Fréttablaðið - 02.11.2009, Síða 4
4 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
SKATTAR. Fluke Finance Co ehf.,
verðbréfafyrirtæki í eigu Banda-
ríkjamanna, greiðir 528 milljónir
í opinber gjöld til íslenska ríkisins
á þessu ári. Félagið greiðir áttundu
hæstu opinber gjöld allra lögaðila
á Íslandi í ár og er þriðji hæsti
gjaldandi tekjuskatta og fjár-
magnstekjuskatta í Reykjavík.
Stjórnarmenn og prókúruhaf-
ar Fluke Finance eru Bandaríkja-
menn, það hefur engan skráðan
framkvæmdastjóra, er með tæp-
lega 70 milljarða króna hlutafé, er
ekki skráð fyrir síma og er með
lögheimili en engar skrifstofur á
Stórhöfða 23. Þar var ráðgjafar- og
endurskoðunarfyrirtækið Deloitte
til húsa þegar fyrirtækið, sem nú
heitir Fluke Finance, var stofnað
undir nafninu Rauðagil.
„Eins og hjá öðrum endurskoð-
unar- og lögmannsstofum tíðkaðist
þar að eiga nokkur félög á lager,“
segir Björgvin Narfi Ásgeirsson,
skráður stofnandi Fluke Finance.
Hann starfaði hjá Deloitte á árinu
2006 og segist ekkert þekkja til
þeirra aðila sem síðar keyptu
félagið af Deloitte.
Í desember 2006, tæpum mán-
uði eftir stofnun, tóku sæti í stjórn
Fluke Finance þeir Frank Tal-
bot Mc Faden, stjórnarmaður og
James Howard Ditkoff, varastjórn-
armaður. Hvorugur þeirra hefur
haft lögheimili á Íslandi, fremur
en prókúruhafinn, Christopher
Alan Hayes.
Fluke Finance hefur ekki skil-
að ársreikningum fyrir árin 2007
og 2008. Samkvæmt hlutafélaga-
skrá er skráð hlutafé fyrirtækis-
ins 375.414.415 evrur, eða um það
bil 70 milljarðar króna.
Skráður tilgangur félagsins er:
„Kaup, sala og eignarhald á verð-
bréfum, kaup, sala og rekstur fast-
eigna og lausafjár ásamt lánastarf-
semi tengd rekstrinum og annar
skyldur rekstur.“
Fluke Finance er að öllu leyti
í eigu bandaríska fyrirtækisins
Fluke International Corporation,
samkvæmt ársreikningi frá 2006,
sem er sá eini sem skilað hefur
verið til yfirvalda.
Deloitte er skráður endurskoð-
andi Fluke Finance Co ehf. í hluta-
félagaskrá. Þar fengust engar upp-
lýsingar um fyrirtækið og var sagt
að Deloitte væri bundið trúnaði um
málefni viðskiptavina sinna. Sama
svar fékkst hjá Margréti Péturs-
dóttur hjá Ernst&Young, en hún
gerði ársreikning Fluke Finance
fyrir árið 2006. Þá hafði fyrirtæk-
ið engar tekjur og engar skuldir og
átti ekki aðrar eignir en 500.000
króna hlutafé.
peturg@frettabladid.is
Fluke Finance greiðir
528 milljónir í skatt
Fluke Finance er verðbréfafyrirtæki í eigu Bandaríkjamanna, skráð á Íslandi og
greiðir áttundu hæstu skatta allra lögaðila á landinu í ár.
HÖFUÐSTÖÐVAR Fluke Finance er skráð með lögheimili á Stórhöfða 23. Þar er það
hvorki með póstkassa né skrifstofu en endurskoðunarfyrirtækið Deloitte var þar til
húsa þegar starfsmaður þess stofnaði Fluke Finance.
Fluke Finance er ekki eina
óþekkta fyrirtækið sem leggur
mikið af mörkum til sameigin-
legra sjóða landsmanna þetta
árið.
