessa vikuna. Skýtur hljóm-
sveitin þar með risum á borð
við Muse, Alice in Chains og
Weezer ref fyrir rass og ekki
óverðskuldað. Lagið Midnight
Getaways er frábært og
gefur gríðarlega góð fyrirheit
um plötuna sem Cliff Clavin
vinnur að.
Hjaltalín kom fram
ásamt Páli Óskari
á mögnuðum
tónleikum á Ice-
land Airwaves-
hátíðinni um
miðjan okt-
óber. Hljóm-
sveitin flutti lög
Palla og öfugt
og viðstaddir
voru gríðar-
lega vel með á
nótunum. Sú
saga gekk um
bæinn að Páll
Óskar myndi
syngja lag
á nýju
Hjaltalín-
plötunni, en hún er
ekki á rökum reist. Sam-
kvæmt heimildum POPPS má
þó búast við að Hjaltalín og
Páll Óskar spili aftur saman á
tónleikum, en ekki fyrr en á
næsta ári.
Annars er það að frétta af
Hjaltalín að nýja
platan er langt
komin. Óvíst
er hvenær hún
kemur út, en
ljóst er að gríð-
arleg spenna
er fyrir
henni þar
sem fyrsta
smáskífulag-
ið, Stay by
You, lofar
virkilega
góðu. - afb
Áður
en Ingibjörg
Ragnheiður flutti
til New York í leit
að frama í fyrirsætu-
bransanum stundaði
hún nám í lyfjafræði
við Háskóla Íslands.
Hún er sem sagt
ekki bara fallegt
andlit.