Á lista yfir 10 hæstu greiðend-
ur tekjuskatts og fjármagnstekju-
skatts í Reykjavík eru eftirtalin
fyrirtæki í sætum 8-10.
8. DMG Holdings á Íslandi ehf. 162
9. Hochtief Construction AG. 150
10. Ingersoll-Rand Finance Ísl. slf. 150
DMG Holdings á Íslandi ehf.
er skráð til heimilis í Skógarhlíð
12, þar sem endurskoðunar-
fyrirtækið PWC hefur höfuð-
stöðvar. Markmið þess er að
stunda fjármálastarfsemi tengda
starfsemi skyldra félaga. Það er
í eigu Daily Mail and General
Trust, eins stærsta fjölmiðlafyrir-
tækis Evrópu. Michael Richard
Flint, Adrian Perry og John Peter
Williams eru skráðir í stjórn en
enginn framkvæmdastjóri er
skráður.
Hochtief Construction AG,
útibú á Íslandi, var stofnað af
Hochtief Construction AG, til
að taka þátt í sameignarfélag-
inu Fosskraft sf., sem tók þátt í
framkvæmdum við Kárahnjúka,
samkvæmt ársreikningi 2004.
Það er með lögheimili á Stór-
höfða 23, á sama stað og Fluke
Finance, í húsi þar sem Deloitte
var áður til húsa.
Ingersoll-Rand er samkvæmt
hlutafélagaskrá ekki með skráða
stjórnarmenn né framkvæmda-
stjóra og hlutafé þess er 0 kr.
Samkvæmt ársreikningi 2007
er það í eigu Ingersoll-Rand á
Barbados og með útibú í Sviss.
Ársreikninginn undirrita stjórn-
armennirnir Ásgeir Thoroddsen,
Garðar Valdimarsson, Bernhard
Petersen, Lawrence Kurland og
Neil Hewlett. Það er skráð til
heimilis að Stórhöfða 21. Tilgang-
ur félagsins er að stunda fjár-
málastarfsemi, einkum tengda
Ingersoll-Rand-samsteypunni.
ÓÞEKKTIR
SKATTAKÓNGAR
GJALDHÆSTU LÖGAÐILAR
1. Ríkissjóður Íslands 6.113
2. Exista Trading ehf. 1.524
3. Reykjavíkurborg 1.512
4. Alcan á Íslandi hf. 985
5. Vátryggingafélag Íslands hf. 747
6. Norðurál ehf. 745
7. Impregilo SpA Ísland 638
8. Fluke Finance Co ehf. 529
9. Icelandair ehf. 456
10. Exista Invest ehf. 435
Tölur eru í milljónum króna
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
10°
6°
9°
13°
13°
10°
7°
7°
25°
11°
21°
13°
29°
3°
12°
21°
7°
Á MORGUN
5-13 m/s
MIÐVIKUDAGUR
10-15 m/s NV-til ,
annars hægari.
5
3
1
2
0
3
0
3
2
6
-2
9
10
3
5
4
6
4
8
4
13
4
2
1 0
1
2 3
0 1
3
4
SVALT Í VEÐRI
Næstu daga verður
heldur svalt í
veðri, næturfrost
um allt land og
hiti um frostmark
norðaustan til á
daginn. Í dag verða
SA- og A-áttir en í
nótt snýst vindur
í norðaustlægar
áttir og þá léttir
til sunnanlands
en þykknar upp
norðan til.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Lilja Mósesdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, mun
ekki styðja frumvarp um ríkis-
ábyrgð vegna Icesave. Hún lýsti
því yfir í Silfri Egils í gær. Hún
hefur ekki tekið ákvörðun um
hvort hún situr hjá eða greiðir
atkvæði gegn málinu.
Lilja segist draga í efa að Íslend-
ingar geti staðið undir þeim skuld-
bindingum sem á þá eru settar, til
dæmis með Icesave-samningun-
um. Hún sé ekki andsnúin samn-
ingum um málið, en telji núverandi
samninga Íslendingum ekki nógu
hagstæða. Þeir hafi þó batnað til
muna með þeim fyrirvörum sem
Alþingi setti í sumar.
Lilja gagnrýnir mjög að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hafi ekki birt
skuldaþolsútreikninga sína. Sér-
kennilegt sé að í nóvember í fyrra
hafi sjóðurinn sagt að skulda-
hlutfall yfir 240 prósent af vergri
landsframleiðslu væri óbærilegt.
Nú segði sjóðurinn landið standa
undir 310 prósent hlutfalli, en birti
ekki útreikninga þar um.
Guðfríður Lilja Grétarsdótt-
ir, þingflokksformaður Vinstri
grænna, segir afstöðu Lilju ekki
koma sér á óvart. Sjálf sé hún
bjartsýn á farsæla lausn málsins.
„Nú er komið að þeim tímapunkti
að við erum búin að tefla úr mjög
þröngri stöðu og eigum að ljúka
málinu. Ef á að leysa málið á að
gera það núna.“ - kóp
Þingflokksformaður ekki hissa og býst við farsælum lyktum á Alþingi:
Lilja mun ekki styðja Icesave
ÓSÁTT Lilja óttast að landið standi ekki
undir skuldbindingum og vill betri
samninga um Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn hefur
heimilað innstreymi erlends
gjaldeyris til nýfjárfestinga og
útstreymi gjaldeyris sem af því
kann að leiða í framtíðinni. Með
þessu er fyrsta skrefið stigið í
afnámi gjaldeyrishafta, að því er
segir á heimasíðu bankans.
Gjaldeyrisinnstreymi verð-
ur breytt í krónur undir eftirliti
Fjármálaeftirlitsins. Skrá verður
nýfjárfestinguna hjá Seðlabank-
anum til að heimilt verði að flytja
fjármunina aftur úr landi. Þá
hefur bankinn breytt gjaldeyris-
reglum með það að markmiði að
draga úr misræmi og loka glufum
sem notaðar hafa verið til að fara
í kringum höftin. - kóp
Ákvörðun Seðlabankans:
Fyrsta skref í
afnámi hafta
SEÐLABANKASTJÓRI Seðlabankinn hefur
stigið fyrsta skref í afnámi gjaldeyris-
hafta. Már Guðmundsson er seðla-
bankastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓLK Hagsmunasamtök heimil-
anna efna til borgarafundar í Iðnó
klukkan átta í kvöld. Yfirskrift
fundarins er: Aðgerðir stjórn-
valda, bjargráð eða bjarnargreiði?
Framsöguerindi flytja þeir Árni
Páll Árnason félagsmálaráðherra,
Marinó G. Njálsson, stjórnar-
maður í samtökunum, Jóhann G.
Jóhannsson og Theódór Norðkvist.
Að loknum framsögum verða
pallborðsumræður með þátttöku
þingmanna úr öllum flokkum, auk
framsögumanna. Öllum ráðherr-
um og þingmönnum hefur verið
sérstaklega boðið á fundinn, en
fundarstjóri verður Vilhjálmur
Árnason. - kóp
Hagsmunasamtökin:
Borgarafundur
í Iðnó í kvöld
Sóttur af þyrlu eftir bílveltu
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gær
slasaðan ökumann sem hafði velt bíl
sínum á Holtavörðuheiði. Ökumaður-
inn er mikið slasaður. Hann var einn
í bílnum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Tölur eru í milljónum króna
GENGIÐ 30.10.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
237,0451
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,01 124,61
205,02 206,02
184,03 185,05
24,722 24,866
22,015 22,145
17,737 17,841
1,3633 1,3713
197,35 198,53
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Bílaapótek Hæðarsmára
Mjódd • Álftamýri